Lífið

Í veislum hvor hjá öðrum

Frændurnir Bjarnar Ingi Pétursson og Örvar Svavarsson hafa verið leikfélagar frá unga aldri. Í vetur hafa þeir fylgst að í fermingarfræðslu í Hjallakirkju og nú styttist í að þeir staðfesti skírnina.

Lífið

Fermingarmyndin: Minning umgóðan dag

Fermingin er viðburður sem flestir vilja varðveita sem lengst. Fallegar ljósmyndir eiga sinn þátt í að halda á lofti minningunni um daginn en svo þær heppnist sem best er gott að hafa nokkur atriði á hreinu.

Lífið

Sniðugheit í veislunni

Fermingarveislur eru í dag með margbreytilegu sniði. Orðtækið að „ekkert skuli til sparað" þarf ekki að þýða að kostnaðurinn þurfi að vera í formi peninga. Hugmyndaflugið getur ekki síður gert veisluna ógleymanlega en beinharðir peningar.

Lífið

Ásinn Týr í uppáhaldi

„Ég var að bíða eftir að komast í tónmenntatíma, og tók upp bók og fór að lesa. Bókin var um ásatrú og ég las hana alla,“ segir Ívan Breki Guðmundsson, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði. Ívan heillaðist af ásatrúnni og tók þá ákvörðun að taka siðfestu í stað þess að fermast.

Lífið

Upplifði ævintýri í Ameríku

Alexander Sigmarsson, fjórtán ára, ákvað að verja fermingarpeningunum sínum í ævintýraferð um Mið-Ameríku á síðasta ári. Með í för var faðir hans Sigmar Alexandersson. „Þetta var rosalega skemmtilegt, alveg eins og ég bjóst við," segir Alexander en hákarlar og píramídar eru á meðal þess sem rak á fjörur hans.

Lífið

Bara einn fermingardagur

Deilur fráskilinna foreldra skyldu ætíð látnar lönd og leið á fermingardegi barna og gleði fá í staðinn stærstan sess. „Aðeins einn dagur í ævi barns heitir fermingardagur. Því þurfa foreldrar að hafa hagsmuni barns síns að leiðarljósi og setja eigin ágreining til hliðar, sé hann til staðar. Við getum haldið mörg jól og farið í mörg sumarfrí, en hvaða sögu viljum við að barn okkar segi af fermingardegi sínum? Minningarnar munu lifa og því skal hafa í huga að deilur foreldra bitna mest á börnunum,“ segir Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi og formaður Félags stjúpfjölskyldna, spurð um heillaráð til handa foreldrum barna sem eiga tvö heimili.

Lífið

Gullmolarnir í lífinu

Börn með þroskahömlun gera Jesú að ævilöngum vini á fermingardaginn. "Áður fyrr var undir hælinn lagt hvort börn með þroskahömlun fermdust, og í starfi mínu hef ég talað við margt aldrað fólk sem svíður sárt að hafa ekki fengið að fermast af því það gat ekki lært kverið sitt og var kannski ekki læst. Við þurfum ekki að vera læs til að eiga Jesú að vini. Við þurfum bara að vera læs á hjarta okkar og umhverfi,“ segir Guðný Halldórsdóttir, sem starfað hefur sem prestur fatlaðra frá árinu 1990 og þjónar sérstaklega einstaklingum með þroskahömlun.

Lífið

Pabbi fór á kostum

Þótt tæplega hálf öld sé liðin síðan leikkonan góðkunna Guðrún Ásmundsdóttir fermdist man hún ferminguna eins og hún hafi gerst í gær. „Þá fylgdi því mikill kostnaður að fermast. Fermingarkyrtlar stóðu ekki til boða svo saumaðir voru á okkur stelpurnar glæsilegir hvítir fermingarkjólar, næstum eins og brúðarkjólar, og ekki nóg með það heldur var keyptur kjóll til að klæðast eftir ferminguna í veisluna og kápa.“

Lífið

Myndaþáttur: Laglegir unglingar

Undir hvítum kuflinum á fermingardaginn leynast oft fagrir kjólar og litrík klæði sem valin hafa verið af kostgæfni. Fermingarbörnin hafa oft á tíðum sterkar skoðanir á því hverju þau vilja klæðast á þessum merkilega degi í lífi þeirra.

Lífið

Borgaraleg ferming vinsæll valkostur

Borgaraleg ferming nýtur vaxandi hylli hérlendis. Þannig ætla 195 börn að fermast borgaralega í ár en þau voru 166 á síðasta ári. Hope Knútsson, formaður Siðmenntar, telur gott orðspor ráða því að sífellt fleiri velja þennan kost.

Lífið

Mamma erfði skyrtuna

„Þetta var yndislegur dagur," segir Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona, sem fermdist 6. apríl 1975 í Stórólfshvolskirkju á Hvolsvelli. „Ég ólst upp á frekar trúuðu heimili. Mamma og pabbi sóttu messur og pabbi söng með kirkjukórnum. Ég fór snemma að syngja með kórnum og hugsaði mikið um trúna. Mér fannst því sjálfsagt að fermast," segir Elín, en séra Stefán Lárusson sá um ferminguna.

Lífið

Verða góðar manneskjur

Séra Birgir Ásgeirsson segir fermingarundirbúninginn samtal og samfélag um trúna milli unglingsins, fjölskyldunnar og kirkjunnar. „Mér finnst fermingarundirbúningurinn vera samtal um trúna og tækifæri unglingsins til að kynnast sjálfum sér og bera sig saman við trúarlegan og siðfræðilegan þátt í eigin lífi. Hvað er ég, hver vil ég vera og hvert stefni ég, og þá um leið hver er Guð?“ segir séra Birgir Ásgeirsson, prestur í Hallgrímskirkju.

