Lífið
Treysti sér alveg til að fara í upplestrarferð um Þýskaland „Þetta verður ein af sprengjum ársins 2012," segir Andreas Paschedag, útgáfustjóri þýska forlagsins Aufbau. Hann hefur samið við Forlagið um útgáfurétt á spennusögunni Martröð millanna eftir Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóra Fréttatímans og fyrrverandi fréttastjóra Stöðvar 2. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, segir mikinn áhuga hafa verið á bókinni eins og komið hafi fram í fjölmiðlum en að endingu hafi það verið Aufbau sem hreppti hnossið. Lífið 18.12.2010 20:30
Blómaskreytir drápsvélar „Það eru tuttuguogsjö listamenn sem taka þátt í þessari sýningu og rýmið er lítið þannig það er þröngt á þingi,“ segir listamaðurinn Davíð Örn Halldórsson um samsýninguna Star Wars 2 sem opnaði í Gallerí Crymo í gær. Sýningin var sett upp í tilefni þrátíu ára afmæli kvikmyndarinnar The Empire Strikes Back. Lífið 18.12.2010 17:00
The Game hættir við vegna flughræðslu „The Game neitaði að taka á loft í þessum veðuraðstæðum,“ segir Arnviður Snorrason, best þekktur sem Addi Exos. Til stóð að Addi myndi halda tónleika með bandaríska rapparanum The Game á Broadway í kvöld. Tónleikunum hefur verið aflýst, þar sem rapparinn var gripinn flughræðslu í síðustu viku. Lífið 18.12.2010 16:15
Hjaltalín í fjórða sæti hjá Clash Hljómsveitin Hjaltalín er í fjórða sæti yfir bestu nýliða ársins 2010 í nýjasta hefti breska tónlistartímaritsins Clash. „Þessi peysuklæddu ungmenni stóðu á krossgötum fyrir nokkrum árum og vissu ekki hvernig þau ættu að ná eyrum útlendinga. Þau réðu hina mögnuðu söngkonu Siggu Thorlacius, fengu strengjasveit lánaða og tóku upp plötuna Terminal,“ segir í Clash. Lífið 18.12.2010 13:00
Heiðra Keith Richards á 67 ára afmælisdaginn Hljómsveitin Stóns flytur lög Rolling Stones og þykir gríðarlega öflug á því sviði. Hljómsveitin hyggst heiðra hinn ódrepandi Keith Richards í kvöld, en hann fagnar 67 ára afmælinu sínu í dag. Lífið 18.12.2010 12:00
Það er náttúrulega sturlun að hlaupa stanslaust í 24 tíma Gunnlaugur Júlíusson maraþonhlaupari hleypur í 24 tíma á bretti í World Class í Kringlunni í dag. Hvað 24 tíma hlaup á bretti varðar þá hefur enginn Íslendingur tekist á við það fyrr. Gunnlaugur varð fyrstur Íslendinga til að hlaupa 100 km hlaupi á bretti fyrir ári síðan í World Class í Laugum. Norðurlandametið í 24 tíma hlaupi á Kim Rasmussen frá Danmörku en hann hljóp 202,9 km árið 2004. Einn Norðmaður hefur hlaupið 24 tíma á bretti en það er Lars Sætran sem hljóp 193 km árið 2003. Sænska metið er 181 km sett fyrr á þessu ári af Hans Byren. Það sem best er vitað hefur enginn Finni hlaupið 24 tíma á bretti. Allir sem hafa áhuga á að fylgjast með Gunnlaugi eru velkomnir á staðinn hvenær sem er meðan á hlaupinu stendur. Hlaupið hefst kl.12:00 í dag, laugardag, 18.desember í World Class í Kringlunni 1 og er það jafnframt formleg opnun á 24 stunda opnun 7 daga vikunnar á Heilsurækt World Class í Kringlunni. Nánari upplýsingar er að finna á www.worldclass.is. Lífið 18.12.2010 11:07
Eva Mendes vildi verða nunna Stærsti draumur Evu Mendes sem barn var að verða nunna svo hún gæti keypt hús handa móður sinni. Leikkonan vildi helga líf sitt kaþólsku kirkjunni en henni snerist hugur þegar hún komst að því að nunnur fengu ekki greitt fyrir starf sitt. Lífið 18.12.2010 10:30
