Þær bestu og þær verstu 3. júlí 2004 00:01
The Godfather frá árinu 1972 er án efa ein besta mynd Marlons Brando en hann tók persónu mafíuforingjans Don Corleone. Myndin er í efsta sæti yfir bestu myndir allra tíma að mati notenda Internet Movie Database. Þáttur Brandos í Apocalypse Now var ekki síður mikilvægur en í The Godfather. Brando birtist ekki fyrr en í lok myndarinnar í hlutverki Kurtz ofursta en slagkrafturinn í persónunni og leiknum varð til þess að andi Brandos drottnaði yfir sögunni. Brando fór á kostum í Streetcar Named Desire í upphafi ferils síns árið 1951. Krafturinn var ekki minni í Brando í On the Waterfront árið 1954 þar sem töffið beinlínis lak af honum í hlutverki hafnarverkamanns sem blandast í verkalýðsátök. Þá má ekki gleyma leik hans í The Freshman frá 1990 en þar sýndi hann að hann hafði engu gleymt þegar hann lék skopstælingu á Don Corleone. Ferill Brandos er þó síður en svo ein löng perlufesti og hann hefur oft orðið sér til skammar í skelfilegum myndum þar sem hann sýnir leik langt undir meðallagi. Alversta mynd hans hlýtur að vera The Island of Dr. Moreau en þar var nánast grátlegt að horfa á karlinn helspikaðan í tómu rugli. The Score frá árinu 2001 olli aðdáendum hans einnig gríðarlegum vonbrigðum en þar deildi hann tjaldinu með Edward Norton og Robert De Niro í afar slæmri mynd. Þá getur túlkun hans á föður Súpermans í Superman seint talist honum til sóma en það er huggun harmi gegn að hann fékk óheyrilega há laun fyrir nokkurra mínútna leik. Þá verður frumraunar hans á leikstjórastóli, vestranum One Eyed Jacks, minnst fyrir að vera langt og þvælt flopp en Brando fór í rosalega fýlu þegar gagnrýnendur rökkuðu hana niður árið 1961.
Menning Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira