Lífið

Rachel er tvíkynhneigð

Leikkonan Evan Rachel Wood viðurkennir í viðtali við tímaritið Esquire að hún girnist karla jafnt sem konur. Wood, sem var í löngu sambandi með rokkaranum Marilyn Manson, segist ekki setja kyn fyrir sig þegar hún leitar sér að maka.

Lífið

Ræddi við móður Jeffs Buckley

Robert Pattinson, sem sló í gegn í Twilight-myndunum, hefur mikinn áhuga á að leika Jeff Buckley í nýrri kvikmynd um ævi tónlistarmannsins sáluga.

Lífið

Tekur upp nýja plötu

Leikarinn Jeff Bridges er að undirbúa nýja plötu með T-Bone Burnett, sem samdi tónlistina í myndinni Crazy Heart.

Lífið

Tónleikahald aftur í tísku

Fjöldi erlendra tónlistarmanna og skemmtikrafta er á leiðinni til Íslands á árinu. Mikil fjölgun hefur orðið síðan hrunið varð árið 2008. Tilkoma Hörpunnar spilar stóra rullu. Fréttir af hinum og þessum erlendu skemmtikröftum sem eru á leiðinni hingað til lands hafa verið tíðar að undanförnu.

Lífið

Umdeilt myndband

Söngkonan Lady Gaga sendir á föstudaginn langa frá sér myndband við lagið Judas. Það er annað smáskífulagið af væntanlegri plötu hennar Born This Way. Í myndbandinu er Gaga klædd sem María Magdalena og hafa ljósmyndir úr því þegar vakið mikla hneykslan hjá fjölda trúarhópa.

Lífið

Verslanakeðjan Lindex skoðar Ísland

„Við erum stöðugt að þreifa fyrir okkur á nýjum alþjóðlegum mörkuðum. Ísland er á lista með öðrum löndum sem við erum að skoða náið en við getum ekki gefið nein ákveðin svör í augnablikinu,“ segir Kaisa Lyckdal, fjölmiðlafulltrúi verslanakeðjunnar Lindex.

Lífið

Vont að gata eyrun

Hin unga og upprennandi leikkona Rooney Mara hefur þurft að þola miklar útlitsbreytingar til að líta út eins og Lisbeth Salander, til dæmis að lita hárið svart og klippa það stutt ásamt því að aflita á sér augabrúnir.

Lífið

Músík í Mývatnssveit

Hin árlega tónlistarhátíð Músík í Mývatnssveit verður haldin í þrettánda sinn á morgun, skírdag, og föstudaginn langa.

Lífið

Smókingurinn passar ennþá

Rúnar Rúnarsson virðist vera í miklum metum á kvikmyndahátíðinni í Cannes því kvikmynd hans Eldfjall hefur verið valin í tvo keppnisflokka. Þetta er í þriðja sinn sem Rúnar tekur þátt. „Þetta er eins gott og maður þorði að vona; þetta mun hjálpa myndinni að ná til breiðari og stærri hóps,“ segir Rúnar Rúnarsson kvikmyndagerðarmaður. Í gær var tilkynnt að kvikmynd Rúnars, Eldfjall, myndi keppa í tveimur flokkum á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Annars vegar keppir hún í Directors’ Fortnight, þar sem stór nöfn á borð við Martin Scorsese, Francis Ford Coppola og George Lucas komu fyrst fram á sjónarsviðið, og hins vegar um Camera d’Or eða fyrir bestu fyrstu kvikmynd leikstjóra.

Lífið

Átök innan tískubransans

Linda Björg Árnadóttir segir að nám í fatahönnun sé fyrst og fremst listnám, ekki nám í vöruhönnun. Hún segir að fólk innan tískubransans sé ósammála um hvernig eigi að koma íslenskri fatahönnun á framfæri.

Lífið

Ég bjóst við skömmum

Að svífa á fisflugvél um heiðloftið blátt og ljósmynda landið er áhugamál Styrmis Bjarnasonar. "Ég þvælist mikið um á fisflugvél og hef lent á yfir 100 flugvöllum á Íslandi, sem langflestir eru óskráðir, en líka á 130 stöðum utan valla, Það er ekki síður landið sem togar í mig en flugið," segir Styrmir.

Lífið

Að skapa er partur af því að vera til

Ágúst Borgþór Sverrisson hefur á undanförnum árum getið sér orð fyrir smásagnagerð. Nýlega sendi hann frá sér nýja nóvellu, Stolnar stundir, sem dregur dám af hans eigin lífi – og þó ekki.

Lífið

Frumsýna á föstudaginn langa

Leikfélagið Peðið frumsýnir leikritið Hlátur eftir Kristin Kristjánsson, fyrrverandi formann Hins íslenska glæpafélags, á föstudaginn langa.

Lífið

Helga Braga útskrifuð flugfreyja

Iceland Express getur væntanlega státað af fyndnasta flugfreyjuhópi landsins því á mánudag útskrifaðist Helga Braga Jónsdóttir úr flugfreyjuskóla flugfélagsins. Helga Braga mun hitta fyrir Eddu Björgvinsdóttur, sem kláraði skólann í fyrra. „Eða eins og einhver sagði við mig: Edda og Helga Braga? Hvenær byrjar eiginlega Laddi?“ segir Helga í samtali við Fréttablaðið.

