Skoðun

Að brúa bil: Hlutverk pólitískrar orðræðu í félagslegri samheldni
Á meðan ég vann að gerð námskeiðs um menningarnæmi og inngildingu fylltist ég tilfinningu um hversu aðkallandi þessi námskeið væru. Mín upplifun og reynsla er að ég er alltaf beðin um að flytja þessi námskeið fyrir fólk sem hefur þegar lagt af stað við að skilja og vinna með eigin viðhorf um fjölbreytileika og inngildingu.

Hið gleymda helvíti á jörðu
Óhætt er að segja að hryllilegt neyðarástand ríki í Súdan. Í rúmt ár hafa herforingjar barist um völdin í landinu með skelfilegum afleiðingum. Morgunblaðið hefur ítrekað vakið athygli á stöðunni og í liðinni viku var ítarleg umfjöllun um ástandið í Ríkisútvarpinu.

Skilur Guðlaugur Þór orkumál?
Í ræðustól á Alþingi í janúar síðastliðnum hélt Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, því fram að þjóðin væri í vanda því við hefðum „ekki gert neitt í 15 ár þegar kemur að raforkunni“. Þetta hefur hann endurtekið ítrekað í fjölmiðlum og greinum og aðrir apað upp eftir honum.

Vindur í eigu þjóðar
Á flokksráðsfundi okkar Vinstri grænna sem haldinn var í Reykjanesbæ um liðna helgi var ítrekað mikilvægi þess að mörkuð verði stefna um nýtingu vinds til orkuöflunar á Íslandi. Við viljum að tryggt sé að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar og að ströng skilyrði séu fyrir nýtingu þessa kostar. Vindorkuver geta haft veruleg áhrif á landslag, lífríki og lífsgæði fólks í nærsamfélaginu.

Neyðarástand í boði Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar
Þá hafa „snillingarnir“ á Svörtuloftum haldið upp á eins árs afmæli okur-stýrivaxtanna og klappað sjálfum sér á bakið með því að ákveða að viðhalda þeim um fyrirsjáanlega framtíð.

Forvarnir gegn ofbeldi: Samfélagsátak í upphafi skólaárs
Haustið hefur alltaf verið uppáhalds tími ársins hjá mér. Það er eitthvað við það þegar nýtt skólaárs hefst og loftið fyllist af spennu og tilhlökkun fyrir nýju upphafi, nýjum vinum og nýjum tækifærum. Haustið er hinsvegar líka mikilvægur tími til að einbeita sér að því sem er kannski minna sýnilegt en alveg jafn mikilvægt: forvörnum gegn ofbeldi.

Bjartsýnt og betra samfélag
Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu í dag samkomulag um uppfærðan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Samkomulagið felur í sér uppbyggingu á samgönguinnviðum og eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2040. Þetta er stór dagur og mikilvægur. Framtíðarsýn um uppbyggingu samgöngumannvirkja var undirrituð 2019 en nú, fimm árum síðar, höfum við enn betri áætlanir, nákvæmari fjárfestingarplön og raunhæfari tímaramma.

Það er alltaf von: Samtökin ‘78 styðja Píeta
Við erum öll svo dýrmæt og hvert eitt og einasta okkar skiptir máli, þó að stundum kunni okkur að líða eins og svo sé ekki. Þetta einstaka dýrmæti hvers okkar þýðir að hvert sjálfsvíg heggur stórt skarð í líf þeirra sem eftir standa og áhrifin ná langt út fyrir innsta hring hvers einstaklings.

Lítil grein um stóran sáttmála
Í dag var undirritað samkomulag ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppfærðan samgöngusáttmála. Með þessari undirritun er staðfest sú framtíðarsýn sem birtist í samgöngusáttmálanum sem ég hafði sem samgönguráðherra forystu um árið 2019 og hjó á harðan hnút í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.

Það er komið að okkur!
Uppfærsla hins svokallaða Samgöngusáttmála felur í sér jákvætt skref fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Mikilvægar samgöngubætur verða fjármagnaðar og stórt skref er stigið til að bæta almenningssamgöngur. Það var kominn tími til.

Nýtt viðhorf í húsnæðismálum
Húsnæðismál hafa lengi verið eitt brýnasta verkefni samfélagsins okkar, en aldrei hefur þörfin verið jafn mikil og nú fyrir nýjar lausnir.

Fór út fyrir umboð sitt
Haustið 2012 fór fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt var hvort vilji væri fyrir því að tillögur stjórnlagaráðs yrðu „lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá“. Var það samþykkt með atkvæðum tæplega 31% kjósenda á kjörskrá en kjörsókn var einungis 48,4%. Frumvarpið var í kjölfarið lagt fram á Alþingi en náði hins vegar ekki fram að ganga áður en þingkosningar fóru fram næsta vor.

„Áhrifavaldar“ og „Sauðirnir“ sem fylgja þeim
Hver er áhrifavaldurinn í þínu lífi? er oft spurt, hér áður voru þetta oftast nánustu ættingjar, kennarar og baráttu fólk þá oftast fyrir mannréttindum bæði hér heima og erlendis.

„...nema sveitarstjórnir og lögregla“
Það hefur verið nokkuð um það hjá ráðherrum og þingmönnum að fara með þá möntru að það séu lög í landinu sem allir verði að fara eftir. En er það þannig?

Sjónarhornið er það sem skiptir mestu
Eftir að Ólympíuleikarnir í París kláruðust hef ég haft tíma til að gera upp tímabilið, taka skref til baka, líta um öxl og greina þá vegferð sem ég hef verið á linnulaust seinustu ár. Ýmsar hugleiðingar hafa dúkkað upp en sú stærsta snýr að hvernig maður verður sáttur við það sem hefur verið áorkað?

