Arafat sagður bera mesta ábyrgð 21. júlí 2004 00:01 "
Arafat ber stærstan hluta ábyrgðarinnar á mistökunum. Arafat forseta mistókst og palestínsku stjórninni mistókst. Palestínsku stjórnmálahreyfingunum hefur mistekist," sagði þingmaðurinn og ráðherrann Qadoura Fares um þá stöðu sem komin er upp í palestínskum stjórnmálum. Deilan um stjórn öryggismála í Palestínu virðist engan enda ætla að taka og frekar er útlit fyrir að hún versni heldur en hitt. Palestínska þingið brá út af venju sinni og gagnrýndi Jasser Arafat forseta. Þingið samþykkt ályktun þar sem það gekk gegn vilja hans og lagði til að hann samþykkti afsagnarbeiðni Ahmed Qureia forsætisráðherra. Það hefur hann neitað að gera hingað til. Þingið lagði einnig að Arafat að skipa nýja stjórn sem væri betur til þess fallin að fara með völd en stjórn Qureia. Gagnrýnt hefur verið að Arafat hafi ekki gefið ríkisstjórnum landsins tækifæri til að stjórna þar sem hann hefur neitað þeim um að fara með stjórn löggæslumála. Átökin eru ekki einskorðuð við Gaza þó upphaf átakanna megi rekja þangað. Palestínskum embættismanni var rænt á Vesturbakkanum en sleppt nokkru síðar. Fram að þessu höfðu mannrán og uppþot takmarkast við Gazasvæðið. Khaled Mashaal, leiðtogi Hamas sem er búsettur í Sýrlandi, setti sig í samband við Arafat í gær og lagði hart að honum að koma á friði á Gaza. Símtalið þykir til marks um þann óróleika sem hefur gripið um sig vegna deilna síðustu daga. Ef símtal Mashaal er undanskilið hefur Hamas haldið sig til hlés meðan fylkingar í Fatahhreyfingu Arafats hafa deilt og átt í bardögum innbyrðis. Enn hefur ekkert skýrst um hverjar verða lyktir deilu Arafats og Qureia. Arafat neitar að taka afsögn Qureia gilda en Qureia kveðst aðeins gegna starfi forsætisráðherra þar til annar hefur verið skipaður í hans stað.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira