Danskur þingmaður í gæsluvarðhald 20. október 2004 00:01
Danski þingmaðurinn, Flemming Oppfeldt, hefur verið úrskurðaður í þrettán daga gæsluvarðhald vegna gruns um að kynferðislega misnotkun á 13 ára dreng. Hann er einnig grunaður um að hafa margoft reynt að tæla unga drengi gegn greiðslu og jafnframt að hafa gert tilraunir til þess að kaupa karlmenn til vændis á Netinu. Krafist var gæsluvarðhalds til að ganga úr skugga að Oppfeldt gæti ekki eyðilagt lögreglurannsóknina. Í dönskum fjölmiðlum kemur fram að Oppfelt hafi játað fyrir rannsóknarlögreglu á þriðjudag að hafa haft samneyti við þrettán ára drenginn, en að hann hafi ekki talið að hann væri að gera nokkuð saknæmt. Hann segist hafa haldið að drengurinn hafi verið fimmtán ára. Í gær lýstu lögmenn Oppfeldts því yfir að hann neiti sök við ákærunum gegn honum. "Umbjóðandi minn er ekki barnaníðingur. Hann neitar sök," sagði lögmaður Oppfeldts. Lögreglan telur að Oppfeldt hafi komist í samband við unga drengi í gegn um spjallrásir á Netinu. Unglingsdrengurinn, sem sakar Oppfeldt um verknaðinn, segir að Oppfeldt hafi tælt sig inn í íbúð hans, þar sem hann hafi haft við hann mök. Oppfeldt var handtekinn á þriðjudag í kjölfar þess að danska þingið aflétti þinghelgi af honum. Þegar fjallað var um gæsluvarðhaldskröfuna fyrir dómi í gær kom í ljós að málið er talsvert umfangsmeira en talið var í fyrstu. Oppfeldt sagði sig úr vinstri flokknum á þriðjudag eftir að ásakanirnar komu fram. Hann hefur þó ekki látið eftir sæti sitt á þinginu. Hann gæti átt von á átta ára fangelsisdómi ef hann verður dæmdur sekur fyrir kynferðislega misnotkun á ungmenni. Danska lögreglan rannsakar nú fjögur heimilisföng sem tengjast þingmanninum. Einnig hefur lögreglan lagt hald á tölvur og tölvupóst í tengslum við málið.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Fleiri fréttir Önnur lestin fengið leyfi til að keyra áfram þrátt fyrir að vera á rauðu Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Sjá meira