Öryggisventill þingræðinu 14. júní 2004 00:01 Lagasynjun forsetans - Hjörtur Einarsson, Neðri-Hundadal Ákvörðun forseta Íslands að nota málskotsrétt svo sem stjórnarskrá heimilar, hefir hlotið mikla umræðu og gert mörgum órótt í geði - einkum þeim sem eru forystumenn þjóðarinnar. Þeir eru þungt hugsi, telja að hér hafi skapast mikill vandi sem erfitt sé að sjá fyrir endann á, og nú þurfi að velja valinkunna lögfræðinga til að ráða fram úr vandanum. Þetta kom þeim í "opna skjöldu".Hálærðir menn eru hugsi - en gefa misjafnar skýringar, eru þeir allir valinkunnir?Það er eins og sumir menn sjái fleiri krókaleiðir á einföldu máli eftir því sem þeir hafa fleiri gráður menntunar - og/eða hærri stöður í þjóðfélaginu. Kann nokkur að skýra það, hvað veldur? Er þingræðið í hættu? Eða er því misboðið? Getur það verið að meirihluti Alþingis samþykki frumvarp sem þjóðin að meirihluta til er á móti! Það er varla trúlegt, ef slíkt kæmi fyrir er málskotsréttur forseta öryggisventill og ætti að vera kærkomið mál þingmeirihluta, því ekki vill þingmeirihlutinn vinna á móti sínu fólki, sínum kjósendum. Ef hins vegar málið er fellt í þjóðaratkvæði verður það aðvörun þingræðinu, því Alþingi er kosið af þjóðinni, og ef kjósendur eru ósáttir við sinn meirihluta á sá meirihluti ekki framtíð, það er varla trúlegt. Málskotsréttur forseta er því öryggisventill þingræðinu, enda sett í stjórnarskrá af vitrum og framsýnum mönnum fyrri tíðar. Þegar Alþingi er ljóst að málskotsréttur forseta er virkur eru líkur til að betur verði vandað til afgreiðslu mála frá Alþingi - í þá veru að ekki sé gengið á móti þjóðarvilja. En hvað hefur forsetinn gert - hefur hann varpað sprengju í málið? Hefur hann beitt pólitík? Það er varla hægt að saka hann um það. Hann hefur aðeins vísað málinu til þjóðarinnar eins og hann hefur rétt til, er það svona voðalegt? Hver á frekar að taka afstöðu til málsins en þjóðin sjálf? En hver er svo þessi mikli vandi, sem valdsmenn telja að skapast hafi, og hvernig má leysa þann vanda? Ákveða kjördag - sem eðlilega væri sama dag og forsetakosning fer fram, og ráðherra sá sem stjórnar kosningum láti gera kjörseðla sem sendir yrðu öllum kjörstjórnum um land allt. Þar með er málið búið. Úrslit tilkynnt eftir talningu jafnhliða úrslitum úr kosningu forseta. Afar einfalt mál - auðskilið og öllum augljóst sem geta lesið og skilið íslenskt mál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Sjá meira
Lagasynjun forsetans - Hjörtur Einarsson, Neðri-Hundadal Ákvörðun forseta Íslands að nota málskotsrétt svo sem stjórnarskrá heimilar, hefir hlotið mikla umræðu og gert mörgum órótt í geði - einkum þeim sem eru forystumenn þjóðarinnar. Þeir eru þungt hugsi, telja að hér hafi skapast mikill vandi sem erfitt sé að sjá fyrir endann á, og nú þurfi að velja valinkunna lögfræðinga til að ráða fram úr vandanum. Þetta kom þeim í "opna skjöldu".Hálærðir menn eru hugsi - en gefa misjafnar skýringar, eru þeir allir valinkunnir?Það er eins og sumir menn sjái fleiri krókaleiðir á einföldu máli eftir því sem þeir hafa fleiri gráður menntunar - og/eða hærri stöður í þjóðfélaginu. Kann nokkur að skýra það, hvað veldur? Er þingræðið í hættu? Eða er því misboðið? Getur það verið að meirihluti Alþingis samþykki frumvarp sem þjóðin að meirihluta til er á móti! Það er varla trúlegt, ef slíkt kæmi fyrir er málskotsréttur forseta öryggisventill og ætti að vera kærkomið mál þingmeirihluta, því ekki vill þingmeirihlutinn vinna á móti sínu fólki, sínum kjósendum. Ef hins vegar málið er fellt í þjóðaratkvæði verður það aðvörun þingræðinu, því Alþingi er kosið af þjóðinni, og ef kjósendur eru ósáttir við sinn meirihluta á sá meirihluti ekki framtíð, það er varla trúlegt. Málskotsréttur forseta er því öryggisventill þingræðinu, enda sett í stjórnarskrá af vitrum og framsýnum mönnum fyrri tíðar. Þegar Alþingi er ljóst að málskotsréttur forseta er virkur eru líkur til að betur verði vandað til afgreiðslu mála frá Alþingi - í þá veru að ekki sé gengið á móti þjóðarvilja. En hvað hefur forsetinn gert - hefur hann varpað sprengju í málið? Hefur hann beitt pólitík? Það er varla hægt að saka hann um það. Hann hefur aðeins vísað málinu til þjóðarinnar eins og hann hefur rétt til, er það svona voðalegt? Hver á frekar að taka afstöðu til málsins en þjóðin sjálf? En hver er svo þessi mikli vandi, sem valdsmenn telja að skapast hafi, og hvernig má leysa þann vanda? Ákveða kjördag - sem eðlilega væri sama dag og forsetakosning fer fram, og ráðherra sá sem stjórnar kosningum láti gera kjörseðla sem sendir yrðu öllum kjörstjórnum um land allt. Þar með er málið búið. Úrslit tilkynnt eftir talningu jafnhliða úrslitum úr kosningu forseta. Afar einfalt mál - auðskilið og öllum augljóst sem geta lesið og skilið íslenskt mál.
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun