Yngsti Douglasinn deyr 7. júlí 2004 00:01
Eric Douglas, yngsti sonur leikarans Kirk Douglas og hálfbróðir stórstjörnunnar Michael Douglas, er látinn 46 ára að aldri. Hann hafði árum saman glímt við áfengis- og eiturlyfjafíkn sem hann rakti meðal annars til álagsins sem fylgdi því að standa í skugganum af frægum föður og enn frægari bróður. "Pressan sem fylgir því að vera yngsti sonurinn í jafn frægri fjölskyldu lagðist stundum þungt á mig," sagði Eric í við viðtali við Daily News fyrir nokkrum árum. "Mér fannst ég alltaf þurfa að bera mig saman við þá [Kirk og Michael]". Vinnukona Erics kom að honum látnum í íbúð hans í New York og að sögn lögreglu bendir ekkert til þess að aðrir hafi átt þátt í dauða Erics en niðurstöður krufningar liggja ekki fyrir. Eric reyndi að vinna fyrir sér sem uppistandsgrínari og leikari og kom fram í nokkrum fjölda sjónvarpsþátta og lélegum bíómyndum á borð við Delta Force 3. Ættingjar Erics hafa ekki viljað tjá sig um fráfall hans en talsmaður fjölskyldunnar sendi fjölmiðlum stutta yfirlýsingu þar sem fram kom að mikil sorg ríki í fjölskyldunni vegna óvænts fráfalls Erics og talsmaður fjölskyldunnar fór þess á leit við fjölmiðla að þeir virði friðhelgi fjölskyldunnar á þessum erfiðu tímum.
Menning Mest lesið Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Lífið Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni „Við viljum alls ekki fá of marga“ Lífið „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Lífið Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Lífið Mannauðsstjórinn segir einnig upp Lífið Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“