Erlent

Á varðbergi gegn verðbólgu

Alan Greenspan, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að þrátt fyrir að efnahagslífið í Bandaríkjunum sé ekki í mikilli þenslu þurfi að huga að því að verðbólga verði ekki meiri en æskilegt sé. Greenspan sat fyrir svörum þingnefndar í Bandaríkjunum á þriðjudag og sagði að ef ummerki um óvænta hækkun verðbólgu kæmu fram endurskoðaði seðlabankinn stefnu sína varðandi vaxtahækkanir. Seðlabankinn hefur lýst því yfir að hann muni fara hægt í sakirnar hvað varðar vaxtahækkanir en síðast voru vextir hækkaðir í lok júní og búist er við annarri hækkun í ágúst. Í dag vitnaði hann fyrir annarri þingnefnd og sagði þá að skattalækkanir ríkisstjórnar George Bush hefðu komið í veg fyrir alvarlega efnahagskreppu. Hann varaði hins vegar við afleiðingum mikils fjárlagahalla. Hann ítrekaði tillögur sínar um lagabreytingar sem geri þinginu ókleift að taka ákvörðun um útgjaldahækkanir án þess að mæta útgjöldunum með sparnaði annars staðar eða skattahækkunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×