Erlent

Dýr myndi Hafliði allur

Þýskur karlmaður hefur kært unga konu sem starfar hjá erótískri símaþjónustu til lögreglu eftir að honum barst um hálfrar milljónar króna símreikningur vegna samtals við konuna sem stóð yfir næturlangt. Að sögn mannsins hringdi konan í hann og sagðist hafa fundið símanúmerið hans á Netinu. Hún sagðist vilja spjalla við manninn og bað hann um að hringja í sig til baka. Vel fór á með þeim í samtalinu og var því ekki slitið fyrr en eftir sex klukktíma. Að sögn mannsins ræddu þau heima og geima. Málið er rannsakað sem svikamál.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×