Heita herferð gegn Síonistum 26. september 2004 00:01
Hefndum er heitið fyrir drápið á einum leiðtoga Hamas-samtakanna í Sýrlandi í morgun. Hamas heitir herferð gegn Síónistum um allan heim. Árásin í dag gæti markað breytingu í baráttu Hamas og ísraelskra stjórnvalda. Bílsprengja sem sprakk í Damaskus í Sýrlandi í morgun grandaði Izz Eldine Subhi Sheik Khalil, einum leiðtoga vopnaða vængs Hamas. Talsmenn ísraelskra öryggismálayfirvalda gengust við því að útsendarar Ísraelsríkis væru viðriðnir tilræðið. Viðbrögð Hamas voru skýr: samtökin birtu á heimasíðu sinni yfirlýsingu þar sem sagði að Síonistar hefði nú fært baráttuna út fyrir landamæri Ísraels og Palestínu. Fram til þess hefði Hamas látið Síonista erlendir í friði en nú yrðu Síonistarnir að taka afleiðingum gjörða sinna. Talsmaður Hamas, Mushir al-Masri, var vígreifur og sagði þessi morð hvorki hafa áhrif á andspyrnu Hamas né veikja samtökin. Andspyrnan hafi kennt þeim að standa ekki aðgerðalaus gagnvart þessum glæpum og hann sagði að fyrir þá verði refsað. „Síonistar mega vita það að þeir munu gjalda fyrir þá glæpi að myrða Ahmed Yassin, dr. Abdul Aziz Rantisi og aðra Palestínumenn. Andspyrnuhreyfingin sækir í sig veðrið með hverjum deginum sem líður,“ sagði al-Masri. Þetta er aðeins í annað skipti á þrjátíu árum sem Ísraelsmenn grípa til einhvers konar aðgerða innan landamæra Sýrlands, og segja fréttaskýrendur í Ísrael í þessu felast skýr skilaboð til stjórnvalda í Damaskus þess efnis að þau skuli ekki veita hryðjuverkamönnum skjól. Nýlegar fregnir frá Damaskus herma raunar að Sýrlendingar hafi skipað fyrir um að skrifstofum palestínskra samtaka í landinu skyldi lokað. Að auki hafa Ísraelsmenn heitið því að ganga á milli bols og höfuðs á forystu Hamas og ítrekuðu þeir þá fyrirætlan sína nýlega. Á föstudag greindi arabíska dagblaðið al-Hayat frá því að ónafngreindur Arabi hefði látið ísraelsku leyniþjónustunni Mosad í té upplýsingar um leiðtoga Hamas erlendis.
Erlent Fréttir Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira