Erlent

Möguleg frestun kosninga

Bandarísk stjórnvöld hafa undirbúið neyðaráætlun til að fresta fyrirhuguðum forsetakosningum í nóvember ef hryðjuverk verða framin í Bandaríkjunum skömmu fyrir kjördag. Þetta kemur fram í vikuritinu Newsweek í dag. Tom Ridge, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, hefur varað við því að al-Kaída samtök Osama bin Ladens kunni að láta til skarar skríða nokkrum dögum fyrir kjördag til að hafa áhrif á úrslit kosninganna, líkt og gerðist í þingkosningunum á Spáni í mars síðastliðnum. Hugmyndir um að gefa dómsmálaráðuneytinu heimild til að fresta kosningunum hafa þegar mælst illa fyrir hjá ýmsum þingmönnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×