21 hönnuður sýnir á RFF Íslenskir tískuunnendur eiga von á góðu þegar Reykjavík Fashion Festival verður sett 31. mars. Erlendir fjölmiðlar sýna íslensku tískuhátíðinni mikinn áhuga. Tíska og hönnun 18.12.2010 09:00
Jólatónleikar hjá ADHD Hinir árlegu jólatónleikar hljómsveitarinnar ADHD fara fram í Þjóðmenningarhúsinu á sunnudaginn klukkan 17. Ásamt því að leika efni af samnefndri plötu sinni sem var kosin djassplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, ætla þeir félagar að telja í glænýtt efni sem áætlað er að gefa út snemma árs 2011. Upptökur á þeirri plötu fara fram í Vestmannaeyjum í febrúar. „Leynigestur“ á tónleikunum á sunnudag verður saxófónleikarinn Rúnar Georgsson. „Hann er algjör snillingur og mikill lærifaðir minn,“ segir Óskar Guðjónsson úr ADHD og lofar skemmtilegum tónleikum. - fb Lífið 18.12.2010 06:00
Sit við sauma Elísabet Björgvinsdóttir hannar og saumar skóhlífar undir heitinu Babette, sem er nafnið hennar á frönsku. Tíska og hönnun 18.12.2010 06:00
Leyndardómar fortíðar Haganlega skrifuð saga sem líður fyrir heldur þunglamalega fléttu. Gagnrýni 18.12.2010 06:00
Nicole bauð Paris ekki í brúðkaupið Nicole Richie bauð fyrrverandi bestu vinkonu sinni, glamúrdrottningunni Paris Hilton, ekki í brúðkaup sitt og Joel Madden í dag. „Við vildum fagna áfanganum með fólkinu sem við elskum og þykjum vænt um,“ sagði Richie í viðtali við erlent slúðurtímarit. Lífið 18.12.2010 05:30
Níutíu tónleikar á einu ári Sóley Stefánsdóttir og félagar í hljómsveitinni Seabear lentu í ýmsum ævintýrum á tónleikaferðalögum sínum á árinu. Þau hittu meðal annars hjón sem kváðust hafa gift sig við tóna sveitarinnar. Lífið 17.12.2010 23:15
George Michael í ameríska X-Factor Hin ofurskakka poppstjarna George Michael verður einn af þremur dómurum í amerísku útgáfunni af X-Factor. Keppnin um hæfileikaríkasta Ameríkanann verður því hörð á næsta ári. Lífið 17.12.2010 21:15
Sandra Bullock valin kona ársins og Elin verðlaunuð Bandaríska blaðið People hefur tekið saman lista yfir það besta á árinu. Sandra Bullock og Elin Nordegren eru í góðum félagsskap. Lífið 17.12.2010 20:00
Hallar sér að flöskunni Leikarinn David Arquette viðurkennir að hafa drekkt sorgum sínum í áfengi eftir að hann skildi við eiginkonu sína og leikkonuna Courtney Cox. Þetta kom fram í viðtali við hinn þekkta útvarpsmann Howard Stern en Arquette vildi ekki fara út í smáatriði en sagði að hann hefði þurft að leita sér hjálpar vegna áfengisnotkunar. Lífið 17.12.2010 19:30
Gosling hjólar í Hollywood Leikarinn Ryan Gosling hvetur kollega sína í leikarastéttinni til að fá sér alvöruvinnu með leikarastarfinu. Hann telur að Hollywood væri betur sett ef leikarar tækju sér hvíld frá frægð og frama milli verkefna og færu út á hinn almenna vinnumarkað. Lífið 17.12.2010 18:00
Hugh Grant huggar Liz Hurley Breska blaðið Daily Mirror greinir frá því í gær að breska fyrirsætan Liz Hurley hafi eignast óvæntan hauk í horni. Á miðvikudaginn hafi fyrrverandi kærasti hennar, Hugh Grant, kíkt í heimsókn og gefið henni nokkur heilræði. Hurley var þá nýbúin að sækja son sinn Damien úr skóla og mun Hugh hafa dvalið á heimili þeirra í hálftíma en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er Hurley skilin við indverskan eiginmann sinn, Arun Nayar. Lífið 17.12.2010 17:00
