Útlitið slæmt fyrir Hróarskeldu 29. júní 2004 00:01
Gamla goðið David Bowie hefur aflýst þátttöku sinni í Hróarskelduhátíðinni í ár. Hann hefur neyðst til þess að aflýsa þremur tónleikum til viðbótar síðustu vikuna vegna klemmdrar taugar í baki. Hann er undir lækniseftirliti og barst hátíðarhöldurum tilkynning í gær um að Bowie yrði ekki nægilega hraustur til þess að geta troðið upp. Hann var eitt stærsta nafnið á hátíðinni í ár. Auk meiðslanna ætti hann að vera orðinn þreyttur á tónleikaferðalögum, sem hann hefur verið í síðan í haust. Ekki hefur það bætt skap hans að fá sleikjó í augað á tónleikum í Noregi. Svo er óhætt að fullyrða að veðurspáin fyrir Hróarskelduhátíðina sé ekki sem glæsilegust. Hátíðargestir ættu að taka með sér regngallann. Þeir mega einnig búast við því að það fjúki aðeins í þá. Á fimmtudaginn er spáð rigningu. Vindur verður sterkari því lengra sem líður á kvöldið, og er spáð miklu roki um kvöldið. Föstudagurinn ætti að verða tónleikagestum bærilegastur, því þá spá danskir veðurfræðingar þurrum degi og allt að 17 gráðu hita. Þó verður þungskýjað að mestu, og þónokkur vindur. Útlitið versnar svo töluvert á laugardag og sunnudag. Þá er spáð þrumuveðri, með tilheyrandi roki og rigningu. Reyndar er spáin mismunandi eftir veðurstofum í landinu. Allar spá þó rigningu á fimmtudag, laugardag og sunnudag. Mörg ár eru síðan veðurspáin hefur verið svona slæm á þeirri helgi sem hátíðin er haldin, en sumrið hefur verið óvenju blautt á meginlandi Evrópu fram til þessa. Breska sveitin Muse hefur svo aflýst tvennum tónleikum í þessari viku eftir að pabbi trommuleikarans lést skyndilega á Glastonbury-hátíðinni, þar sem sveitin kom fram. Það verður því að teljast ólíklegt að Muse komi fram á Hróarskelduhátíðinni þó svo að sveitin sé ekki búin að aflýsa þátttöku sinni formlega.
Menning Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira