Erlent

Hefndarmorð á breskum hjónum?

Breska lögreglan rannsakar nú morð á hjónum sem voru skotin til bana á heimili sínu í Lincolnskíri í Bretlandi á sunnudaginn. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en talið er að morðin kunni að tengjast syni þeirra. Hann framdi morð í fyrra og var dæmdur í ævilangt fangelsi í síðasta mánuði. Talið er að hjónin hafi ef til vill verið myrt til að hefna fyrir morð sonarins. Lögregla neitar að tjá sig um málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×