Lífið

Vel skipuð dómnefnd

Leikstjórarnir Grímur Hákonar­son, Guðný Halldórsdóttir og Óskar Jónasson verða í dómnefnd um bestu stuttmyndina í stuttmynda- og

Lífið

Ósköp venjulegt brúðkaup

Þrátt fyrir fréttir um vikulanga brúðkaupsveislu Katy Perry og Russells Brand á Indlandi og þrátt fyrir að hún skjóti rjóma út úr brjóstahaldaranum sínum í myndböndum og að hann sé yfirlýstur kynlífsfíkill þá á brúðkaup þeirra að vera ósköp venjulegt.

Lífið

Ragga Gísla og Bó starfa saman eftir þrjátíu ára hlé

„Ég ætla aðeins að tékka á Bó,“ segir Ragnhildur Gísladóttir, sem verður einn af gestum Björgvins Halldórssonar á jólatónleikum hans í desember. Heil þrjátíu ár eru liðin síðan leiðir þeirra lágu síðast saman í hinum smáa íslenska tónlistarbransa, við plötuna Dagar og nætur. Ragnhildur fór ekki fögrum orðum um samstarfið við Björgvin í Poppbókinni eftir Jens Guð

Lífið

Dúndur partý fyrir barnafólk

Útgáfupartý Foreldrahandbókarinnar sem Þóra Sigurðardóttir skrifaði var haldið í bókabúð Máls og Menningar á Laugavegi í gærkvöldi. Á myndunum má sjá gesti og í meðfylgjandi myndskeiði segir Þóra okkur frá innihaldi bókarinnar og hvernig henni gengur að takast á við móðurhlutverkið en hún eignaðist sitt annað barn fyrir tveimur mánuðum. „Já maður sefur minna. Að eiga eitt barn er bara sætt og lítið hobbý..." segir Þóra meðal annars þegar talið berst að því hvort munur sé á að eiga eitt eða tvö börn.

Lífið

Aðeins skárra en ég bjóst við - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá tvær af aðalleikkonum myndarinnar Órói sem frumsýnd var í gærkvöldi, Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur og Birnu Rún Eiríksdóttur ræða um myndina og hvernig þær fengu hlutverkin í veislu sem haldin var fyrir leikara og aðstandendur myndarinnar í gærkvöldi eftir frumsýninguna. „Þetta var aðeins skárra en ég bjóst við að það yrði samt. Ég hélt ég yrði stressaðri," sögðu þær meðal annars. Hér má sjá myndir úr veislunni.

Lífið

Ósáttur Arnett

Leikarinn Will Arnett hvetur aðdáendur sína til að taka þátt í undirskriftasöfnun til bjargar nýjasta sjónvarpsþætti sínum. Þátturinn, Running Wilde, fór í loftið í síðasta mánuði en hlaut fremur dræmt áhorf.

Lífið

Eftirpartý Óróa

Meðfylgjandi myndir voru teknar í eftirpartý kvikmyndarinnar Óróa í leikstjórn Baldvins Z eftir frumsýninguna sem fram fór í gærkvöldi. Myndin er byggð á unglingabókum Ingibjargar Reynisdóttur, Strákarnir með strípurnar og Rótleysi, rokk og rómantík, sem hafa notið mikilla vinsælda. Ingibjörg sem sjá má á myndu ásamt leikurum og vinum og vandamönnum er handritshöfundur Óróa ásamt Baldvini. Hún fer einnig með hlutverk í myndinni.

Lífið

Magga Maack í nýju hlutverki

„Þetta byrjaði eiginlega þegar ég var að taka viðtal við Jónas fyrir Kastljós. Við fórum að tala um hvað hamingjan er hættuleg. Jónas lýsti því yfir að hann væri svo hrifinn af Bollywood-myndum þar sem hamingjan er allsráðandi og mikilfengleg,“ segir Margrét Erla Maack fjölmiðlakona.

Lífið

Konfekt fyrir sálina - myndband

Listasafn Reykjavíkur og Skotturnar, regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi hafa ruglað saman reitum og skipulagt dagskrárveislu sem hefur verið nokkurs konar upptaktur fyrir kvennafrídaginn 25. október. Margar af fremstu listakonum landsins hafa komið og munu koma fram í dagskrá sem fram fer á Kjarvalsstöðum daglega frá kl. 12:30 - 13:00. Í meðfylgjandi myndskeiði segja leikkonan og verkefnastjóri viðburðarraðarinnar Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir og leikkonan Alexía Björg Jóhannesdóttir sem er hluti af leikhópnum Pörupiltar frá dagskránni á morgun og laugardag. Listasafn Reykjavíkur (dagskráin/aðgangur ókeypis). Facebooksíða - Fjöldasamstaða kvenna.

