Erlent
40% stjórnarmanna norskra fyrirtækja skulu vera konur frá og með áramótum Fjórir af hverjum tíu stjórnarmönnum norskra fyrirtækja skulu vera konur frá og með áramótum. Gangi það ekki eftir mega fyrirtæki búast við sektum eða að vera hreinlega lokað. Erlent 9.12.2005 22:53
Rauðu strætisvagnarnir teknir af götum London Hann er stór, rauður og jafn breskur og te og drottningin. En nú er hann horfinn, heyrir hann sögunni til og fæst fyrir slikk. Hver kannast ekki við þessi vinalegu hljóð, þetta mal sem heyrst hefur í hundruðum kvikmynda og á tepptum götum Lundúnaborgar í áratugi? Routemaster heitir hann, frægasti strætisvagn sögunnar og en vél getur verið þjóðsagnapersóna þá er hann það. Erlent 9.12.2005 22:48
25 ár eru liðin frá því að John Lennon var myrtur Það eru tuttugu og fimm ár frá því að John Lennon var myrtur og aðdáendur hans komu saman í skammt frá heimili Lennons í New York í gærkvöldi til að minnast hans. Fólkið safnaðist saman í hluta Central Park sem kallast Strawberry Fields, og þangað kom einnig ekkjan Yoko Ono og skildi eftir hvít blóm. Erlent 9.12.2005 22:41
Myndir birtar af nýja norska prinsinum Í Noregi voru birtar myndir í dag sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Það eru þessar myndir af prinsinu Sverri Magnúsi, syni þeirra Hákons krónprins og eiginkonu hans, Mette-Marit. Sverrir fæddist á laugardaginn var og er annað barn þeirra hjóna, en fyrir á Mette-Marit soninn Maríus. Erlent 9.12.2005 22:37
Vetrarveður í Chicago olli töluverðum vandræðum Vitlaust veður á bandarískan mælikvarða olli töluverðum vandræðum víða vestan hafs í gær. Frost og allt að 25 sentimetra jafnfallinn snjór voru til vandræða en alvarlegasta atvikið var án efa þegar Boeing 737 farþegaþota með 90 manns innanborðs brunaði út af flugbraut í lendingu í Chicago. Erlent 9.12.2005 22:35
Íslendingar á förum frá Afganistan Íslendingar eru á förum frá Afganistan er Norðmenn ætla að fjölga í liði sínu. Tilgangurinn er að veita friðargæsluliðum aukna vörn, en Stoltenberg sagði ekki hversu margar þotur yrðu sendar. Erlent 9.12.2005 22:33
Hundruð myrt í Darfur Mörg hundruð manns hafa verið myrtir í Darfur-héraði í Súdan undanfarnar vikur og margt bendir til að ástandið þar fari í sama farið ef ekki verður brugðist við hið allra fyrsta. Erlent 9.12.2005 12:30
Gary Glitter segist saklaus Fyrrum poppstjarnan Gary Glitter hefur viðurkennt fyrir Víetnömskum yfirvöldum að hafa haft ellefu ára gamla stúlku í rúmi sínu en neitar að hafa misnotað hana. Hinum sextíu og eins árs gamla Glitter er haldið í fangelsi fyrir utan strandborgina Vung Tau, ásakaður um svívirðilegt athæfi með barni en hann er talinn hafa haft kynmök með allnokkrum stúlkum undir lögaldri, þar á meðal er ein ellefu ára og önnur tólf. Erlent 9.12.2005 11:15
Verður líklega fyrsti kvenkyns forseti Chile Michele Bachelet verður fyrsti kvenkyns forseti Chile, nái hún kjöri í í forsetakosningum á sunnudag. Til að ná kjöri verður forseti að hafa yfir 51 % atkvæða en Bachelet hefur forystuna í skoðanakönnunum með 48% atkvæða. Erlent 9.12.2005 10:45
Viðurkenna að Rauði krossinn fái ekki aðgang að öllum föngum Rauði krossinn fær ekki aðgang að öllum föngum sem Bandaríkjamenn hafa í haldi. Þetta viðurkenndu stjórnvöld í Washington í fyrsta skipti í gær. Erlent 9.12.2005 10:00
