Tony Blair undir þrýstingi 28. september 2004 00:01
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands viðurkenndi í dag að stríðið í Írak hefði valdið klofningi meðal bresku þjóðarinnar, og að upplýsingar um gereyðingavopnaeign Saddams Hússeins hefðu verið rangar. Hávær mótmæli skyggðu á ræðu Blairs á þingi Verkamannaflokksins síðdegis. Tony Blair ætlaði sér alls ekki að ræða stríðið í Írak á flokksþinginu, en flokkssystkin hans voru ekki á því að láta hann komast upp með að þegja. Hann ákvað því að viðurkenna ákveðin mistök án þess þó að biðjast afsökunar. Blair viðurkenndi að upplýsingar um gereyðingarvopnaeign Íraka hefðu reynst rangar, en hins vegar gæti hann ekki beðist afsökunar á að hafa steypt Saddam Hussein af stóli. Blair sagði að hryðjuverkamenn reyndu vísvitandi að eyðileggja framgang mála í Írak, þar sem árangur þar stæði fyrir allt það sem lýðræði væri. Mótmælendur trufluðu Blair hins vegar ítrekað, bæði andstæðingar stríðs og andstæðingar refaveiðibanns. Meðal annars var hrópað að Blair að hendur hans væru blóðugar. Blair brást við með því að svara manninum á þann veg að hann hefði rétt á að mótmæla og það væri gott að hann byggi í lýðræðisríki, þar sem hann hefði þann rétt. Og Blair rétti Gordon Brown, fjármálaráðherra, sáttahönd, en valdabarátta þeirra hefur verið áberandi undanfarin misseri. Blair sagði Brown náinn vin um tveggja áratuga skeið og besta fjármálaráðherra í sögu Bretlands.
Erlent Fréttir Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Sjá meira