Góðir rokktónleikar alltaf sexý 29. júní 2004 00:01 "
Áður en ég byrjaði að fást við tónlist var ég með námskeið fyrir börn þar sem ég aðstoðaði þau við að virkja sköpunargáfuna," segir Peaches sem telur sig ekki hafa fengið næga listræna tilsögn sem barn. "Allir hafa að sjálfsögðu gáfur til þess að skapa en það er ekki á allra færi að nýta hana og sumir týna hæfileikanum til þess að nota hana, hún er þó alltaf til staðar. Þess vegna er svo mikilvægt að rækta sköpunargáfuna á meðal barna til þess að einstaklingurinn geti nýtt sér hana alla ævi. Sjálft prógrammið var búið að vera mjög vinsælt í 10 ár þegar ég fór í auknu mæli að nota tónlist við kennsluna," segir Peaches í samtali við DV. "Ég byrjaði að nota kassagítar og svo þróðist þetta áfram þar til ég fór að nota rafmögnuð hljóðfæri líka, ég fann þetta "Roland MC5 boxið"-hljóðfæri þar sem ég gat skapað fullmótaða tónlist án þess að hafa verulega þekkingu á tónlist sem slíkri. Upphaflega langaði mig alltaf að verða leikstjóri og leikstýra leikhúsi svo fann ég það fljólega þegar ég fór að nota tónlist við kennsluna að ég gæti komið minni orku betur á framfæri í gegnum tónlistina sem ég var alltaf að ná betri tökum á. Ég ákvað svo að koma skólanum í hendur vinkonu minnar sem rekur hann enn í dag á sama grunni og ég stofnaði hann. Þannig gat ég einbeitt mér alfarið að tónlistinni," segir Peaches. Eru tónleikarnir þínir undir einhverjum áhrifum frá leiklistaráhuganum? "Tónleikarnir mínir eru orkumiklir rokktónleikar fyrst og fremst. Tónlistin er svo sterkur miðill, það getur þannig allt gerst á tónleikum þar sem allt er keyrt í botn," segir Peaches sem meðal annars hitaði upp á tónleikaferð Bjarkar um Evrópu síðasta sumar. Hvernig var það að túra með Björk? "Það var mikil reynsla, hún er náttúrlega mjög virtur listamaður þannig að það var mjög gott fyrir mig sem tónlistarmann að tengjast henni. Fólk tekur henni mjög alvarlega sem listamanni, þannig að það hjálpaði kannski svolítið til við að gera mína tónlist trúverðuga fyrir þeim sem tóku henni ekki alvarlega. Eftir túrinn með henni hitaði ég upp fyrir Marilyn Manson. Við spiluðum á 20 tónleikum í Evrópu fyrir fullt af brjáluðum goth-krökkum. Það var alveg frábært að ferðast með Manson og spila fyrir hans gengi." Tónleikar þínir eru sagðir mjög kynferðislegir... "Hvað meinar þú? Þetta er bara hrein orka sem er í gangi og öll orka hefur eitthvað kynferðislegt, góðir rokktónleikar eru alltaf sexý," segir Peaches sem er meðal annars fræg fyrir að vera óhrædd við að ögra tónleikagestum kynferðislega á tónleikum sinni og í tónlistinni. "Þetta er náttúrlega undir hverjum og einum komið, ef einhverjum er ögrað kynferðislega á tónleikum þá er það bara fínt en það er að sjálfsögðu á ábyrgð viðkomandi, fólk getur fengið útrás fyrir ýmsa orku á góðum rokktónleikum." Ein platan þín heitir "Fatherfucker" (föðurriðill), er það ekki kynferðisleg tilvitnun? "Þetta er náttúrulega nákvæmlega sama og orðið "motherfucker" sem fólk notar daglega um allan heim. Ég hef verið að leika mér í minni tónlist og textagerð við að snúa þessum hlutum við. Ég nota svona hálfgerðar klisjur sem fólk hefur heyrt í mörg ár í textum tónlistarmanna án þess að kippa sér upp við þær. Ég hef bara snúið þeim við, þannig að setningar eins og "shake your tits" verða "shake your dicks". Þetta hefur alltaf fjallað um stelpur og ég sé engan mun á þessu, það er að sjálfsögðu jafn sjálfsagt að strákar hristi á sér tillann eins og stelpur á sér brjóstin. Tónlistarmenn hafa alltaf farið í kringum þá staðreynd að G-blettur karlmanna er í rassgatinu á þeim. Mér finnst að þessi rassaríðinga-hræðsla fáránleg og syng opinskátt um þessa hluti í mínum textum án þess að fara í kringum hlutina með einhverjum "back it up"-frösum, þar sem verið er að segja nákvæmlega sama hlutina í einhverjum fáránlegum umbúðum," segir Peaches sem ætlar að spila í gallerí Klink og Bank upp í Brautarholti í kvöld. "Ég var að koma frá Kanada núna eftir stutt stopp þar ég er eiginlega búin að vera að spila stöðugt síðustu 5 ár, ég fer héðan til Tyrklands. Það var Egil Sæbjörnsson, myndlistarmaður sem fékk mig til að koma hingað og spila með sér við höfum verið vinir í 4 ár og hann vissi að Klink og Bank hefði áhuga á að fá mig til þess að vera með tónleika hér og ég þáði það að sjálfsögðu," segir Peaches sem kom hingað á mánudaginn og ætlar að vera á Íslandi fram á föstudag.
Menning Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Sjá meira