Pettersson allur 29. september 2004 00:01
Síðasta vonin um að leysa gátuna á bak við morðið á Olof Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, kann að hafa fjarað út í gær þegar Christer Pettersson andaðist á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Þar hafði hann dvalið í tæpar tvær vikur eftir að hann var lagður inn með alvarlega höfuðáverka eftir að hafa dottið heima hjá sér. Pettersson er eini maðurinn sem hefur verið dæmdur fyrir morðið á Palme, sem var myrtur fyrir hálfu nítjánda ári síðan. Hann var hins vegar sýknaður eftir áfrýjun. Þrátt fyrir það hefur grunur manna helst beinst að honum, ekki síst vegna þess að hann hefur sjálfur játað morðið á sig nokkrum sinnum en síðan dregið orð sín til baka. "Víst var það ég sem skaut hann, en þeir geta aldrei náð mér fyrir það. Vopnið er horfið," sagði hann í viðtali við sænska rithöfundinn Gert Fylking fyrir þremur árum. Síðar dró hann orð sín til baka og sagðist ekkert hafa komið nálægt morðinu. Rannsókn á morði Olofs Palme er formlega enn í gangi en litlar líkur á því að málið leysist nokkurn tíma.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent