Innlent

Fylgjandi skattalækkunum

Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, segir að ASÍ sé fylgjandi skattalækkun ríkisstjórnarinnar ef nægilegt svigrúm er fyrir hendi án þess að verðbólga aukist og stoðir velferðarkerfisins veikist. ASÍ hafi bent á að á þessum tímapunkti sé mikil þensla og verðbólga og því þurfi að halda mjög fast um hagstjórnina til að neysla aukist ekki og verðbólga hækki. ASÍ óttist að ekki sé hægt að taka jafn mikla peninga út úr ríkisfjármálunum og fyrirhugað er án þess að veikja stoðir velferðarkerfisins. "Hvað barnabæturnar varðar teljum við þær mjög jákvæðar. Hækkun barnabóta er tekjujafnandi aðgerð á meðan skattalækkanir ríkisstjórnarinnar auka ekki ójöfnuð en eru heldur ekki tekjujafnandi. Ef svigrúm er á annað borð fyrir hendi hefðum við frekar viljað sjá aðrar aðgerðir, t.d. lækkun á matarskatti. Hvað barnabæturnar varðar höfum við lagt til við stjórnvöld að þær yrðu greiddar til 18 ára aldurs í samræmi við sjálfræðisaldur. Ekki var hlustað á það," segir hún.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×