Lífið

Flutt inn með Smart

Söngkonan Jennifer Lopez og kærasti hennar, dansarinn Casper Smart, deila nú heimili Lopez við Hidden Hill í Los Angeles. Parið hefur verið saman í sex mánuði og virðist afskaplega hamingjusamt.

Lífið

Djörf Rihanna bak við tjöldin

Rihanna var við tökur á nýju tónlistarmyndbandi í vikunni sem ber heitið, Where Have You Been og er óhætt að segja að öllu hafi verið til tjaldað við gerð myndbandsins.

Lífið

Með fyrsta skólaverkefnið sitt á Cannes-hátíðina

Jasmin Rexhepi, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands, er á leið með fyrsta skólaverkefni sitt á kvikmyndahátíðina í Cannes á miðvikudaginn næsta. Kvikmyndin á að gerast í Frakklandi en var tekin upp á heimili Jasmin í Reykjavík.

Menning

Skálmaldardagur haldinn á leikskóla

„Þau eru miklir Skálmaldaraðdáendur," segir María Sigurðardóttir yfirmaður á leikskólanum Bárðargili í Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu. Sjö krakkar eru á leikskólanum og klæddust þeir allir Skálmaldarbolum á sérstökum Skálmaldardegi sem var haldinn hátíðlegur fyrir skömmu. Krakkarnir hlustuðu á lög með þungarokksveitinni hressu og sungu mest með einu lagi hennar, Kvaðningu.

Lífið

Gretu og Jónsa gengur vel

Fyrsta æfing Gretu Salóme og Jónsa fyrir Eurovision-keppnina var haldin í Bakú í gær. Blaðamaður á vefsíðu Eurovision-keppninnar hreifst af söng þeirra og fannst þau ná vel saman, bæði baksviðs og á sviðinu sjálfu. Þá leggja fjölmargir lesendur síðunnar orð í belg og er greinilegt að íslenska framlagið mælist vel fyrir.

Lífið

Forsetahjón á Facebook

Kosningabarátta Ólafs Ragnars Grímssonar, sitjandi forseta, hófst í gær. Opnuð var kosningaskrifstofa, vefurinn olafurogdorrit.is og teknar í notkun Facebook-síður bæði fyrir Ólaf og konu hans Dorrit Moussaieff.

Lífið

Barnshafandi Sienna Miller

Breska leikkonan Sienna Miller, 30 ára, var mynduð á götum Lundúna í gær klædd í gráan stuttan kjól og svartan jakka....

Lífið

Dýrmætt samband

Leikkonan Eva Mendes var gestur í spjallþætti Ellen Degeneres fyrr í vikunni og talaði þar í fyrsta sinn um samband sitt og Ryans Gosling.

Lífið

Bretar heilluðust af hundakúnstum Pudsey

Tvíeykið Ashleigh og Pudsey vann hæfileikakeppnina Britain"s Got Talent og fékk í sigurlaun eitt hundrað milljónir króna. Tvíeykið Ashleigh og Pudsey bar sigur úr býtum í hæfileikakeppninni Britain"s Got Talent og tryggði sér þar með hálfa milljón punda í sigurlaun, eða um hundrað milljónir íslenskra króna. Hin sautján ára Ashleigh Butler þjálfaði hundinn sinn Pudsey til að stökkva og dansa með henni í úrslitaþættinum í atriði við tónlistina úr Mission Impossible-myndunum.

Lífið

Á fimm þúsund aðdáendur

Myndasagnahöfundurinn Vignir Þór Þórhallsson, eða Flotti-Comics eins og hann kallar sig, er kominn með fimm þúsund aðdáendur á Facebook-síðu sína.

Menning

Íslenski hópurinn lofsamaður eftir fyrstu æfingu

Jónsi og Gréta Salóme ná vel saman baksviðs og á sviðinu í Baku, eftir því sem segir á vefsíðu Eurovision keppninnar. Þá segir jafnframt að bakraddasöngvararnir, sem allir eru svartklæddir, gefi íslenska laginu mikinn kraft. Fyrstu æfingu íslenska hópsins er lokið en hópurinn fór út í gær. Hér getur þú séð myndskeið sem aðstandendur keppninnar birtu á YouTube.