Ég er eins og ég er
Nú gengur nýtt skólaár í garð. Börn og unglingar setjast á skólabekk, þau hafa jú ekkert um það að segja því almenn skólaskylda er á landinu.

Brúin yfir Fossvog
Borgarlínubrúin Alda yfir Fossvog er Gaga frá upphafi til enda.

Kominn tími til að laga lýðræðishallann og skapa traust til stjórnmálanna
Vindmyllur eða ekki vindmyllur, sjókvíaeldi eða ekki sjókvíaeldi, álver eða ekki álver, gagnaver eða ekki gagnaver, skógrækt sem leið til kolefnisjöfnunar og viðskipti með kolefniseiningar eður ei.

Var jafnrétti í heiðri haft af ráðherra jafnréttismála?
Með ákvörðun forsætisráðherra að flytja jafnréttis- og mannréttindamál frá forsætisráðuneytinu yfir á málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins er félags- og vinnumarkaðsráðherra falin yfirstjórn á sviði jafnréttismála. Mun breytingin taka gildi þann 1. september nk.

Má fjársýslan semja við Rapyd?
Bæði ísraelsk yfirvöld og vopnaðir hópar Hamas og Palestínumanna hafa, síðan frá 7. október, gerst sek um stríðsglæpi og önnur alvarleg brot á alþjóðalögum samkvæmt nýlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Alvarlegastir eru þeir fjölmörgu glæpir sem hafa beinst að eða bitnað verst á börnum.

Gulldrengir Landspítala (Ekki KSÍ): Sönn saga um spillingu
Á Landspítala sjúkrahúsi allra landsmanna lúta menn öðrum lögum en hinir óbreyttu. Þar ríkir hin sanna gullna klefamenning. Í þessari grein átelur greinahöfundur einkum tvö meginatriði.

Byggja upp eða pakka?
Flokksráðsfundur VG umhelgina sendi frá sér ályktun um málefni Palestínu og stríðið á Gasa þar sem ákvörðun Bjarna Ben, þáverandi utanríkisráðherra, um að frysta framlög til UNRWA var gagnrýnd og hvatt til vopnahlés. Ályktunin kom mér, sem fyrrverandi félaga í VG, kunnuglega fyrir sjónir og var ég ekki lengi að finna út af hverju.

Loftslagsaðgerðir í sátt við líffræðilega fjölbreytni
Mikil umræða er búin að vera í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum um skógrækt til kolefnisbindingar í mólendi í Saltvík við Húsavík.

Oft er ekki nægjanleg mönnun til þess að sinna félagslífi/tómstundum
Ég var með verkefni í gangi fyrir örfáa vini í Mosfellsbæ fyrir nokkrum árum sem hét tómstundarvinir og markmið þess var að veita fötluðu fólki félagsskap sem hafði ekki rétt á liðveislu/liðveitanda/tómstundarstuðningi eftir að það var komið í búsetuúrræði. Ég fór þá með þeim í bíó og var með þeim á allskonar skemmtunum.

Verði ykkur að trú ykkar! Vangaveltur um stóra kirkjugarðsmálið
Verði ykkur að trú ykkar! sagði Jesús, eins og lesa má í guðspjalli Matteusar (sbr. Matt 9.27-31). Hver er trú okkar, hvað er fólgið í henni og hverju getur hún komið til leiðar?

Ráðvilltur ráðgjafi ríkisstjórnar
Konráð S. Guðjónsson, nýlega ráðinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, skrifar skoðunargrein sem birtist á Vísi 16. ágúst sl. Fyrirsögnin er 10 staðreyndir um verðbólgu og ríkisfjármál, sem gæti bent til þess að greinin fjallaði á skipulegan hátt um gögn sem vörðuðu verðbólgu og ríkisfjármál hér á landi og hugsanlega í útlöndum líka. En svo er ekki.

Ímyndaðu þér að þú sért átján ára stúlka...
Ímyndaðu þér að þú sért 18 ára stúlka. Þú býrð í Súdan, þriðja stærsta ríki Afríku, og þó að átök hafi verið viðvarandi í landinu nánast allt þitt líf, þá hefur líf þitt samt verið nokkuð eðlilegt.

Hvað eiga lýðræði og hátíðarhöld sameiginlegt
Á Norðurlöndunum er löng hefð fyrir lýðræðishátíðum, sumarviðburðum þar sem fjöldi fólks kemur saman á fallegum stöðum utan höfuðborganna til að ræða mikilvæg málefni. Elst þessara hátíða er Almedals-vikan sem haldin er á eyjunni Gotlandi í Svíþjóð en hin löndin hafa öll fylgt í kjölfarið.

Stjórnartíðindi 150 ára
Stjórnartíðindi er ein lengstútgefna ritröðin gefin út hér á landi sem enn kemur út á hverju ári. Þó það kunni að hljóma skringilega er búist við að almenningur viti hvað stendur í Stjórnartíðindum, en í raun má ætla að fæstir Íslendingar hafi í raun flett upp í ritinu.

Í skólabyrjun
Nú þegar skólabyrjun nálgast er í ýmsu að snúast bæði hjá börnum og fullorðnum. Oft á tíðum er skólabyrjun tími mikilla breytinga hjá börnum og allskyns tilfinningar sem geta fylgt því. Sum eru spennt yfir því að byrja í skólanum og hitta skólafélaga og kennara.