Innlent

Hringrás gæti verið bótaskyld

Hringrás gæti verið bótaskyld komi í ljós að fyrirtækið hafi ekki farið að fyrirmælum yfirvalda. Tjón fyrirtækja og einkaaðila í nágrenni brunastaðsins af völdum eldsins virðist hafa verið ótrúlega lítið. Talsmenn tryggingafélaga segja aðeins nokkra tugi tilkynninga hafa komið inn. Fulltrúar sumra tryggingafélaga hafa gengið hús úr húsi í grennd við brunastaðinn og segja að rétt viðbrögð hafi bjargað miklu. Fyrir utan fnyk og fínt sót er óvíða að finna nokkur ummerki eldsins. Aðra sögu er að segja af atvinnuhúsnæði og lagerum fyrirtækja. Þar mun hafa orðið minni háttar tjón, eins og fulltrúi eins tryggingafélagsins orðaði það í samtali við fréttastofuna. Heilbrigðisfulltrúar munu til að mynda hafa úrskurðað að farga yrði matvælum sem geymd voru á svæðinu. Rætt hefur verið um tryggingar og bótaskyldur í tengslum við brunann og Viðar Lúðvíksson lögmaður segir Hringrás geta hafa skapað sér bótaskyldu. Það sem fyrst sé skoðað í slíkum málum eru þau lög og reglur sem gilda á viðkomandi sviði og hugsanleg opinber fyrirmæli sem hafa verið gefin fyrirtækinu. Ef fyrirtækið hefur orðið uppvíst að einhverjum brotum á þessum lögum og fyrirmælum þá er það mjög sterk vísbending um að fyrirtækið sýnt af sér saknæma háttsemi að sögn Viðars. „Og ef þessi saknæma háttsemi leiðir síðan til tjóns fyrir einhvern, eins og virðist hafa gerst í þessu tilviki, þá getur fyrirtækið orðið bótaskylt,“ segir Viðar.    Lögboðin brunatrygging húseigna bætir tjón á loftum, gólfum, veggjum og á föstum innréttingum en ekki tjón á innbúi. Sérstaka innbús- eða fjölskyldutryggingu þarf til að það sé bætt og samkvæmt tölum frá Sjóvá-Almennum eru á milli 20 og 25 prósenta heimila ekki með slíka tryggingu. Síðdegis fól umhverfisráðherra brunamálastjóra að gera úttekt á brunavörnum hjá aðilum með sambærilegan rekstur og Hringrás og kanna hvort ástæða sé til að breyta lögum og reglum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×