Bráðnun jökla mikil ógnun 15. júlí 2004 00:01
Nægur koltvísýringur er í andrúmsloftinu í dag til að bræða alla jökla heimsins og sökkva borgum á borð við New York, London og New Orleans á stuttum tíma. Hefur álíka magn koltvísýrings ekki fundist í 55 milljón ár hér á jörðu. Þetta lét David King, aðalráðgjafi breskra stjórnvalda í umhverfismálum hafa eftir sér en hann ferðast nú um og þrýstir á að þau ríki sem ekki hafi nú þegar skrifað undir Kyoto bókunina til verndar umhverfinu geri það. Vísindamenn þykjast vissir í sinni sök þegar fullyrt er að íshellan yfir Grænlandi muni byrja að bráðna á þessari öld. Bráðni hún alveg mun sjávarmál hækka um sjö metra og skapa stærra vandamál en mannkynið hefur áður kynnst. Fjöldi stórborga í heiminum mun sökkva í sæ, þar meðtaldar stórborgir á borð við London, Los Angeles, Kaíró og Sidney. Öll austurströnd Bandaríkjanna færi að hluta til undir vatn og hætt er við að vöðlur verði nauðsynlegar ætli fólk sér í miðbæ Reykjavíkur. Fari spár á versta veg er einnig hætt við að heilu löndin fari forgörðum. Bangladesh er líklegt til að hverfa af landakortum og þarf sjávarmál í raun aðeins að hækka um einn metra til að stór hluti þess hvíli á hafsbotni. Flóðgarðar Hollands, sem er að mestu undir sjávarmáli, eru ekki byggðir með sjö metra hækkun í huga og Danmörk og Belgía liggja hvorug hátt yfir sjó. Þá á eftir að minnast á þær truflanir sem slík hækkun hefur á vistkerfi sjávar en rannsóknir benda til að hækkun geti haft miklar og slæmar afleiðingar fyrir sjávarþjóðir. Sem dæmi þyrftu Íslendingar að sækja fisk mun norðar en nú gerist þar sem einu köldu svæðin sem eftir væru yrðu við pólana tvo. Þá eru og ótalin þau áhrif sem verða á veröldina eins og við þekkjum hana ef heimskautaísinn á Suðurskautinu bráðnar einnig. Þá gera vísindamenn ráð fyrir að yfirborð sjávar hækki um 110 metra til viðbótar við þá sjö frá Grænlandsjökli.
Erlent Fréttir Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Fleiri fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Sjá meira