Viðskipti innlent
Uppgjörssveiflur á gengi íslenskra hlutabréfa Ávöxtun hlutabréfa sem skráð eru í Kauphöll Íslands bera ákveðin sérkenni um hver mánaðamót, ársfjórðungamót og um áramót. Bréfin hækka að jafnaði umtalsvert í verði síðasta viðskiptadag hvers mánaðar en lækka svo aftur á fyrsta viðskiptadegi næsta mánaðar á eftir. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:45
Fasteignir og ferðamennska Wojciech Bachorski starfar hjá íslenska fyrirtækinu Betware sem er sérhæft í leikjalausnum af ýmsu tagi fyrir netið. Betware vinnur með fyrirtækjum víðs vegar um heim sem hafa leyfi til að reka ríkislottó. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins er til að mynda Íslensk getspá með vefsíðu sína. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:30
Jyske nær ekki Straumi Jyske Bank skilaði methagnaði í fyrra. Hagnaðurinn nam 33 milljörðum íslenskra króna og eru menn þar á bæ nokkuð ánægðir með árangurinn. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:15
Kaupa sex nýjar Airbus-breiðþotur Avion Aircraft Trading hefur gengið frá kaupum á sex nýjum Airbus A330-200 fraktvélum. Er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt fyrirtæki kaupir nýjar vélar frá Airbus. AAT er fjórða fyrirtækið í heiminum sem semur um kaup á þessari tegund véla. Er áætlað að þær komi á markað í ársbyrjun 2010 og verði afhentar AAT á árunum 2010 og 2011. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:15
Finnskan meiri ögrun Það vakti athygli á sínum tíma þegar Glitnir sem þá hét Íslandsbanki keypti norska BN bankann, að forstjórinn, Bjarni Ármannsson, mætti þar flugmælskur á norsku. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:00
Fremstir í Frakklandi Landsbanki hefur verið valinn fremsta greiningarfyrirtæki Frakklands í ítarlegri könnun rannsóknarfyrirtækisins StarMine. Í könnuninni, sem náði til fjögurra flokka, voru borin saman meðmæli og hagnaðarspár fyrir félög í CAC 40 vísitölunni og á markaði meðalstórra fyrirtækja. Kepler var eina fyrirtækið sem komst í hóp fimm efstu fyrirtækjanna í öllum flokkum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:00
Vefur FME endurnýjaður Fjármálaeftirlitið hefur opnað nýjan og endurbættan vef á vefslóðinni www.fme.is. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:00
Meiri hagnaður en öll fyrri ár 21. aldar Hagnaður Sparisjóðs Mýrar-sýslu (SPM) nam tæpum 1.458 milljónum króna í fyrra og jókst um 137 prósent á milli ára. Þetta er meiri hagnaður en sem nam öllum samanlögðum hagnaði áranna 2001-2005. Arðsemi eigin fjár var um 70 prósent á árinu 2006. Viðskipti innlent 7.2.2007 05:00
Blóðheitir Norðurlandabúar án ímyndar Simon Anholt, sérfræðingur í ímyndarmálum þjóða, kynnir rannsókn sína á Íslandi á Viðskiptaþingi 2007 sem Viðskiptaráð Íslands heldur í dag. Yfirskrift viðskiptaþings að þessu sinni er „Ísland – best í heimi?“ Óli Kristján Ármannsson ræddi við sérfræðinginn. Viðskipti innlent 7.2.2007 04:30
Hagnast á orðrómi Unity Investments, breskt fjárfestingarfélag í eigu FL Group, Baugs og Kevins Stanford, fyrrverandi eiganda fatakeðjunnar Karen Millen, hagnaðist um 2,7 milljarða króna með sölu á 1,26 prósenta hlut sínum í bresku verslanakeðjunni Sainsbury á föstudag í síðustu viku. Viðskipti innlent 7.2.2007 04:30
Ágæt afkoma á Bolungarvík Sparisjóður Bolungarvíkur skilaði 185 milljóna króna hagnaði árið 2006 og jókst um 68 prósent á milli ára. Arðsemi eigin fjár nam 20,2 prósentum samanborið við 12,7 prósent árið 2005. Viðskipti innlent 7.2.2007 04:15
Össuri spáð tapi Greiningardeildir bankanna spá allar að Össur skili tapi á fjórða ársfjórðungi reikningsársins. Össur skilar uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung í dag. Liggja afkomuspár bankanna á bilinu 210 til 310 milljóna króna taps á fjórðungnum. Viðskipti innlent 7.2.2007 04:00
Jafnvel í Sovét … „Jafnvel í Sovétríkjunum, þar sem ríkið sá um fjárfestingar, datt fáum í hug að kjósa um þær,“ skrifar Sigurður Jóhannesson hagfræðingur í nýjasta hefti Vísbendingar í grein um fyrirhugaðar kosningar í Hafnarfirði um stækkun álversins. Viðskipti innlent 7.2.2007 04:00
Tvöfalt fleiri í þrot Tvöfalt fleiri einstaklingar voru úrskurðaðir gjaldþrota í Bretlandi í fyrra en árið 2005, eða 107.000 á móti 67.500 árið á undan. Fjölmiðlar í Bretlandi segja ástæðuna fyrst og fremst liggja í skuldum almennings, sem hafi skuldsett sig upp fyrir haus á árinu. Viðskipti innlent 7.2.2007 03:45
Sunnlenskur samruni Sparisjóður Hornafjarðar og Sparisjóður Vestmannaeyja hafa runnið saman í eitt undir merkjum þess síðarnefnda. FME lagði fyrir skömmu blessun sína yfir samrunann sem miðast við 30. júni á síðasta ári. Viðskipti innlent 7.2.2007 03:30
Grætt á friði og spekt Janúar var eins og draumur í dós. Allt heppnaðist sem hugsast gat og maður bara farinn að undirbúa fríið í Florida með forstjórunum sem hópa sig eins og gæsir að hausti eftir ársuppgjörin og Viðskiptaþingið. Viðskipti innlent 7.2.2007 00:01
Avion Aircraft Trading kaupir sex Airbus-vélar Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus greindi frá því í dag að hann hefði náð samningum um sölu á sex A330-200 fraktflugvélum til Avion Aircraft Trading. Vélarnar verða afhentar á árunum 2010 til 2011. Ekki hefur verið greint frá kaupverði þeirra. Viðskipti innlent 6.2.2007 17:00
LÍ spáir tapi hjá Össuri Stoðtækjafyrirtækið Össur birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung í fyrra og síðasta rekstrarár á morgun. Landsbankinn spáir því að fyrirtækið skili tapi upp á 4,5 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 308,8 milljóna íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Viðskipti innlent 6.2.2007 16:43
LatCharter Airlines leigir Airbusþotu til Möltu LatCharter Airlines dótturfélag Loftleiða Icelandic hefur gert samning við ríkisflugfélagið Air Malta á Möltu um leigu á einni Airbus A320 þotu til tveggja ára. Verðmæti samningsins nemur einum milljarði króna. Viðskipti innlent 6.2.2007 16:14
Besta afkoman í sögu Icebank Icebank, sérhæfður viðskiptabanki í eigu sparisjóðanna, skilaði 5.662 milljóna króna hagnaði í fyrra samanborið við tæplega 2.400 milljónir króna árið á undan. Þetta jafngildir því að hagnaður bankans hafi aukist um 138 prósenta hækkun á milli ára. Þetta er besta afkoma í sögu bankans. Viðskipti innlent 6.2.2007 16:01
Moody's lækkar mat á Glitni Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika Glitnis úr C+ í C-. Einkunnin var tekin til athugunar með hugsanlega lækkun í huga í apríl í fyrra. Moody's hefur jafnframt staðfest lánshæfiseinkunnir Glitnis, sem eru A1/P-1 og segir horfur stöðugar. Viðskipti innlent 6.2.2007 15:53
