Erlent

15 milljónir barna munaðarlaus

Fimmtán milljónir barna hafa misst foreldra sína vegna alnæmis. Langflest þeirra búa í Afríku en þar hafa tólf milljónir barna misst foreldra vegna þessa vágests. Á heimsvísu hefði munaðarleysingjum fækkað ef ekki væri fyrir alnæmisvána. Í mörgum löndum jafngildir HIV-sýking ennþá dauðadómi innan tíu ára með þeim afleiðingum að óttast er að tæpar nítján milljónir barna verði munaðarlausar árið 2010. Helmingur munaðarleysingjanna er undir tólf ára aldri. Þetta kemur fram á ráðstefnu um alnæmisfaraldurinn sem haldin er í Bangkok þessa dagana. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×