Lífið

Pitt í fótspor Monroe

Leikarinn Brad Pitt er nýtt andlit ilmvatnsins fræga No. 5 eftir Chanel. Pitt er fyrsti karlmaðurinn í 90 ára sögu ilmvatnsins til að auglýsa vöruna og fetar í fótspor frægra kvenna á borð við Catherine Deneuve, Lauren Hutton og Nicole Kidman. Það var hins vegar Marilyn Monroe sem gerði ilmvatnið það frægasta í heimi er hún sat fyrir í auglýsingarherferð nánast nakin á sjötta áratugnum. Ilmvatnið hefur hingað til verið markaðssett fyrir konur en ekki er vitað hvort verið sé að breyta um stefnu með því að velja Pitt.

Lífið

Safarík Kóteletta í ár

Páll Óskar og Sálin hans Jóns míns eru á meðal þeirra sem fram koma á fjölskyldu- og tónlistarhátíðinni Kótelettunni á Selfossi dagana 8.-10.júní næstkomandi.

Lífið

Norðmenn taka misjafnlega í Þór

Íslenska teiknimyndin Þór heldur áfram flakki sínu um heiminn og var á dögunum frumsýnd hjá nágrönnum okkar í Noregi. Gagnrýnendur þar í landi eru ekki á einu máli um myndina þó að flestir gefa henni jákvæða dóma. Leikstjórar Þór eru Óskar Jónasson, Gunnar Karlsson og Toby Genkel en myndin er framleidd af CAOZ. Norðmenn hafa beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir myndinni enda er söguþráður hennar skírskotun í norræna goðafræði sem er þeim vel kunn.

Lífið

Hanks á Broadway

Leikarinn Tom Hanks gæti farið með hlutverk Mike McAlary í leikverkinu Lucky Guy sem setja á upp á Broadway. Gangi það eftir verður þetta í fyrsta sinn sem leikarinn stígur á svið síðan árið 1979. Talsmaður Hanks staðfesti fréttirnar við New York Times í gær.

Lífið

Fær ráð hjá mömmu

Rapparinn Jay-Z óttast að dóttir hans muni einn dag skammast sín fyrir foreldra sína. Hann gerir þó sitt besta til að ala stúlkuna upp til að verða góð manneskja.

Lífið

Fimmtán á Music Mess

Fimmtán hljómsveitir hafa verið bókaðar á tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí. Meðal þeirra sem hafa bæst í hópinn eru Tilbury, Man Made sem er leidd af Nile Marr, syni Johnny Marr úr The Smiths, söngkonan Laura J. Martin og rokkararnir í Reykjavík!. Áður hafði verið tilkynnt um þátttöku Legend, Benna Hemm Hemm, My Bubba & Mi og fleirum.

Tónlist

Draga sig út úr Django

Sacha Baron Cohen er hættur við að leika feluhlutverk í Django Unchained, nýjustu mynd Quentins Tarantinos. Cohen átti að leika Scotty Harmony, fjárhættuspilara sem borgar fyrir félagsskap eiginkonu aðalpersónunnar sem Jamie Foxx leikur. Hann varð að hætta við hlutverkið vegna kynningarherferðar myndar hans The Dictator.

Lífið

Brjóstagjöf á forsíðu Time

Heilsa Forsíða tímaritsins Time Magazine þessa vikuna hefur vakið athygli út um allan heim. Forsíðuna prýðir móðirin Jamie Lynne Grumet frá Los Angeles og sýnir myndin hana gefa þriggja ára syni sínum brjóst en hann stendur á kolli við hlið hennar.

Lífið

Björk biðst afsökunar

Björk Guðmundsdóttir hefur beðist afsökunar á því að hafa þurft af aflýsa tónleikum sínum á fjórum tónlistarhátíðum á Spáni, í Portúgal, Ungverjalandi og Rússlandi. Hún segir að læknir hennar hafi fyrirskipað sex vikna hvíld til viðbótar vegna hnúðs sem hún er með á raddböndunum.

Lífið

Ber virðingu fyrir gömlu og góðu

"Við berum mikla virðingu fyrir þjóðbúningnum en við viljum reyna að nútímavæða hann og gera hann þannig að konur geti notað hann við fleiri tækifæri,“ segir Rebekka A. Ingimundardóttir, hönnuður kjólsins sem Greta Salóme mun klæðast í Eurovision-söngvakeppninni í Bakú 22. og 26. maí næstkomandi.

Tíska og hönnun