Lífið

Hetjuleg frammistaða

Leikkonan Helga Jónsdóttir þykir ansi hörð af sér. Hún handleggsbrotnaði við tökur á stuttmynd skömmu fyrir páska en hætti þó ekki þrátt fyrir slysið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins datt leikkonan í atriði á móti Theodóri Júlíussyni og handleggsbrotnaði við fallið.

Lífið

Fær beiðnir um að gera ljósbláar myndir

„Það er gaman að myndin sé að falla í kramið hjá samkynhneigðum úti í heimi,“ segir Baldvin Z leikstjóri myndarinnar Óróa sem nýverið kom út á DVD í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Lífið

Ástfangin Harry Potter stjarna

Harry Potter leikkonan Emma Watson, 22 ára, hallaði sér upp að nýja kærastanum sem heitir Will Adamowicz á tónlistarhátíð í Indio í Kaliforníu sem fjöldi Hollywoodstjarna heimsótti um helgina. Eins og sjá má á myndunum eru þau ástfangin upp fyrir haus.

Lífið

Lopez og Max sonur hennar

Jennifer Lopez, 42 ára, og sonur hennar, Max, komu við á bensínstöð í gær í Sherman Oaks í Kaliforníu. Eins og sjá má vidi American Idol dómarinn drífa sig í bílinn sem beið þeirra á meðan drengurinn vildi leika. Skoða má myndir af mæðginunum í myndasafni.

Lífið

Fergie og eiginmaðurinn á tónlistarhátíð

Söngkonan Fergie og eiginmaður hennar, leikarinn Josh Duhamel, mættu á þriggja daga tónlistarhátíð í Indio í Kaliforínu. Fergi stendur undir merkjum og klæðir sig eins og poppstjarna með sólgleraugu á nefinu. Burtséð frá því skemmtu hjónin sér vel. Á tónleikahátiðinni eru einnig Kate Bosworth og unnusti hennar Michael Polish, Twilight hönkið Kellan Lutz, Mischa Barton og Gossip Girl stjarnan Michelle Trachtenberg.

Lífið

Þakkar Love fyrir hrósið

Leikkonan Jennifer Love Hewitt lýsti því yfir í spjallþætti Ellen Degeneres að henni þætti söngvarinn Adam Levine myndarlegur og að þau gætu orðið flott par.

Lífið

Varaði við Humphries

Sjónvarpstjarnan Khloe Kardashian segist hafa varað systur sína Kim við hjónabandi hennar og Kris Humphries körfuboltastjörnu.

Lífið

Sakar Love um að ljúga á Twitter

Fancis Bean Cobain, dóttir Kurts Cobain heitins og Courtney Love, er búin að fá sig fullsadda af móður sinni. Nýjasta útspil Love var að skrifa á Twitter síðu sína að Dave Grohl, fyrrum trommari Nirvana og núverandi söngvari Foo Fighters, hafi verið að reyna við dóttur sína. Francis Bean er æf vegna skilaboðanna og segir móður sína ljúga. „Ég reyni að skipta mér helst ekki af því sem móðir mín gerir en nú fór hún yfir strikið. Dave Grohl hefur aldrei reynt við mig og við erum ekkert meira en vinir. Ég er hamingjusöm í mínu sambandi,“ segir Francis Bean við E!Online en hún er trúlofuð kærasta sínum Isaiah Silva.

Lífið

Kærastinn kom á óvart

Crystal Humphries, kærasta leikarans Sam Worthington, vissi ekki að kærastinn var frægur fyrr en þau voru komin á fast.

Lífið

Dekkri og sterkari

Leikkonan Anne Hathaway fer með hlutverk Kattarkonunnar, eða Catwoman, í væntanlegri kvikmynd um Batman. Hathaway þurfti að gangast undir stranga líkamsþjálfun fyrir verkið.

Lífið

Sest meiddur í dómarasætið á heimaslóðunum

„Það er frekar glatað að vera á hliðarlínunni í ár en ég er ánægður að hafa eitthvað hlutverk,“ segir snjóbrettakappinn Halldór Helgason sem sest í dómarasætið á AK Extreme snjóbrettamótinu sem hófst á Akureyri í gær.

Lífið

Urður og Högni syngja með Nýdanskri

Stórhljómsveitin Nýdönsk mun halda upp á 25 ára afmæli sitt með tveimur tónleikum í september, í Hörpu þann 22. september og í Hofi á Akureyri þann 29. september, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum.

Tónlist

Hættu tökum vegna hávaða í flugvél

Hljómsveitin Klezmer Kaos heldur útgáfutónleika á Nasa þann 28. apríl næstkomandi í tilefni af útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar, Froggy, er kom út í byrjun árs. Söngkona sveitarinnar er íslensk en aðrir meðlimir hennar eru franskir að uppruna.

Lífið

Axl vill ekki vera með

Rokkarinn Axl Rose afþakkaði inntöku hans í Rock and Roll Hall of Fame um helgina sem leið. Söngvarinn, sem sló í gegn með Guns N‘ Roses í lok níunda áratugarins, bað aðdáendur hljómsveitarinnar afsökunar á synjun sinni.

Tónlist

Prometheus kynnt í París

Aðstandendur kvikmyndarinnar Prometheus fóru til Parísar á dögunum þar sem þeir kynntu myndina fyrir fjölmiðlafólki. Myndarinnar hefur verið beðið með þó nokkurri eftirvæntingu en hún er ekki frumsýnd fyrr en í byrjun júlí. Íslendingar bíða margir hverjir spenntir en hluti af tökunum fór fram hér á landi, meðal annars við Dettifoss.

Lífið

Verða síður einmana

Það er heilsubætandi að vera íþróttaaðdáandi ef marka má niðurstöðu rannsóknar sem gerð var við Murray-háskólann í Kentucky.

Lífið

Ásdís Rán: Ég var svoddan villingur

"Ég var sautján ára gömul en það mótaði mig. Gerði mig sterkari en samt umhyggjusamari. Maður lærir svo margt gott. Ég var svoddan villingur á þessum tíma og móðurstarfið róaði mig...

Lífið

Undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana

"Það gerðist nú fyrir algjöra tilviljun en það kom fljótlega í ljós þegar ég byrjaði í frjálsum að kastgreinar voru mín sterkasta hlið. Svo leiddist ég bara smám saman yfir í spjótkastið...

Lífið

Menn vilja bikiní vax

Sífellt fleiri karlmenn láta fjarlægja kynfærahár sín reglulega samkvæmt New York Times. Meðferðin hefur verið nefnd „bro-zilian“ og „man-kini“ á ensku og er þar vísað í ensku heitin „brazilian“ og „bikini“. Munurinn á þessu tvennu er sá að í hinu fyrrnefnda eru öll kynfærahár fjarlægð.

Lífið

Lína innblásin af spíritisma

Sævar Markús Óskarsson frumsýndi fyrir stuttu brot úr fyrstu fatalínu sinni. Línan er bæði ætluð konum og körlum og inniheldur kjóla, jakka og buxur svo fátt eitt sé nefnt og er meðal annars innblásin af spíritisma og tékkneskum kvikmyndum frá sjöunda áratugnum.

Tíska og hönnun

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir American Reunion, en upplifunin á meira skylt við nostalgíuna sem fylgir því að lesa gamla dagbók sem fannst uppi á háalofti en að horfa á góða gamanmynd. Andrúmsloftið er til staðar en grínið þarf að vera meira og betra.

Gagnrýni

Koma fram hjá Fallon

Velgengni hljómsveitarinnar Of Monsters and Men í Bandaríkjunum er á allra vörum. Plata hljómsveitarinnar, My Head Is an Animal situr í sjötta sæti bandaríska Billboard-listans og seldist í 55 þúsund eintökum vestanhafs í síðustu viku.

Lífið

Kínverjar ritskoða Titanic í þrívídd

Kvikmyndin Titanic hefur vakið mikla lukku meðal aðdáenda út um allan heim eftir að hún var nýverið frumsýnd í þrívídd. Kínverjar fá hins vegar ekki að sjá alla myndina í þrívídd. Kínverska kvikmyndaeftirlitið hefur ritskoðað myndina og til dæmis klippt út atriðið þar sem Kate Winslet situr fyrir berbrjósta. Ástæðuna segja þeir vera til að koma í veg fyrir káf í bíósalnum.

Lífið