Erlent

Spænskum ljósmyndara rænt á Gasaströndinni

Spænskum ljósmyndara sem starfar fyrir AP-fréttastofuna var rænt á Gasaströndinni í morgun. Maðurinn var leið út úr íbúð sinni í Gasaborg þegar byssumenn á hvítum bíl óku upp að honum og þröngvuðu honum inn í bíl sinn.

Erlent

Íslenskir fjölmiðlar njóta einna mests frelsis

Ísland er í fyrsta til fjórða sæti á nýjum lista samtakanna Blaðamenn án landamæra (Reporters sans frontières) yfir þau lönd þar sem fjölmiðlar njóta mests frelsis. Með Íslandi á toppnum eru Finnland, Írland og Holland. Samtökin segja lítið breytast í þeim löndum sem verst búi að blaðamönnum.

Erlent

Danskir neytendur bjartsýnir

Berlingske Tidenes skýrir frá því í dag að danskir neytendur séu orðnir bjartsýnir á stöðu og framtíð efnahagsmála í Danmörku. Þetta kom í ljós í mánaðarlegri neytendakönnun sem Hagstofa Danmerkur framkvæmdi.

Erlent

Kínverskir gervihnettir til umhverfisrannsókna

Kínverjar skutu í morgun upp tveimur gervihnöttum sem munu senda heim upplýsingar um umhverfið í geimnum. Gervihnettirnir munu meðal annars safna upplýsingum um geislun í geimnum og fleiri tengd málefni. Þeim var skotið upp frá Shanxi-héraði í Kína og komust vandkvæðalaust á fyrirfram ákveðna sporbauga.

Erlent

Dvínandi stuðningur við Evrópusambandið í Tyrklandi

Undir þriðjungi Tyrkja telur nauðsynlegt fyrir landið að ganga í Evrópusambandið samkvæmt skoðannakönnun sem var birt í gær. Mun þetta vera nýjasta staðfestingin á dvínandi stuðningi á aðildarviðræðum og kemur hún á sama tíma og Evrópusambandið þrýstir á Ankara í forviðræðunum sem nú eiga sér stað.

Erlent

Nýir ráðherrar skipaðir í Stokkhólmi

Fredrik Reinfeldt tilkynnti nú rétt í þessu hverjir taki við ráðherrasætunum sem stóðu auð í rúmlega þriggja vikna gamalli ríkisstjórn hans. Hin hófsama Lena Adelsohn Liljeroth tekur við embætti menntamálaráðherra og samflokksmaður hennar Sten Tolgfors mun stýra viðskiptaráðuneytinu. Þetta er í samræmi við það sem sænskir fjölmiðlar höfðu spáð.

Erlent

Norður-Kóreumenn iðrast ekki

Kínverskir embættismenn segja nú að það sé misskilningur að stjórnvöld Norður-Kóreu hafi iðrast kjarnorkutilraunarinnar, eins og kínversk sendinefnd greindi frá eftir heimsókn til Norður-Kóreu. Þá segja kínversk yfirvöld að engin áform séu uppi um að draga úr aðstoð kínverja við Norður-Kóreu og hvetja önnur ríki til að fara sér gætilega á því sviði.

Erlent

Milosevic boðaður á kjörstað

Fyrrverandi forseti Serbíu, Slobodan Milosevic, fékk á dögunum sent bréf þar sem hann er boðaður til kjörstaðar í óbindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Kosovo. Eins og flestir vita lést Milosevic í fangaklefa sínum í vor og er því óhætt að ætla að hann sjái sér ekki fært að mæta á kjörstað.

Erlent

Reynt að auka tiltrú á markmiðum Bush í Írak

Yfirhershöfðingi Bandaríkjamanna í Írak og sendiherra Bandaríkjanna í Bagdad munu halda sameiginlegan blaðamannafund í Bagdad klukkan ellefu að íslenskum tíma vegna stefnu stjórnvalda í Washington. Þegar tvær vikur eru til þingkosninga í Bandaríkjunum mun fundinum vera ætlað að auka trú manna á áætlun Bandaríkjahers í Írak.

Erlent

40 slösuðust á afmæli uppreisnarinnar í Búdapest

Lögreglumenn skutu gúmmíkúlum og beittu táragasi og vatnssprautum gegn mótmælendum í Búdapest í Ungverjalandi í gærkvöldi. Fólkið hafði safnast saman til að ýsa andúð sinni á ríkisstjórninni, daginn sem Ungverjar minntust 50 ára afmælis skammlífrar uppreisnar gegn Sovétríkjunum.

Erlent

Matarskortur í Norður-Kóreu

Matarskortur í Norður-Kóreu er mikill og hefur aukist eftir að stjórnvöldi í Pyongyang sprengdu kjarnorkusprengju í tilraunaskyni og helstu ríki og alþjóðasamtök drógu stuðning sinn til baka. Þetta segir Vitit Muntarbhorn, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna sem fylgist með ástandi mannréttindamála í Norður-Kóreu. Fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, að íbúum í Norður-Kóreu skorti mat og til að bæta gráu ofan á svart hafi mikil flóð eyðilagt uppskeru í landinu.

Erlent

I-Pod spilarinn 5 ára

Fimm áru eru frá því fyrsti iPod spilarinn kom á markað. Með honum er hægt að hlaða niður tónlist af tölvu. Þá má nú sjá á annarri hverri manneskju hvort sem er út á götu, í almenningsfarartækjum eða við vinnu. Apple tölvufyrirtækið framleiðir þessa græju og hefur hún náð mikilli útbreiðslu á ekki lengri tíma.

