Mjórra og lengra Prins Póló 14. júlí 2004 00:01
Vanafastir Prins Póló unnendur hafa líklegast tekið eftir því að pólska súkkulaðikexið hefur tekið nokkrum breytingum. Þó bara á útsölustöðum Essó, eins og er, en bráðlega mun breytingin verða til frambúðar í öllum sjoppum. "Málið er að við erum að fá nýtt Prins Póló en það komu þó á undan nokkur eintök á Essó-stöðina í pólskum umbúðum vegna þess að þeir flytja þetta beint inn sjálfir," segir Þorgeir Pétursson, deildarstjóri sælgætis hjá Ásbirni Ólafssyni ehf. "Þetta er með meira súkkulaði. Við munum kynna þetta sem nýtt Prins Póló. Þeir sem þekkja Prinsið eins og það er núna fá þá mjórra og lengra. Prins Póló er að breytast. Hér eftir verður það á pólsku fyrir Pólland og á íslensku fyrir Íslendinga." Þorgeir segir að bragðið muni þó ekki taka miklum breytingum. "Þegar það kemur ætlum við að gefa mikið af því, svona til þess að leyfa fólki að smakka. Þessu var eiginlega þjófstartað fyrir okkur." Prins Póló léttist úr 40g í 38g en Þorgeir gat ekki gefið upp hvort fitumagnið breytist mikið með auknu súkkúlaðimagni. Ekkert hefur enn verið ákveðið með hvort verðið breytist í kjölfarið. "Þá á bara eftir að skoða það og við gerum það um leið og þetta skilar sér í hús," segir hann að lokum.
Menning Mest lesið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira