Neyðarlög gegn vígamönnum 7. júlí 2004 00:01
Íraska bráðabirgðastjórnin hefur sett öryggislög sem veita henni víðtækar heimildir til að berjast gegn uppreisnarmönnum og koma á röð og reglu innan landamæra landsins. "Líf írasks fólks er í hættu, þeim stafar ógn af illum öflum, sveitum hryðjuverkamanna," sagði Bakhityar Amin, mannréttindaráðherra í írösku stjórninni. Hann líkti írösku öryggislögunum við Þjóðræknislögin bandarísku sem voru sett í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september og veittu stjórnvöldum víðtækar heimildir til að berjast gegn hryðjuverkamönnum. Þau hafa verið gagnrýnd fyrir að ganga of nærri mannréttindum fólks. Öryggislögin veita Iyad Allawi forsætisráðherra rétt til að fyrirskipa útgöngubann á ákveðnum svæðum að fengnu einróma samþykki stjórnarinnar. Hann má einnig leyfa að svæði verði girt af, húsleitir gerðar og vopnaðir einstaklingar teknir í varðhald. Að auki getur hann skipað borgaralega eða hernaðarlega yfirmenn til að fara með völd á ákveðnum svæðum. Heimild dómstóls þarf þó áður en gripið verður til hvers úrræðis fyrir sig. Lögin veita stjórnvöldum heimild til að setja herlög í gildi. Sú heimild takmarkast þó við að þau verði ekki í gildi lengur en þann tíma sem átökin standa yfir sem eru kveikjan að herlögunum og aldrei meira en í 60 daga. "Við gerum okkur grein fyrir að þessi lög takmarka nokkuð réttindi fólks en það er fjöldi varnagla í þeim," sagði Malik Dohan al-Hassan dómsmálaráðherra. "Við höfum reynt að tryggja hvort tveggja, réttlæti og mannréttindi," sagði hann og bætti við að lögin væru nauðsynleg svo hægt væri að berjast gegn uppreisnarmönnum og hryðjuverkamönnum. Til átaka kom víða í höfuðborginni í gær. Grímuklæddir uppreisnarmenn börðust við íraskar öryggissveitir sem voru studdar bandarískum hermönnum og þyrlum. Bardagar stóðu lengi yfir í götunum nærri Píslarvættatorginu. Í það minnsta fjórir létust og 20 særðust í þeim bardögum. Nokkur dráttur varð á því að bráðabirgðastjórnin tilkynnti um neyðarlögin og varð að fresta kynningu þeirra nokkrum sinnum. Varð sá dráttur til að vekja grunsemdir um að ráðherrunum gengi illa að komast að samkomulagi um hvernig neyðarlögin skyldu verða.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira