Erlent

Friðargæsluliðar særðust í Kósóvó

Fjórir finnskir friðargæsluliðar særðust lítillega í árás byssumanna í Kósóvó um helgina. Friðargæsluliðarnir voru í eftirlitsferð skammt frá þorpinu Terbovc þegar skotið var á þá. Sex Albanir voru yfirheyrðir vegna málsins en þeim hefur verið sleppt. Byssumennirnir eru ófundnir en talsmenn KFOR telja ólíklegt að árásinni hafi verið beint að friðargæsluliðunum. Allnokkur fjöldi Íslendinga starfar við friðargæslu í Kósóvó.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×