Hreindýrum fjölgar ört á Grænlandi Hreindýr í Grænlandi hafa aldrei verið fleiri en nú og ef fram fer sem horfir getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði dýr og menn. Politiken greinir frá því að samkvæmt nýjustu talningu Náttúrfræðistofnunar Grænlands hafi hreindýrum í landinu fjölgað um fjórðung á síðustu fimm árum og telur hreindýrastofninn nú um 125 þúsund dýr. Erlent 9.12.2005 09:45
Verslunum lokað í Kasmír í mótmælaskyni við skopmyndir Fleiri þúsundum búða og verslana var lokað í gær í indverska hluta Kasmír í mótsmælaskyni við skopmyndir af Múhameð spámanni sem birtust í Jótlands-Póstinum fyrir rúmum tveimur mánuðum. Frá þessu greina fjölmiðlar á svæðinu. Erlent 9.12.2005 09:30
Drengur í bíl fórst í flugslysi Sex ára gamall drengur lést þegar flugvél rann út af flugbraut á Midway-flugvellinum í Chicago í gærkvöld og út á götu. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 737 og var notuð í innanlandsflugi, var í lendingu þegar slysið var. Erlent 9.12.2005 08:15
Segir mann ekki hafa sagst vera með sprengju Maðurinn sem var skotinn til bana í flugvél í Miami í fyrradag hrópaði ekki yfir vélina að hann væri með sprengju á sér. Þetta fullyrðir einn farþegi vélarinnar í viðtali við tímaritið Time. Farþeginn segir að lögreglumennirnir hafi verið allt of fljótir að grípa til þess ráðs að skjóta manninn, enda hafi hann verið á leiðinni út úr vélinni og aldrei notað orðið sprengja. Erlent 9.12.2005 08:00
Lést af völdum fuglaflensu í Taílandi Taílenskur drengur lést af völdum fuglaflensu í vikunni. Banamein piltsins var staðfest í nótt og þar með hafa fjórtán manns látist af völdum fuglaflensu í Taílandi. Alls hafa nú sjötíu manns látist úr flensunni í Asíu allri. Erlent 9.12.2005 07:30
Segja forsvarsmenn Merck hafa vitað af aukaverkunum Vioox Virt læknatímarit heldur því fram að lyfjaframleiðandinn Merck hafi vitað af hliðarverkunum gigtarlyfsins Vioxx árið 2000, en ekki afhent upplýsingarnar. Lyfið var ekki tekið af markaði fyrr en í fyrra , þegar ljóst þótti að það tvöfaldaði líkur á hjartaáfalli hjá þeim sem það hefðu tekið í meira en eitt og hálft ár. Erlent 9.12.2005 07:15
Stökk um borð í rútu með sprengju Að minnsta kosti þrjátíu létust og fjörutíu slösuðust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í gær. Japanar hafa ákveðið að framlengja dvöl herliðs síns í Írak um eitt ár. Árásin var gerð á umferðarmiðstöð í Bagdad en sjálfsmorðsárásarmaðurinn stökk þá um borð í rútu sem var í þann mund að leggja af stað til sjíabæjarins Nasiriyah í suðausturhluta landsins. Erlent 9.12.2005 06:45
Slíkur framburður ótækur Sérstakur dómstóll breskra lávarða úrskurðaði í gær að vitnisburð sem fengist hefði með pyntingum væri ekki hægt að nota gegn grunuðum hryðjuverkamönnum. Úrskurðurinn þýðir að taka verður upp mál átta manna sem sitja í öryggisgæslu og á senn að reka úr landinu á grundvelli framburðar fanga úr Guantanamo-búðunum alræmdu. Erlent 9.12.2005 06:15
74 verkamenn eru taldir af Talið er að í það minnsta 74 námaverkamenn hafi beðið bana þegar sprenging varð í fyrradag í kolanámu í Hebel-héraði, skammt frá Peking. Þetta er þriðja mannskæða námuslysið í Kína á hálfum mánuði. Erlent 9.12.2005 06:15
