Lífið

DMX í fangelsi

Eins og kom í fréttum um daginn var rapparinn DMX handtekinn við annan mann fyrir tilraun til bílstuldar á Kennedy-flugvelli í New York og færður í fangageymslur. Nýjustu fréttir af rapparanum greina frá því að við blóðrannsókn hafi fundist leifar af kókaíni í blóði DMX og við leit í bílnum sem rapparinn reyndi að stela fannst bæði lögreglukylfa og kókaín en auk þess var rapparinn tekinn með skilríki alríkislögreglunnar sem hann notaði til að komast í gegnum öryggishlið á flugvellinum. DMX sem réttu nafni heitir Earl Simmons og vinur hans Jackie Hudgins voru látnir lausir á föstudaginn eftir að hafa borgað rúma milljón hvor í tryggingu en verði þeir fundnir sekir eiga þeir allt að sjö ára fangelsi yfir höfði sér. Ekki er enn ljóst hvað rapparanum gekk til því tæplega er hann peningaþurfi eftir að hafa átt fimm plötur í efsta sæti bandaríska Billboard-listans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.