Erlent

Hótað að sprengja Eiffelturninn

Eiffelturninn í París var rýmdur nú fyrir stundu eftir að hótað var að sprengja sprengju í turninum. Lögregla rannsakar málið en telur að um gabb hafi verið að ræða. Um fjögur þúsund manns þurftu að yfirgefa turninn í kjölfar símtals þar sem tilkynnt var um hina meintu sprengju. Eiffelturninn er einn allra vinsælasti ferðamannastaður heims og aðal kennileiti Parísarborgar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×