Erlent

Búlgarskur gísl tekinn af lífi

Skæruliðahópur í Írak, sem haft hefur tvo búlgarska gísla í haldi, drap í gær annan þeirra til að auka þrýsting á stjórnvöld í Búlgaríu að kalla herlið sitt heim. Sjónvarpsstöðin al-Jazeera fékk myndbandsupptöku þar sem sést þegar maðurinn er skorinn á háls, en myndbandið var ekki sýnt. Mannræningjarnir hóta að drepa hinn gíslinn innan sólarhrings, verði ekki öllum írökskum föngum hersetuliðsins í Írak sleppt. Stjórnvöld á Filipseyjum hafa hins vegar ákveðið að kalla friðargæsluliða sína í Írak heim, í von um að skæruliðar sem halda Filipseyjingi í haldi sleppi honum. Áætlanir um brotthvarf friðargæsluliðanna fimmtíu eru mjög loðnar og óljósar, og jafnvel talið að filipseysk stjórnvöld haldi því opnu að senda sama mannskap til Íraks síðar á vegum Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkjamenn eru síður en svo ánægðir með fyrirætlanir Filipseyinga, og líta á þetta sem uppgjöf sem gæti æst skæruliða til frekari mannrána. Þeir segja stórhættulegt að láta undan kröfum hryðjuverkamanna með þessum hætti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×