Stefnan kemur Hannesi á óvart 24. nóvember 2004 00:01
Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir stefnu á hendur honum vegna ritstuldar úr verkum Halldórs Laxness koma á óvart. Hann segir dætur skáldsins hafa fengið að gera athugasemdir við próförk bókarinnar og að hann hafi tekið tillit til þeirra athugasemda. Auður Laxness, ekkja Halldórs og handhafi höfundarréttar bóka hans, hefur stefnt Hannesi Hólmsteini fyrir ritstuld og krefst 7,5 milljóna króna í bætur. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Fjölskylda Halldós segir að um 270 tilfelli af hreinum ritstuld sé að finna í fyrstu bók Hannesar Hólmsteins um Halldór en stefnan tiltekur 120 dæmi. Hannes segir stefnuna koma sér á óvart því þegar hann skrifaði bókina hafi hann lagt áherslu á að brjóta engan höfundarrétt, enda hafi hann engan áhuga á að brjóta lög. Hannes segir dætur skáldsins og Pétur Má Ólafsson hafa fengið að gera athugasemdir við próförk bókarinnar. Þær athugasemdir hafi verið við beinar tilvitnanir í óprentuð rit og að hann hafi farið eftir þeim öllum. Hannes segir þau hins vegar ekki hafa gert athugasemdir við það sem komi skýrt fram í eftirmálanum að hann hafi nýtt sér lýsingar Halldórs á æsku sinni og ýmsum atburðum úr ævi sinni. Spurður hvers vegna hann telji að Auður Laxness gangi fram með þessum hætti fyrst Hannes hafi tekið tillit til athugasemdanna segist Hannes telja að dætur Halldórs standi á bak við þetta og segi hann þær á móti því að hann skrifi bók um skáldið. „Í stefnunni er talað um að ég sé að skrifa þessa bók í heimildarleysi. Ég vona að sá tími komi nú ekki á Íslandi að menn þurfi sérstakt leyfi frá fjölskyldum fólks til að skrifa bækur um merka menn,“ segir Hannes Hólmsteinn. Um er að ræða fyrstu bókina af þremur sem Hannes Hólmsteinn ætlar að rita um ævi og störf Nóbelsskáldsins. Þrátt fyrir að vinnubrögð hans við fyrsta bindið verði tekin fyrir hjá dómstólum þá virðist það á engan hátt letja rihöfundinn sem gert hefur uppkast að öðru og þriðja bindi. Hannesi finnst það miður að fjölskylda Laxness sé andvíg því að hann skrifi um skáldið, m.a. vegna þess að hann telur að skrifin séu til þess fallin að vekja áhuga fólks á að lesa bækur Halldórs fremur en hitt. Spurður hvort ritstuldur sé eitthvað sem hann sé ekki sekur um kveðst Hannes segja skýrt frá því í eftirmála bókar sinnar að hann hafi stuðst við lýsingar Halldórs á ævi hans. „Ég dreg hvergi dul á það og vísa mjög oft í þessi rit hans þannig að það liggur alveg ljóst fyrir, og ég faldi hvergi hvaða heimildir ég notaði,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor og rithöfundur.
Fréttir Innlent Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Sjá meira