Erlent

ESB stefnir Svíum vegna einokunar

Evrópusambandið hefur stefnt sænska ríkinu fyrir að leyfa ekki borgurum sínum að panta áfengi frá útlöndum. Fyrir nokkrum árum tapaði sænskur matvörukaupmaður máli sem hann áfrýjaði til Evrópudómstólsins en hann hafði selt áfengi í matvörubúð sinni í Svíþjóð. Það var sem sagt úrskurðað að honum væri það ekki heimilt. Ríkisverslun með áfengi í Svíþjóð hefur einkarétt á innflutningi og sölu áfengis en Evrópusambandið gerir nú athugasemdir við að sænskum borgurum sé ekki leyft að panta sér áfengi frá útlöndum til einkanota og láta senda sér það. Evrópusambandið telur að þetta stríði gegn reglum um frjálsan vöruflutning milli landa og hefur ákveðið að fara með málið fyrir Evrópudómstólinn. Sænsk stjórnvöld segjast aftur á móti hafa ríkisverslun með áfengi af heilsufarsástæðum og lýsa yfir miklum áhyggjum ef þessar reglur standist fyrir dómstólum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×