Lífið

Tappað af Jakobi Frímanni

„Sennilega er viss skynsemi fólgin í því að tappa af mér áður en það fennir mikið yfir fortíðina,“ segir Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og miðborgarstjóri, aðspurður en frést hefur að rithöfundurinn Þórunn E. Valdimarsdóttir hafi undanfarið rakið garnirnar úr Jakobi og fest á blað minningar hans frá litríkri ævi.

Lífið

Nani og Meireles í stuði á Tapasbarnum eftir leikinn

Portúgölsku landsliðsmennirnir Nani og Raul Meireles heilsuðu upp á starfsfólk Tapasbarsins eftir landsleik Íslands og Portúgals á þriðjudagskvöldið. Portúgalski hópurinn flaug til Lissabon eftir leikinn en Nani og Meireles, sem leika á Englandi, flugu ekki fyrr en í gærmorgun. Þeim gafst því stund milli stríða.

Lífið

Maður er konu úlfur

Blóðhófnir er besta ljóðabók Gerðar Kristnýjar. Meitlaður texti sem talar til lesandans á mörgum sviðum. Lestrarnautn.

Gagnrýni

Eurovision í Dusseldorf

Úrslit næstu Eurovision-keppni verða haldin í Düsseldorf í Þýskalandi á næsta ári. Fjórar borgir sóttu um að halda keppnina og bar Düsseldorf sigurorð af Berlín, Hamborg og Hannover. Um þrjá viðburði í beinni útsendingu verður að ræða. Undanúrslitin verða 10. og 12. maí og úrs

Lífið

Ráðin í The Raven

Hin ungu og upprennandi Alice Eve og Luke Evans eru í viðræðum um að leika á móti John Cusack í spennumyndinni The Raven sem er byggð á samnefndu ljóði Edgars Allans Poe. Leikstjóri er James McTeigue sem hefur á ferilskránni myndirnar V for Vendetta og Ninja Assassin.

Lífið

Skipað að fara á spítala

Leikkonan Juliette Lewis, 37 ára, sem slasaðist í árekstri í síðustu viku eftir að ökumaður keyrði á hana en stakk síðan af neitaði að fara á sjúkrahús eftir áreksturinn. Hún slasaðist ekki alvarlega en viðurkenndi að hún fann fyrir verkjum eftir áreksturinn þar sem hún var farþegi. Sannfæra þurfti Juliette um að fara á spítala en hún neitaði því hún gat ennþá gengið eftir áreksturinn þrátt fyrir eymslin sem hún fann fyrir. Sjúkraflutningarmennirnir sem komu á staðinn sögðu við mig: Við skiljum fólk ekki eftir eftir svona harðan árekstur. Þú verður að koma með okkur á spítalann til að láta skoða þig. Þeir sannfærðu mig og ég gaf eftir," útskýrði Juliette. Hún viðurkennir að hún hugsi oft um áreksturinn. Ég get ekki hugsað mér að lýsa honum. Þetta var hræðilegt ég er ennþá hálfringluð," sagði hún. Slysið minnti mig á að hugsa um litlu hlutina sem skipta svo miklu máli. Ég fór strax og hitti fjölskylduna mína og vini eftir þetta."

Lífið

Ég kyssti gaur

Gavin Rossdale, söngvari hljómsveitarinnar Bush og eiginmaður Gwen Stefani, hefur viðurkennt að hafa átt í ástarsambandi við karlkyns klæðskipting á níunda áratugnum. „Ég vildi ekki að þetta myndi hafa áhrif á Bush,“ sagði hann nýlega í viðtali.

Lífið

Fólkið á frumsýningunni

Leikritið Fólkið í kjallaranum var frumsýnt í Borgarleikhúsinu um síðustu helgi. Verkið er byggt á verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur en leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Fullt hús var á frumsýningunni og var leikurum og aðstandendum vel tekið.

Lífið

Ætlar að njóta tilverunnar að fullu

Leikkonan Christina Ricci, 30 ára, ætlar að hætta að leika áður en hún verður gömul. Christina ætlar að njóta lífsins eins vel og hún getur. Hún er staðráðin í að hætta að leika og slaka aðeins á áður en hún verður gömul. Hún vill stofna fjölskyldu og koma sér vel fyrir. Ég ætla ekki að vinna þangað til ég verð sjötug og ég ætla ekki að hafa áhyggjur af útlitinu í ellinni. Eina sem ég stefni að er að njóta tilverunnar að fullu. Njóta þess að eldast, eignast börn og barnabörn og hunda," sagði Christina. Christinu má skoða í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Óútgefin lög frá Weezer

Hljómsveitin Weezer sendir í byrjun nóvember frá sér plötuna Death to False Metal. Platan inniheldur óútgefin lög sem voru samin og tekin upp á síðustu tveimur áratugum. Og já. Platan heitir í alvöru Death to False Metal og þetta er í alvöru umslagið hér til hliðar.

