Erlent Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Erlent 13.10.2006 13:32 Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. Erlent 13.10.2006 11:28 Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. Erlent 13.10.2006 11:28 Kasparov óttast um líf sitt Erlent 13.10.2006 11:20
Loftslagsbreytingar eru ekki okkur að kenna Erlent 12.10.2006 16:16 Amish-skóli jafnaður við jörðu Erlent 12.10.2006 15:37 Blaðberar grunaðir um innbrot Erlent 12.10.2006 15:23 Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. Erlent 12.10.2006 15:20 Skoðana hvað ? Erlent 12.10.2006 14:59 Viðurkenndi undirbúning árása Erlent 12.10.2006 13:43 Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. Erlent 12.10.2006 13:03 Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. Erlent 12.10.2006 12:30 « ‹ ›
Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Erlent 13.10.2006 13:32
Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. Erlent 13.10.2006 11:28
Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. Erlent 13.10.2006 11:28
Fimm látnir eftir sjálfsmorðsárás í Kandahar Að minnsta kost fimm óbreyttir borgarar létust í sjálfsmorðssprengjuárás á bílalest á vegum Atlantshafsbandalagsins í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans í morgun. Tveir hermenn á vegum NATO særðust í sprengingunni en ekki hefur verið gefið upp hverrrar þjóðar þeir eru. Erlent 13.10.2006 10:40
Elsti Kúbverjinn látinn Eitt hundrað tuttugu og sex ára Kúbverji, Benito Martinez Abogin, sem var þekktur sem elsti maður Kúbu, lést í fyrradag. Erlent 13.10.2006 09:15
Tveir deila friðarverðlaunum Nóbels Bangladessbúinn Mohammad Yunus og Grameen-bankinn sem hann stofnaði deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt í morgun. Verðlaunin fá þeir fyrir viðleitni sína til að stuðla að efnahagslegum og félagslegum umbótum meðal hinna fátæku. Erlent 13.10.2006 09:04
Sex létust í sprengingu á lögreglustöð í Írak Að minnsta kosti sex létust og tólf særðust þegar sprengja sprakk á lögreglustöð í borginni Hilla í Írak í morgun. Á meðal látinnar er yfirmaður sérsveitar lögreglunnar á svæðinu. Þeir slösuðu eru allt lögreglumenn. Erlent 13.10.2006 08:29
Reynt að ná sátt um refsiaðgerðir vegna kjarnorkutilrauna Kínverjar og Suður-Kóreumenn styðja viðeigandi og nauðsynlegar aðgerðir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, gegn Norður-Kóreumönnum, vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Öryggisráðgjafi Suður-Kóreu sagði þetta eftir fund forseta Suður-Kóreu og forseta Kína í morgun. Erlent 13.10.2006 08:15
Bænir í stað boltans Knattspyrna hefur lotið í lægra haldi fyrir trúariðkun í Nígeríu. Færa þurfti kappleik landsliðs karla sem skipað er leikmönnu 20 ára og yngri frá þjóðrleikvanginu í höfuðborginni Abuja vegna kristinnar bænasamkomu. Leikurinn fer fram á laugardaginn en samkoman hefst annað kvöld og stendur í sólahring. Erlent 12.10.2006 23:45
Bannað að gleðja hermenn á vakt Ráðamenn í Tælandi, sem rændu þar völdum í síðasta mánuði, hafa bannað þarlendum dansmeyjum að dansa nærri hermönnum og skriðdrekum þeirra á götum Bangkok. Aðfarir þeirra dragi athylgi mannanna frá því að gæta þess að allt fari fram með frið og spekt á götum borgarinnar. Erlent 12.10.2006 23:15
Atkvæðagreiðslu frestað Kínverjar og Rússar hafa fengið það í gegn að atkvæðagreiðslu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um ályktun Bandaríkjamanna vegna kjarnorkutilrauna Norður-kóreumanna verður frestað. Bandaríkjamenn vildu að greidd yrðu atkvæði um tillöguna á morgun en svo virðist sem það verði ekki gert fyrr en í fyrsta lagi um helgina. Erlent 12.10.2006 22:45
Madonna tekur að sér barn frá Malaví Poppsöngkonana Madonna og eiginmaður hennar, breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, sóttu í dag um að fá að ættleiða ársgamlan dreng frá Malaví. Þau tóku drenginn í fóstur í dag eftir að dómari í heimalandi hans hafði heimilað það. Um leið lögðu hjónin fram formlega umsókn um að fá að ættleiða hann. Erlent 12.10.2006 22:18
Yfirmaður breska heraflans vill kalla hermenn heim frá Írak Yfirmaður breska heraflans vill kalla alla breska hermenn í Írak heim. Hann segir veru þeirra þar auka á óstöðugleika í landinu. Þessi yfirlýsing hans er algjörlega á skjön við stefnu breskra stjórnvalda. Erlent 12.10.2006 21:58
Tyrkir kjósa þing að ári Tyrkneska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga að ári. Áður höfðu stjórnmálaskýrendur í Tyklandi gert því skóna að Réttlætis- og þróunarflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, ætlaði að boða til kosninga hið fyrsta. Erlent 12.10.2006 21:44
Fela sig meðal maríúana-plantna Kanadískir hermenn sem berjast nú við Talíbana í Afganistan hafa mætt heldur óvenjulegum vegtálma á ferð sinni. Þar eru að ræða skóglendi þar sem þriggja metra háar maríúana-plöntur vaxa. Erfiðlega hefur reynst að finna þá Talíbana sem þar fela sig. Erlent 12.10.2006 20:31
Refsivert að tala um annað en þjóðarmorð Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp um að refsivert verði að halda fram að Tyrkir hafi ekki framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Tyrkir eru fjúkandi reiðir og hyggjast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að efri deild og forseti geri frumvarpið að lögum. Erlent 12.10.2006 20:00
Íbúar í New York voru slegnir Sá sem flaug lítilli einkavél á byggingu í New York í gærkvöldi reyndist vera hafnarboltastjarna úr New York Yankees-liðinu. Íslendingur, sem býr í næstu götu, segir borgarbúa hafa verið slegna og óttast að um hryðjuverk væri að ræða, en lögregluyfirvöld hafa útilokað að svo sé. Erlent 12.10.2006 19:48
Starfsemin flutt á Grundartanga Stjórn Elkems, móðurfélags Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, mun leggja það til á morgun að loka verksmiðjunni í Ålvik í Noregi og flytja starfsemina á Grundartanga. Þetta var fullyrt í fréttum norska ríkissjónvarpsins í kvöld. Erlent 12.10.2006 19:30
Ford á sjúkrahús Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var fluttur í sjúkrahús í Kaliforníu í dag. Ford, sem er 93 ára, gengst þar undir rannsóknir. Ekki hefur fengist gefið upp hvað hrjáir hann en hann er ekki sagður illa haldinn. Erlent 12.10.2006 18:23
Fengu að hitta Guantanamo fanga Fulltrúar Rauða krossins hafa fengið aðganga að 14 grunuðum hryðjuverkamönnum sem fluttir voru í leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, til gæslu í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Bandaríski herinn greindi frá þessu í dag. Erlent 12.10.2006 18:13
Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær. Erlent 12.10.2006 16:39
Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. Erlent 12.10.2006 15:20
Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. Erlent 12.10.2006 13:03
Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. Erlent 12.10.2006 12:30