Lífið

Þessi eru með himinháa greindarvísitölu

Meðfylgjandi myndskeið var tekið í dag í Vonarstræti þegar Hönnunarsjóður Auroru útlhlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði hönnunar. Við tókum hönnuðina Hafstein Júlíusson, Emblu Vigfúsdóttur, Katarinu Lötzcsch, Anton Kaldal og Steinar Farestveit tali þar sem þeir kynntu hugmyndir sínar.

Lífið

Framúrskarandi íslenskir hönnuðir verðlaunaðir

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs. Þrír aðilar fengu framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna, sem er í takt við þá stefnu Hönnunarsjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að. Það voru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar. Öll eiga þessi verkefni sameiginlegt að ötullega hefur verið unnið í þeim frá fyrri styrkveitingum. Sjá nánar hér.

Lífið

Framúrskarandi hönnuðir verðlaunaðir

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar hönnunarsjóður Auroru úthlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs. Þrír aðilar fengu framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna, sem er í takt við þá stefnu Hönnunarsjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að. Það voru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar.

Tíska og hönnun

Spúkí stemning með miðil og spákonu í beinni

Meðfylgjandi myndskeið var tekið í gærkvöldi á settinu hjá Dyngju-dömum Skjás eins, Nadiu Banine og Björk Eiðsdóttur, rétt áður en útsending þáttarins Dyngjan hófst klukkan 21:05. Gestir kvöldsins, Guðrún Hjörleifsdóttir miðill og Sigríður Klingenberg spákona, voru nýbúnir að koma sér fyrir ásamt þáttastjórnendum. Eins og sjá má var stemningin rafmögnuð.

Lífið

Vill komast í jarðarför Perkins

Blúsarinn Halldór Bragason ætlar að reyna að vera viðstaddur jarðarför vinar síns, bandarísku blúsgoðsagnarinnar Pinetop Perkins, sem er látinn, 97 ára gamall.

Lífið

Aldrei aftur allsber

Breski leikarinn Ewan McGregor lét hafa það eftir sér á dögunum að hann væri hættur að koma nakinn fram á hvíta tjaldinu. McGregor, sem verður fjörutíu ára á þessu ári, segist ekki vilja enda eins og margar karlkyns Hollywood-stjörnur sem sífellt eru naktar í ástarleikjum með ungum konum. Tekur hann leikarann Clint Eastwood sem dæmi.

Lífið

Missir hárið

Söngkonan skrautlega Lady Gaga er byrjuð að missa hárið og þarf að ganga með hatt til að fela skallablettina. Skrautlegar hárgreiðslur og sífelldar breytingar á háralit virðast vera byrjaðar að taka sinn toll á hári söngkonunnar, sem er byrjuð að sanka að sér hárkollum. „Ég nota hárkollur og hárlengingar til að bæta upp lokkana sem detta af.“

Lífið

Will Smith gaf tölvur

Will Smith hefur gefið 29 tölvur til menntaskóla í heimaborg sinni Fíladelfíu í Pennsylvaníu-fylki. Þetta góðverk gerði leikarinn eftir að hann komst að því að þjófar höfðu stolið sextíu tölvum úr skólanum. Þeir hafa verið handsamaðir af lögreglu og ákærðir fyrir verknaðinn. Upphæðin sem Smith innti af hendi kemur úr góðgerðarsjóði sem hann stofnaði með eiginkonu sinni. Smith ólst upp í bænum Wynnefield skammt frá menntaskólanum sem er í vesturhluta Fíladelfíu.

Lífið

Braut rúðu í brjálæðiskasti

Hér má sjá þegar tónlistarmaðurinn Chris Brown, sem lúbarði söngkonuna Rihönnu fyrir tveimur árum, var í viðtali í sjónvarpsþættinum Good Morning America í morgun. Chris tók brjálæðiskast eftir að spyrillinn spurði hann út í það sem hann gerði Rihönnu en ef myndskeiðið er skoðað má greinilega sjá að hann er ósáttur við að rifja upp fortíðina. Söngvarinn rauk eftir viðtalið beint í búningsherbergið ósáttur við spurningarnar sem áttu að hans mati að ganga út á nýju plötuna hans Fame. Þá braut Chris rúðu í æðiskastinu. Meðfylgjandi má sjá myndir af Chris fyrir utan sjónvarpsstöðina og skilaboðin sem hann setti á Twitter síðuna sína í kjölfarið en nú þegar er búið að eyða skilaboðunum.

Lífið

Einhleyp og hamingjusöm

Leikkonan Renee Zellweger er laus og liðug á ný eftir að hafa sagt skilið við leikarann Bradley Cooper. Zellweger virðist þó ekki gráta sambandið því hún lék við hvern sinn fingur í veislu sem haldin var síðustu helgi.

Lífið

Pearl Jam býr til plötu

Rokkararnir í Pearl Jam byrja í næsta mánuði að taka upp sína tíundu hljóðversplötu. Síðasta plata sveitarinnar, Backspacer, kom út árið 2009. "Við gerðum fullt af prufuupptökum og við erum með 25 möguleg lög,“ sagði bassaleikarinn Jeff Ament.

Lífið

HURTS: Kærleiksrík kveðja þrátt fyrir misheppnaða tónleika

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá hvernig hljómsveitin HURTS kvaddi áhorfendur í Vodafone höllinni á sunnudagskvöldið áður en þeir spiluðu lokalagið. Rafmagnið fór tvívegis af hljóðkerfinu og breytti þar með annars frábærri stemningu sem hafði skapast í höllinni á meðan bandið spilaði.

Lífið