Lífið

Leita að stúlkum til að bera brjóstin

„Ég veit ekki hvort það sé rétt að segja að við ætlum að ganga lengra – en við ætlum að halda okkar striki,“ segir Nana Alfreðsdóttir, söngkona hljómsveitar­innar Elektru.

Lífið

Unglingar eru gersemar

Órói er fyrsta kvikmynd Baldvins Z í fullri lengd. Reynsla hans af starfi með erfiðum unglingum á Akureyri kom að góðum notum við gerð myndarinnar. Kvikmyndin Órói í leikstjórn Baldvins Z verður frumsýnd á morgun á vegum Kvikmyndafélags Íslands. Hún er byggð á unglingabókum

Lífið

Óttast ekki hlýjan býflugubúning

„Þetta er rosalega fyndinn búningur en hann er mjög hlýr,“ segir Steinn Ármann Magnússon sem leikur Fúsa Bý í söngleiknum Dísa ljósálfur sem verður frumsýndur í Austurbæ annan laugardag.

Lífið

Súpermódel segir kærastanum upp

Kanadíska súpermódelið Linda Evangelista, 45 ára, er á lausu en hún sagði upp kærastanum , sem er maðurinn á bak við Hard Rock Café-hugmyndinan, Peter Morton, 64 ára, eftir fjögurra ára samband. Sagan segir að þau náðu ekki sáttum um hvar þau ættu að búa. Samkvæmt heimildarmanni vildi Peter búa í Los Angeles en Linda í Kanada eða New York. Parið trúlofaðist í fyrra þrátt fyrir að fjölskylda Peter var ekki par hrifin af hugmyndinni. Þau kynntust þegar Linda var ófrísk af syni hennar, Augustin, árið 2006, en enginn veit hver faðirinn er. Fjölmiðlafulltrúi Lindu hefur aldrei viljað ræða við fjölmiðla með hverjum hún á dregninn en eitt er vitað og það er að áður en hún kynntist Peter átti hún í ástarsambandi við fótboltastjörnuna Fabian Barthez og líka leikarann Kyle MacLachlan.

Lífið

Yoko keypti afmælisgjöf hjá Gilbert úrsmið

Yoko Ono keypti úr hjá Gilbert úrsmið sem hún gaf syni sínum, Sean Lennon, í afmælisgjöf. Sean varð 35 ára 9. október, á 70 ára fæðingarafmæli föður síns heitins, John Lennon. John fagnaði því 35 ára afmæli sínu sama dag og Sean fæddist.

Lífið

Hugleikur í flottum selskap

Aaron Sorkin er handrits­höfundur The Social Network sem er komin í kvikmyndahús hérlendis. Fréttablaðið hitti hann á blaðamannafundi í París þar sem hann ræddi um Facebook, einkalíf og eiturlyfjanotkun sína. Bandaríkjamaðurinn Aaron Sorkin er handritshöfundur The Social Network sem fjallar um stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, og málshöfðanir gegn honum skömmu eftir að þessi vinsæla síða var stofnuð.

Lífið

Einkaþota og risaskjáir

Tónlistarunnendur hafa beðið spenntir eftir Iceland Airwaves-hátíðinni sem er nýhafin. Fjölmargar erlendar hljómsveitir streyma til landsins og kröfur þeirra eru stundum óraunhæfar.

Lífið

Dulúð og drama

Heildstætt verk þar sem áhorfinn gleymir sér í heillandi goðsagnaheimi. Nokkrir hnökrar setja þó strik í reikninginn.

Gagnrýni

Airwaves í símanum

Tónleikagestir á Iceland Air­waves geta í fyrsta sinn í ár fengið að fylgjast með ýmsu sem tengist þessari tónlistarhátíð í gegnum símann sinn. Þeir geta fylgst með biðröðum í gegnum farsímann sinn, fengið strikamerki í símann sem geymir upplýsingar um hljómsveitir, viðburði og fleira, notað smáforrit sem leiðir þá á réttan tónleikastað og fengið áminningu í símann áður en tónleikar hefjast.

Lífið