Erlent

Barroso stendur sig vel

Jose Manuel Durao Barroso, fyrrverandi forsætisráðherra Portúgal, er talinn hafa staðið sig með eindæmum vel á þeim tveim dögum sem hann hefur setið fyrir svörum hjá fulltrúum pólitískra fylkinga sem eiga sæti í Evrópusambandinu. Það er því talið nokkuð víst að hann taki við embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í næstu viku. Barroso talaði við fulltrúa hinna ýmsu ríkja á ensku, frönsku, spænsku, þýsku og portúgölsku, og þykir mun mælskari en Romano Prodi, fráfarandi forseti framkvæmdastjórnarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×