Erlent

Óttast nýtt vígbúnaðarkapphlaup

Pakistönsk stjórnvöld hafa áhyggjur af auknum útgjöldum Indverja til varnarmála og óttast að nýtt vígbúnaðarkapphlaup kunni að hefjast á milli þessara nágrannaríkja sem hafa átt í stöðugum deilum um áratugaskeið. Indverjar hyggjast verja rúmlega fjórðungi meira fé til varnarmála á næsta fjárlagaári en því sem nú stendur yfir. Fyrir skömmu tilkynntu Pakistanar um sjö prósenta útgjaldaaukningu til varnarmála. Undanfarið hafa Indverjar leitast við að bæta sambúð sína við hvort tveggja Pakistana og Kínverja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×