Sagður hafa verið líflátinn Írakski uppreisnarhópurinn Íslamski herinn lýsti því yfir á vefsíðu í gær að hann hefði tekið bandarískan gísl sinn af lífi í gær. Engar myndir eða frekari upplýsingar fylgdu yfirlýsingunni en af henni mátti þó ráða að átt væri við Ronald Schulz, fertugan starfsmann öryggisþjónustu, en honum var rænt í landinu á dögunum. Erlent 9.12.2005 05:15
Útskrifuð af sjúkrahúsi Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, var flutt á sjúkrahús í fyrrakvöld eftir að hún fékk aðsvif á hárgreiðslustofu. Hún var hins vegar útskrifuð í gær og virtist þá hin hressasta. Erlent 9.12.2005 05:15
Gefur engar tryggingar Condoleezza Rice ítrekaði að Bandaríkjamenn virtu alþjóðareglur um meðferð fanga. Hún gæti þó ekki gefið tryggingu fyrir því að reglur yrðu ekki brotnar. Erlent 9.12.2005 02:45
Senda Thatcher hlýjar kveðjur Fjölmargir hafa sent Margréti Thatcher hlýjar kveðjur á sjúkrahúsið þar sem hún var lögð inn í gær. Járnfrúin gamla virðist ætla að hrista af sér þessi veikindi eins og svo margt annað. Erlent 8.12.2005 13:15
20 þúsund uppreisnarmenn ganga lausir Minnst þrjátíu manns létust og fjörutíu slösuðust í enn einni sjálfsmorðsárásinni í Írak í morgun. Tuttugu þúsund uppreisnarmenn ganga enn lausir í Írak þrátt fyrir að bandarískar og írakskar hersveitir hafi handsamað og drepið þúsundir uppreisnarmanna undanfarið ár. Erlent 8.12.2005 12:06
Eldgos í Vanuatu-eyjaklasanum Eldfjallið Mount Marano á Ambae-eyju í eyjaklasanum Vanuatu tók stórkostlegan kipp í dag og gaus gufu og eitruðum lofttegundum þrjá kílómetra upp í loftið. Gosið sem byrjaði að láta á sér kræla þann 27 nóvember, kemur frá vatninu Vui í miðju gýgsins. Eldfjallafræðingar óttast að haldi gosið áfram muni aurskriður streyma yfir brún gýgsins og fljóta yfir allnokkur þorp á eyjunni og hafa þau verið rýmd. Erlent 8.12.2005 10:00
Hætta að nota tveggja hæða vagna í Lundúnum Eitt af höfuðeinkennum Lundúnaborgar undanfarna áratugi hverfur af sjónarsviðinu á morgun. Til stendur að leggja rauðu tveggja hæða strætisvögnunum sem fólk hefur getað hoppað upp í og af í rúmlega hálfa öld. Erlent 8.12.2005 09:45
Vilja ekki taka upp gjaldtöku í heilbrigðiskerfi Danmerkur Það kemur ekki til greina að innheimta gjöld í heilbrigðiskerfinu eins og velferðarnefnd sem skipuð var í Danmörku leggur til. Þetta segja talsmenn bæði stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu. Erlent 8.12.2005 09:30
Margret Thatcher lögð inn á sjúkrahús í gær Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, var flutt á sjúkrahús í London í gær eftir að hún fékk aðsvif á hárgreiðslustofu. Thatcher er enn á sjúkrahúsinu og hefur undirgengist rannsóknir í nótt, en ekki er útilokað að hún útskrifist í dag. Erlent 8.12.2005 08:30
Stórum hluta af Gautaborg lokað vegna tundurdufls Stórum hluta af Gautaborg í Svíþjóð var lokað í nótt eftir að fiskibátur hafði komið til hafnar með það sem lögreglu grunar að sé tundurdufl úr síðari heimsstyrjöldinni. Erlent 8.12.2005 08:05
62 látnir í námuslysi í Kína 62 létust og þrettán eru enn innilokaðir eftir enn eina námusprenginguna í Kína í nótt. Sprengingin varð í einkarekinni námu í Hebei-héraði. Tæplega tvö hundruð starfsmenn voru inni í námunni þegar slysið varð, 82r komust út af sjálfsdáðum en 32 var strax bjargað. Erlent 8.12.2005 08:00