Erlent

Minnislaus maður finnur ættingja sína

Karlmaður sem þjáist að minnisleysi hefur loks fundið fjölskyldu sína eftir að hafa verið týndur og tröllum gefinn í mánuð. Fjölskyldan bar kennsl á manninn eftir að hann óskaði eftir hjálp í sjónvarpsútsendingu. Maðurinn gekk undir nafninu "Al". Nú er komið í ljós að hann heitir Jeff Ingram.

Erlent

Maður handtekinn eftir áhlaup á rútu

Lögregla í New York borg í Bandaríkjunum hefur handtekið 28 ára gamlan mann sem hélt því fram að hann væri með sprengju bundna um sig miðjan þegar rúta sem hann var á ferð með lagði á rútustöð á miðri Manhattan síðdegis í dag. Maðurinn er sagður andlega vanheill. Rútustöðin, sem er sú stærsta í borginni og þjónar 200 þúsund farþegum á dag, var rýmd að hluta vegna málsins.

Erlent

OPEC-ríkin ekki samstíga

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði snarlega í dag vegna efasemda um að þau fleiri ríki, sem eigi aðild að OPEC, Samtökum olíuframleiðsluríkja, fylgi fordæmi Sádí Araba og draga úr framleiðslu líkt og fulltrúar ríkja innan samtakanna sömdu um í síðustu viku. Vestanhafs lækkaði verð á hráolíu um 51 sent og er nú rúmir 58 bandaríkjadalir á tunnu. Í Lundúnum lækkaði verð um 48 sent og er nú rúmir 59 bandríkjadalir.

Erlent

Sagður andlega vanheill

Maðurinn sem gekk um borð í rútu í New York í dag og sagðist hafa bundið sprengju um sig miðjan er andlega vanheill að sögn lögreglu í borginni. Búið er að rýma um helming stærstu rútumiðstöðvar í borginni af ótta við hryðjuverk. Rútumiðstöðin er staðsett á miðri Manhattan og þjónar 200 þúsund farþegum á dag.

Erlent

Fregnir af áhlaupi á sjónvarpsstöð í Írak

Bandarískar hersveitir gerðu í dag húsleit í höfuðstöðvum Al-Furat, sjónvarpsstöðvar sem tengd er Æðsta ráðs íslömsku byltingarinnar í Írak (SCIRI), stærsta stjórnmálaflokki sjía-múslima í Írak. Flokkurinn á sæti í ríkisstjórn Nuris al-Malikis, forsætisráðherra landsins. Reuters-fréttastofan greinir frá þessu og hefur eftir vitnum á vettvangi og starfsmönnum sjónvarpsstöðvarinnar.

Erlent

Bongo býður sig aftur fram

Omar Bongu, sem hefur setið á forsetastól í Afríkuríkinu Gabon í nærri 4 áratugi, ætlar að bjóða sig aftur fram til embættisins árið 2012 þegar næst verður kosið. Enginn þjóðarleiðtogi í Afríku hefur lengur gengt embætti forseta. Bongo, sem er 70 ára, var endurkjörinn í nóvember í fyrra og verður hann 76 ára næst þegar Gabonar ganga að kjörborðinu og velja sér forseta.

Erlent

Sprengjuhótun í rútu

Lögregla í New York borg í Bandaríkjunum rýmdi stærstu rútustöð í borginn í dag eftir að maður, sem var staddur í rútu, sagðist hafa bundið sprengju um sig miðjan.

Erlent

Lögreglan lúskraði á mótmælendum

Lögreglan í Búdapest í Ungverjalandi beitti táragasi gegn mótmælendum sem safnast höfðu saman við þinghús landsins til að minnast þess að hálf öld er í dag liðin frá því að uppreisn hófst gegn leppstjórn Sovétmanna í landinu.

Erlent

Mótmælaskeytin streyma inn

Hátt í níutíu þúsund mótmælaskeyti hafa verið send af heimasíðu Greenpeace-samtakanna til utanríkisráðuneytisins vegna hvalveiða Íslendinga.

Erlent

Svíakonungur hitti Bandaríkjaforseta

Karl Gústa XVI. Svíakonungur og Sílvía, drottning Svíþjóðar, hittu George Bush, Bandaríkjaforseta, og konu hans, Lauru, í Hvíta húsinu í Washington í dag. Fulltrúi Hvíta hússins segir þetta tækifæri til að styrkja vinasamband Bandaríkjanna og Svíþjóðar sem eigi sér langa, sameiginlega sögu og standi vörð um lýðræði, mannréttindi og frelsi.

Erlent

Boraði niður á sprengju

Borgarstarfsmaður í Aschaffenburg í Þýskalandi lét lífið þegar hann var að brjóta upp steinsteypu á hraðbrautinni milli Würzburg og Frankfurt. Stórvirk vinnuvél sem maðurinn var að vinna með sprakk þegar hún kom niður á sprengju úr Síðari heimsstyrjöldinni sem lá ósprungin undir steinsteypunni. Sprengjan sprakk þegar með fyrrgreindum afleiðingum. Vinnuvélin gjöreyðilagðist.

Erlent

Skólarúta valt á Spáni

10 börn slösuðust, þar af 2 alvarlega, þegar skólarúta valt í Zaragoza-héraði á norðaustur Spáni í dag. 50 börn voru um borð í rútunni þegar slysið varð. Rútan valt á aðrein á akbraut nærri bænum Villamayor.

Erlent

18 manna áhöfn saknað

18 manna áhöfn rússnesks flutningaskips sökk undan norð-austur strönd Suður-Kóreu í dag. Verið var að flytja timbur frá Austur-Rússlandi til Kína.

Erlent