Nýtt myndband Klassart frumsýnt á Vísi Vísir frumsýnir hér nýtt myndband með hljómsveitinni Klassart við lagið Þangað til það tekst. Lífið 17.12.2010 16:30
Biðin loks á enda Ýr Þrastardóttir frumsýnir fyrstu fatalínu sína í kvöld. Hún vakti mikla athygli fyrir útskriftarlínu sína frá fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands síðasta vor og er nú farin að hanna undir nafninu Ýr. Lífið 17.12.2010 15:37
Hverfisbarinn breytist í Bankann „Við erum búnir að taka þetta allt í gegn og við ætlum að rífa þennan stað upp og gera hann vinsælan,“ segir Mikael Nikulásson veitingamaður. Skemmtistaðurinn Bankinn verður opnaður um helgina þar sem Hverfisbarinn stóð áður, á horni Smiðjustígs og Hverfisgötu. Mikael segir að búið sé að taka staðinn í gegn. Lífið 17.12.2010 11:30
Dexter strax kominn með nýja kærustu Leikarinn Michael C. Hall, sem hefur slegið í gegn í hlutverki Dexters í samnnefndum sjónvarpsþáttum, tilkynnti nýverið að hann og eiginkona hans, Jennifer Carpenter sem leikur systur Dexters, væru skilin. Lífið 17.12.2010 09:00
Kvikmyndastjarna í ævintýraferð með Kúbu-romm og vindla „Maður er bara búinn að vera sofandi og er enn nokkuð vankaður yfir tímamismuninum,“ segir leikarinn Alexander Briem. Hann er nýkominn heim úr þriggja vikna ævintýraferð til Kúbu ásamt tveimur vinum sínum þar sem náin kynni við kúbverskt romm og vindla voru meðal efnisatriða á dagskránni. Lífið 17.12.2010 09:00
Hressandi jólapopp á Haítí Jólapopp var haldið á Café Haiti á miðvikudagskvöld. Dr. Gunni hélt spurningakeppni upp úr spilinu Enn meiri Popppunktur, Einar Kárason kynnti bókina Poppkorn og Prinspóló steig á svið. Lífið 17.12.2010 08:30
Féll fyrir öðrum vandræðapésa Leikkonan Denise Richards hefur farið á nokkur stefnumót með bassaleikara hljómsveitarinnar Mötley Crue, Nikki Sixx. Richards var áður gift vandræðapésanum Charlie Sheen og á með honum tvær dætur, Sam og Lolu. Lífið 17.12.2010 08:00
Íslensku jólasveinarnir þrettán Íslensku jólasveinar sem við þekkjum í dag eru þrettán talsins. Þeir eru Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottaskefill, Askasleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir. Jól 17.12.2010 08:00
Eitthvað sem við vissum ekki Ljósmyndir og ljóð draga upp óvæntar og heillandi svipmyndir af þekktum listamönnum og persónum í samfélaginu. Forvitnileg bók sem maður sækir í aftur og aftur. Gagnrýni 17.12.2010 07:00
Hátíðarborð Hönnu Margrétar Hátíðarborð Hönnu Margrétar Einarsdóttur er sérstaklega hlýlegt þar sem jarðlitir í náttúrulegum og einföldum borðskreytingum úr kanilstöngum, lifandi jurtum og könglum spila aðalhlutverkið. Borðskreytingin er ekki síður barnvæn. Tíska og hönnun 17.12.2010 06:00
Biblíuleg jólaveisla fyrir sex Séra Sigrún Óskarsdóttir prestur í Árbæjarkirkju er sælkerakokkur af Guðs náð og hefur undanfarið lagt stund á Biblíulega matargerð. Matur 17.12.2010 06:00
Endurvinnur ullarpeysur Sigríður Ásta Árnadóttir textílhönnuður hannar stórskemmtilegar flíkur undir heitinu Kitschfríður. Sigríður segir nafnið vera nokkuð lýsandi fyrir hönnun sína, „kitsch“ merkir eitthvað sem er skrautlegt og ofhlaðið og „fríður“ minnir svolítið á gamla tíma. Tíska og hönnun 17.12.2010 06:00