Eskill flytur á Lyngháls Eskill ehf. hefur nú flutt starfsemi sína að Lynghálsi 9 þar sem móðurfélag fyrirtækisins, Kögun hf, er til húsa. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Eskill hafi orðið dótturfélag Kögunar í upphafi árs. Eskill ehf er hugbúnaðarhús og var stofnað í desember árið 1999. Viðskipti innlent 6.2.2007 11:15
Methagnaður Sparisjóðsins í Keflavík Sparisjóðurinn í Keflavík hagnaðist um 4,7 milljarða eftir skatta á síðasta ári. Þetta er aukning um 3,5 milljarða en árið 2005 var hagnaðurinn 1,2 milljarðar. Arðsemi eigin fjár var 124,5% á árinu og námu vaxtatekjur 4,2 milljörðum. Í tilkynningu til Kauphallar er haft eftir Geirmundi Kristinssyni að markaðsaðstæður hafi verið sparisjóðnum afar hagstæðar og gengishagnaður og tekjur af hlutabréfum og öðrum eignahlutum aukist til muna. Viðskipti innlent 6.2.2007 11:03
Glitnir færir sig til Finnlands Glitnir hefur eignast 68,1 prósent hlutafjár í finnska eignastýringarfyrirtækinu FIM Group og vill kaupa allt útistandandi hlutafé. Kaupverðið nemur 341 milljón evra, um 30 milljörðum króna, sem greiðist annars vegar með reiðufé og hins vegar með nýjum bréfum í Glitni. Viðskipti innlent 6.2.2007 06:30
Viðsnúningur á þessu ári Halli á vöruskiptum við útlönd nam 6,5 milljörðum króna í janúar samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands og 2,5 milljörðum minna en í fyrra mánuði þegar hann nam 9 milljörðum. Í janúar í fyrra nam hallinn 8,4 milljörðum króna. Viðskipti innlent 6.2.2007 06:15
Kaupamet verðbréfa slegið Árið 2006 var metár í kaupum á erlendum verðbréfum. Þetta kemur fram í gögnum frá Seðlabankanum og segir frá í Morgunkorni Glitnis. Á árinu voru erlend verðbréf keypt fyrir um 146 milljarða króna. Fyrra met féll árið 2005 þegar kaupin námu 123,5 milljörðum króna. Viðskipti innlent 6.2.2007 06:00
Refresco kaupir pólskan drykkjaframleiðanda Hollenski drykkjarframleiðandinn Refresco sem FL Group á 49% hlut í tilkynnti í dag að það hefði keypt pólska drykkjarframleiðandann Kentpol. Þetta er fyrsta yfirtaka Refresco í Austur-Evrópu. Viðskipti innlent 5.2.2007 16:28
FIM hækkar um 30% Gengi hlutabréfa í finnska fjármálafyrirtækinu FIM Group hækkaði um þrjátíu prósent í Kauphöllinni í Helsinki í dag eftir að Glitnir greindi frá því að bankinn hefði eignast yfir 68 prósent hlutafjár og stefndi að yfirtöku á öllu félaginu. Viðskipti innlent 5.2.2007 14:24
Fitch staðfestir lánshæfismat Glitnis Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir Glitnis eftir kaup bankans á finnska félaginu FIM Group. Fitch gefur Glitni langtímaeinkunnina A, skammtímaeinkunnina F1, óháðu einkunnina B/C og stuðningseinkunnina 2. Horfur lánshæfiseinkunna Glitnis eru stöðugar, að mati Fitch. Viðskipti innlent 5.2.2007 10:06
Kaupþing gefur út skuldabréf í Kanada Kaupþing hefur gefið út skuldabréf í Kanada fyrir 500 milljónir kanadadala, eða sem svarar til tæpra 30 milljarða íslenskra króna. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að þetta sé í fyrsta sinn hann gefi út skuldabréf þar í landi en þau eru til þriggja ára og bera 4,7 prósenta fasta vexti. Viðskipti innlent 4.2.2007 15:58
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent