Reddaði byssum gegnum netið 29. júní 2004 00:01
Rottweiler hundarnir verða eitt af upphitunarböndum rapparans 50 cent og félaga hans í G-Unit á tónleikum þeirra í Egilshöll í ágúst. Erpur Eyvindarson er nú staddur í Köben þar sem hann ætlar í dag að leika í myndbandi við nýtt lag Rottweiler hundanna. "Lagið heitir Peningar og verður frumflutt á tónleikunum í haust," segir Erpur en eitt af kjörorðum 50 cent hefur verið, Get rich, or die trying it, svo spurningin er hvort að í nýja laginu séu Rottweiler hundarnir undir áhrifum rapparastórstjörnunnar. "Munurinn á okkur og 50 cent er að hann á peninga og talar mikið um þá. Ég er reyndar hrifnari af slagorði rapparanna í Dead Prez sem er Get free, or die trying it, og það er kannski meira í anda Rottweiler." 50 cent ólst ekki upp í Breiðholtinu. Hann er frá Queens-hverfi New York borgar en báðir foreldrar hans voru drepnir þegar rapparinn var á unga aldri. "Hann hefur sjálfur verið stunginn og skotinn níu sinnum í einni og sömu árás. Þegar hann kemur til Íslands á hann örugglega eftir að fá vitlaust til baka á BSÍ og skjóta einhvern í kjölfarið. Við erum ekkert í því þótt Lúlli sé búinn að vera að redda byssum í gegnum netið. Hann pantar alla varahluti í sitt hvoru lagi og setur svo byssuna bara sjálfur saman heima og skýtur einhvern," segir Erpur en dregur svo aðeins úr yfirlýsingunum. "50 cent er flottur og okkur finnst mjög spennandi að fá að hita upp fyrir gaurana. Þetta er örlítið stærra nafn en Land og synir sem við hituðum upp fyrir á 17. júní árið 2000." Erpur var við nám í fjölmiðlun, ljósmyndun og hönnun í Svíþjóð í vetur. "Það fúnkerar allt mjög vel hérna í Skandinavíu og veðrið er gott. Ég er búin að vera í Köben síðan í maí og langar til að fara jafnvel í áframhaldandi nám hér í hönnun." En þó að Erpur sé í Köben hefur nýr rappari, Erpur Örn, litið dagsins ljós í söngleiknum Fame í Smáralindinni. "Það er sniðugt að hafa svona varaskeifu á Íslandi þegar maður er í útlöndum en ef ég væri Adidas þá væri hann meira svona Abibas með fjórum röndum, skilurðu? Mér var boðið að leika í þessu en ég bý úti og var auk þess ekki alveg að sjá sjálfan mig fyrir mér hoppandi í spígat í þröngum nælonsokkabuxum. Er þessi týpa ekki meira svona Justin Timberlake?," spyr eðaltöffarinn Erpur að lokum en miðasala á tónleika 50 cent hefst í verslunum Skífunnar 1. júlí.
Menning Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira