Viðurkennir samband en neitar öðru 20. október 2004 00:01
Danski þingmaðurinn, sem var handtekinn í gær, viðurkennir ad hafa haft samband vid þrettán ára dreng á Internetinu, en neitar að hafa stundað kynlíf med honum. Danska lögreglan, sem nú yfirheyrir þingmanninn, telur ad hann hafi áður reynt ad setja sig í samband vid fleiri unga drengi og boðið þeim greiðslu fyrir kynlíf. Í sjónvarpsfréttum dönsku stöðvarinnar TV2 í gærkvöldi kom fram að þingmaðurinn væri grunaður um "annars konar kynferðislegt athæfi en samfarir", með þrettán ára dreng. Samkvæmt dönskum hegningarlögum er hámarksrefsing átta ár, fyrir að stunda kynlíf með barni yngra en fimmtán ára. Sé barnið yngra en tólf ára eða það þvingað til samræðis er hámarksrefsing tólf ár. Danska lögreglan segir að drengurinn sé frá Kaupmannahöfn en ekki fæst uppgefið hvort hann eða fjölskylda hans hafi tilkynnt meinta misnotkun. Þingmaðurinn Flemming Oppfeldt hefur sagt sig úr þingflokki Venstre. Hann var handtekinn eftir hádegið í gær, skömmu eftir að samþykkt hafði verið á danska þinginu að aflétta þinghelgi hans. Danska lögreglan segir þingmanninn hafa neitað sök við húsleit í íbúð hans í Kaupmannahöfn gær, en einnig var leitað á skrifstofa hans í þinginu í Kristjánsborg. Tölva þingmannsins er einnig til rannsóknar, vegna gruns um að hann hafi kynnst drengnum á netinu. Fréttastofa Rásar 3 danska ríkisútvarpsins, náði í Flemming í gær, tveimur tímum áður en hann var handtekinn. Þingmaðurinn vildi lítið segja, sagðist fyrst ætla að skýra mál sitt fyrir lögreglunni og svo almenningi. Aðstoðarmaður Flemmings lét loka einkaheimasíðu þingmannsins í gær, eftir að almenningur fór þar að láta skoðanir sínar í ljós, í kjölfar handtökunnar. Í viðtali við Ekstrabladet segir talsmaður netfyrirtækisins sem hannaði síðuna, að nokkur innlegg á spjallsvæði síðunnar hafi verið óviðeigandi og því hafi verið beðið um að henni yrði lokað.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Sjá meira