Lífið

Breyttur bransi

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford telur fyrirsætubransann hafa breyst mikið frá því hún var á hátindi ferils síns.

Lífið

Snilldarbrúðkaup sem þú verður að sjá

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá auglýsingu símafyrirtækisins T-Mobile sem fer eins og eldur í sinu um internetið. Um er að ræða sviðsetningu af dansandi brúðkaupi Vilhjálms krónprins og Kate Middleton sem ganga í heilagt hjónaband 29. apríl næstkomandi. Stöð 2 gera þessu brúðkaupi aldarinnar ríkuleg skil. Boðið verður uppá nærri 6 klukkustunda langa útsendingu frá sjálfu brúðkaupinu þar sem fylgst verður grannt með aðdragandanum, fagnaðarlátunum og svo að sjálfsögðu frá athöfninni sjálfri.

Lífið

Feðgar spila í Litháen

Feðgarnir Óskar og Pan Thorarensen sem skipa rafdúettinn Stereo Hypnosis spila á tónlistarhátíð í borginni Vilníus í Litháen 28. apríl. Hátíðin nefnist Jauna Muzika og er stærsta raftónlistarhátíð Eystrasaltsríkjanna. Þetta verður í fyrsta sinn sem þeir feðgar spila í Litháen en fyrir tveimur árum stigu þeir á svið í Eistlandi, Lettlandi og í Rússlandi.

Lífið

Gnarr sýnd á Tribeca-hátíðinni

"Það er mjög gleðilegt að komast inn á svona stóra og flotta hátíð. Þetta verður ofsalega gaman,“ segir leikstjórinn Gaukur Úlfarsson. Heimildarmynd hans, Gnarr, verður sýnd þrívegis á kvikmyndahátíðinni Tribeca í New York um páskana og verður frumsýningin á föstudaginn langa. Myndin fjallar um ævintýralega leið Besta flokksins í borgarstjórn með Jón Gnarr fremstan í flokki.

Lífið

Simmi og Jói löðrandi sveittir í steggjun á Selfossi

"Það eru bara fagmenn sem láta sjá sig á Dirty Night,“ segir gleðipinninn Óli Geir. Hann stjórnaði sínu fyrsta Dirty Night kvöldi á 800 Bar á Selfossi í heilt ár um síðustu helgi og á meðal gesta var tvöfalda tvíeykið Simmi og Jói og Auddi og Sveppi.

Lífið

Stöðugt samviskubit

Leikkonan Kate Winslet segist í viðtali við breska blaðið Hello varla geta sest niður og slappað af án þess að fá samviskubit. Winslet er tveggja barna einstæð móðir og segist hafa látið sjálfa sig sitja á hakanum síðan hún varð móðir.

Lífið

Bók fyrir þá sem vantar hillu í lífinu

"Lykillinn að því að vera ánægður með lífið og finna lífsfyllingu er að veita því athygli hvaða verkum við erum að sinna,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent í stjórnun og leiðtogafræðum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Lífið

Þriðja barn Knoxville

Ólátabelgurinn Johnny Knoxville úr Jackass-myndunum á von á sínu þriðja barni með annarri eiginkonu sinni, Naomi Nelson. Þetta verður annað barn þeirra saman en fyrir eiga þau hinn sextán mánaða Rocko.

Lífið

Fyrsta íslenska útrásin var falin í skjalasafni

Nýjasta heimildarmynd Þorsteins J., Iceland Food Centre - íslenska útrásin, verður frumsýnd á Stöð 2 á páskadag. Myndin er saga íslensks veitingastaðar sem var opnaður í desember 1965 við Regent Street og var aðeins opinn í 18 mánuði. Hún er byggð á gögnum sem Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur fann í skjalasafni fjármálaráðuneytisins fyrir margt löngu. Í þessum gögnum er saga hlutafélagisns sem ríkið átti helmingin í rakin, frá mars 1965 og þangað til félaginu er slitið 1977.

Lífið

Sjaldan veldur einn þá tveir deila

Páskarnir eru tími vors, blóma, hamingju og málshátta. Í tilefni komandi hátíða fékk Fréttablaðið nokkra nafntogaða einstaklinga til að velja heppilega og viðeigandi málshætti í páskaegg þeirra sem þeir hafa deilt við að undanförnu, og öfugt.

Lífið

Daníel Óliver opnar sig

Í meðfylgjandi myndskeiði opnar söngvarinn Daníel Óliver sig um ástina og hvernig elskhuga hann gæti hugsað sér að eignast. Þá segir Daníel Óliver einnig frá nýja laginu hans Superficial.

Lífið

Foringinn fékk tvo rándýra gítara

„Ég hef alltaf verið hrifinn af fallegum gíturum,“ segir tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson, eða Foringinn eins og hann er gjarnan kallaður innan bransans.

Lífið

Tróðu upp í Kaupmannahöfn

„Við áttum æðislega daga í Köben. Ég átti reyndar pantað borð á Hard Rock Café en komst ekki. Svo var Tívolíið lokað en Strikið stóð fyrir sínu,“ segir Ragnar Ísleifur Bragason listamaður.

Lífið