Lífið

Kókaín en ekki anorexía

Táningsstirnið og tvíburasystirnin Mary-Kate Olsen er brjáluð út í tvö tímarit. Ástæðan er frétt þess efnis að meðferðin sem Mary-Kate gekkst undir á dögunum hafi ekki verið vegna anorexísu heldur mikillar kókaínneyslu. Nú hafa bæði tímaritin Star og National Enquirer harðlega neitað að draga frásagnirnar til baka en þær birtust á forsíðum blaðanna nú um helgina. Talsmaður Mary-Kate og fyrirtækis hennar Dualstar hefur hótað lögsókn en American Media sem á bæði tímaritin stendur fast á sínu og neitar að draga fréttirnar til baka. Talsmaður útgefandans segir heimildir fyrir fréttinni vera öruggar og því ástæðulaust að biðja afsökunar. Myndir af leikkonunni ungu birtust á fosíðum blaðanna en þar sást hún bóka fara inn á meðferðarstofnun í Utah.  Nú stefnir allt í málsókn og réttarhöld vegna málsins þar sem talsmenn táningsstjörnunnar segja fregnirnar algjöran uppspuna og eru þeir nú þegar farnir að ráðfæra sig við lögfræðinga.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.