Erlent

6 látnir og tugir sárir

Tugir manna liggja sárir og að minnsta kosti sex eru látnir eftir að tvær bílasprengjur sprungu í Bagdad í Írak í morgun. Önnur þeirra sprakk við bílalest dómsmálaráðherra landsins í nágrenni við heimili hans. Ráðherrann slapp ómeiddur en fjórir lífverðir hans létust. Síðari sprengingin sem varð á sama tíma sprakk fyrir utan bækistöðvar írakska þjóðvarðarliðsins. Þar létust tveir og tugir særðust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×