Goðið skrifaði á gítarinn 6. júlí 2004 00:01
Margir úr hinum átján þúsund manna hópi, sem sótti Metallica tónleikana, hafa sjálfsagt viljað hitta meðlimi hljómsveitarinnar og eiga með þeim stund. Þannig kom lítið á óvart að hótelið, sem þeir gistu á, var umvafið aðdáendum nánast allan sólarhringinn eftir að sagan spurðist út. Ekki voru allir jafn heppnir og þeir sem freistuðu gæfunnar á heimasíðu aðdáendaklúbbs hljómsveitarinnar og skráðu sig í pott þar sem hægt var að vinna baksviðspassa til að hitta goðin augliti til auglitis. Um 20 manns voru svo heppnir að hreppa eitt stykki passa og ljóst að færri komust að en vildu. Á meðal þeirra var Adam Bauer, ungur Metallica-unnandi sem að greip með sér gítar til áritunar. Adam var að sjálfsögðu hæstánægður með að hitta goðin. "Þetta var alveg frábært," sagði Adam. "Þeir árituðu allir gítarinn og tóku nett spjall. Kirk ýtti aðeins of fast á pennann þannig að það lak smá blek út. Það gerði þetta bara meira sérstakt". Adam segist lengi hafa beðið eftir að vera viðstaddur tónleika Metallica og það hafi verið draumi líkast að fara á tónleika með þeim, hvað þá að hitta þá í eigin persónu. "Að fara baksviðs toppaði allt!" sagði Adam að lokum.
Menning Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira