Erlent

Herör gegn ólöglegum lyfjum

Tæplega 150 manns voru handteknir á Spáni eftir eina stærstu samhæfðu aðgerð spænskra lögregluyfirvalda gegn ólöglegum lyfjum. Eru Spánverjarnir ekkert ólíkir öðrum að því leyti að mikil viðskipti eru með ólögleg lyf, sérstaklega meðal íþróttamanna, sem nota allt sem þeir finna til að ná forskoti á keppinautinn. Var mikið magn stera- og hormónalyfja gert upptækt auk annarra efna. Er fyrirhugað að gefa þessum geira nánari gætur í framtíðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×