Ísraelar grunaðir um njósnir 28. ágúst 2004 00:01
Nær tuttugu árum eftir að Ísraelar hétu því að njósna ekki um bandamenn sína Bandaríkjamenn er bandaríska alríkislögreglan, FBI, tekin til við að rannsaka hvort embættismaður í bandaríska varnarmálaráðuneytinu hafi látið Ísraela hafa leynileg gögn um stefnumörkun Bandaríkjastjórnar gagnvart Íran. Sá sem er grunaður um njósnirnar fæst við að greina upplýsingar á skrifstofu Douglas J. Feith, þriðja æðsta stjórnanda bandaríska varnarmálaráðuneytisins og eins helsta ráðgjafa Donalds Rumsfeld varnarmálaráðherra. Rannsóknin beinist að því hvort maðurinn hafi látið ísraelskan þrýstihóp í Washington hafa leynilegar upplýsingar sem þrýstihópurinn hafi síðan komið á framfæri við Ísraelsstjórn. Maðurinn hefur ekki verið handtekinn en talið er að hann kunni að verða handtekinn á næstu dögum. Bæði þrýstihópurinn, American Israel Public Affairs Committee, og Ísraelsstjórn neita því að stunda njósnir í Bandaríkjunum. Yuval Steinitz, formaður utanríkis- og varnarmálanefndar Ísraelsþings, sagði Ísraela hafa miklar áhyggjur af því að Íranar væru að koma sér upp kjarnorkuvopnum. "En ef þið haldið að þetta kunni að breyta fyrri ákvörðun okkar um njósnir í Bandaríkjunum er svarið nei," sagði hann. Í nóvember 1985 var bandarískur leyniþjónustumaður handtekinn fyrir njósnir í þágu Ísraela. Hann var fundinn sekur og situr enn í fangelsi þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Ísraela til að fá hann leystan úr haldi. "Í kjölfar Pollard-málsins fyrir tuttugu árum var tekin sú ákvörðun að njósna ekki um Bandaríkin," sagði Steinitz og sagðist fullviss um að ákvörðuninni væri enn hlítt. Ef satt reynist að Ísraelar hafi njósnað um Bandaríkin má telja víst að málið verði hið neyðarlegasta fyrir Ísraela, sem treysta mjög á stuðning Bandaríkjanna, og einnig fyrir Bandaríkjastjórn, ekki síst fyrir Rumsfeld, sem hefur mikil áhrif á utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira