Erlent Páfinn og Erdogan munu funda Tyrkneski forsætisráðherrann, Tayyip Erdogan, ætlar sér að hitta Benedikt páfa þegar hann kemur í opinbera heimsókn til Tyrklands í næstu viku. Töluvert hafði verið deilt á að ekki hefði verið ákveðinn fundur milli þeirra en mikil spenna ríkir í landinu fyrir heimsókna páfa vegna ummæla hans í sumar um að íslam væri ofbeldisfull trú. Erlent 24.11.2006 18:14 Frakkar hlýta ákvörðun ráðamanna í Rúanda Frakkar sögðu í dag að þeir hörmuðu þá ákvörðun ráðamanna í Rúanda að slíta stjórnmálalegum tengslum ríkjanna tveggja. Ástæðan fyrir vinslitunum er sú að franskur dómari ákvað að gefa út handtökuskipun á leiðtogum í Rúanda vegna atburða sem leiddu til þjóðarmorðanna þar í landi árið 1994. Erlent 24.11.2006 17:38 Bandaríkin fordæma árás í Írak Talsmenn Bandaríkjaforseta fordæmdu í dag árásina í gær í hverfi shía múslima og sögðu hana glórulausa og miðaða að því að skapa óstöðugleika í landinu. Alls létu um 200 manns lífið í árásinni sem var sú stærsta sem gerð hefur verið síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak. Erlent 24.11.2006 17:19 Múslimum varla skemmt Erlent 24.11.2006 16:57 Slíta stjórnmálasambandi við Frakkland Rúanda hefur slitið stjórnmálasambandi við Frakkland og gefið franska sendiherranum tuttugu og fjóra tíma til þess að koma sér úr landi. Erlent 24.11.2006 16:37 Brenndu sex menn lifandi Vopnaðir sjía múslimar, í Írak, réðust í dag á sex súnní múslima sem voru að koma frá bænahaldi, og brenndu þá lifandi. Þetta er talið vera hefnd fyrir mannskæða sprengjuárás, í gær, sem kostaði yfir 200 manns lífið, í hverfi sjía múslima í Bagdad. Erlent 24.11.2006 16:23 Myrtur með geislavirkum ísótópum Erlent 24.11.2006 15:46
Páfinn og Erdogan munu funda Tyrkneski forsætisráðherrann, Tayyip Erdogan, ætlar sér að hitta Benedikt páfa þegar hann kemur í opinbera heimsókn til Tyrklands í næstu viku. Töluvert hafði verið deilt á að ekki hefði verið ákveðinn fundur milli þeirra en mikil spenna ríkir í landinu fyrir heimsókna páfa vegna ummæla hans í sumar um að íslam væri ofbeldisfull trú. Erlent 24.11.2006 18:14
Frakkar hlýta ákvörðun ráðamanna í Rúanda Frakkar sögðu í dag að þeir hörmuðu þá ákvörðun ráðamanna í Rúanda að slíta stjórnmálalegum tengslum ríkjanna tveggja. Ástæðan fyrir vinslitunum er sú að franskur dómari ákvað að gefa út handtökuskipun á leiðtogum í Rúanda vegna atburða sem leiddu til þjóðarmorðanna þar í landi árið 1994. Erlent 24.11.2006 17:38
Bandaríkin fordæma árás í Írak Talsmenn Bandaríkjaforseta fordæmdu í dag árásina í gær í hverfi shía múslima og sögðu hana glórulausa og miðaða að því að skapa óstöðugleika í landinu. Alls létu um 200 manns lífið í árásinni sem var sú stærsta sem gerð hefur verið síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak. Erlent 24.11.2006 17:19
Slíta stjórnmálasambandi við Frakkland Rúanda hefur slitið stjórnmálasambandi við Frakkland og gefið franska sendiherranum tuttugu og fjóra tíma til þess að koma sér úr landi. Erlent 24.11.2006 16:37
Brenndu sex menn lifandi Vopnaðir sjía múslimar, í Írak, réðust í dag á sex súnní múslima sem voru að koma frá bænahaldi, og brenndu þá lifandi. Þetta er talið vera hefnd fyrir mannskæða sprengjuárás, í gær, sem kostaði yfir 200 manns lífið, í hverfi sjía múslima í Bagdad. Erlent 24.11.2006 16:23
Nasistastytta afhjúpuð í Noregi Stytta af lögreglustjóra Oslóarborgar, á stríðsárunum, hefur verið afhjúpuð í dag. Knut Röd vann sér það helst til frægðar að senda um 850 norska Gyðinga í útrýmingarbúðir nasista. Aðeins ellefu þeirra áttu afturkvæmt. Erlent 24.11.2006 15:34
IKEA, þú sem ert á himnum Ný könnun sýnir að Svíar setja mublurisann IKEA mikilu hærra en kirkjuna, þegar trú og traust er annarsvegar. Erlent 24.11.2006 15:03
Telja hvalaskoðunarbáta ógna lífi hvalanna Sameiginlegar rannsóknir breskra og kanadiskra vísindamanna benda til þess að hvalaskoðunarbátar trufli svo hvalina, að lífi þeirra geti stafað hætta af. Bátarnir trufli hvalina við fæðuöflun og hreki þá jafnvel frá góðum matar- og hvíldarsvæðum. Erlent 24.11.2006 14:40
Enn ein fjöldagröfin í Bosníu Enn ein fjöldagröfin er fundin í Bosníu og er talið að hún sé frá fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995. Samtals fundust jarðneskar leifar 156 fórnarlamba. Þar af voru níutíu heil lík og svo líkamshlutar af sextíu og sex mönnum. Erlent 24.11.2006 14:29
Vonar að Pólverjarnir snúi sem fyrst heim á ný Utanríkisráðherra Póllands kveðst vona að pólskir verka- og iðnaðarmenn snúi heim aftur sem fyrst, enda á landið í nokkrum vandræðum vegna atgervisflótta. Erlent 24.11.2006 13:45
Le Pen vinsælli en nokkru sinni Hægri öfgamaðurinn Jean-Marie Le er nú vinsælli en nokkrusinni, í Frakklandi, og gerir sér góðar vonir um að fara með sigur af hólmi í forsetakosningunum sem haldnar verða eftir sex mánuði. Erlent 24.11.2006 13:26
„Herra Pútín, þú myrtir mig“ Alexander Litvinenko, fyrrverandi KGB-njósnarinn sem lést í Lundúnum í gærkvöldi, sakar Vladímír Pútín um að hafa myrt sig í yfirlýsingu sem hann skrifaði fyrir lát sitt. Erlent 24.11.2006 11:35
Varar Ástrala við afskiptum af Fiji eyjum Yfirmaður hersins á Fiji eyjum hefur varað Ástralíu og Nýja Sjáland við að skipta sér af innanríkismálum á eyjunum, eftir að utanríkisráðherra Ástralíu sagði að þeir hefðu skýrar sannanir fyrir því að herforinginn væri að undirbúa valdarán innan tveggja vikna. Erlent 24.11.2006 10:40
Hamas og Abbas aftur í hár saman Hamas samtökin saka Mahmoud Abbas, forseta, um að hafa sett fram ný og óaðgengileg skilyrði fyrir myndun þjóðstjórnar. Erlent 24.11.2006 10:04
Rúanda hótar stjórnmálaslitum við Frakkland Rúanda hefur kvatt sendiherra sinn í Frakklandi heim, og hótar að slíta stjórnmálasamband við landið, eftir að franskur dómari gaf út handtökuskipun á hendur níu háttsettum embættismönnum í Rúanda. Erlent 24.11.2006 09:50
Krónprins Danmerkur á ferð um Ástralíu Friðrik, krónprins Danmerkur, og Mary eiginkona hans eru á ferðalagi um Ástralíu. Mary er fædd á eynni Tasmaníu sem er hluti af Ástralíu. Ástralir telja sig eiga dálítið í dönsku konungfjölskyldunni og hafa fylgst vel með ferð hjónanna um landið. Erlent 24.11.2006 09:30
Yfir tvö hundruð látnir eftir árásir í Bagdad Tala látinna eftir hrinu árása í Sadr-hverfi í Bagdad í gær er nú komin upp í 202 og þá eru um 250 sárir. Árásin er sú mannskæðasta frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í landið ásamt bandamönnum sínum í mars árið 2003. Erlent 24.11.2006 09:20
Rútubíll valt á leið til Oslóar Tíu farþegar slösuðust, þar af tveir alvarlega, þegar rútubíll með fimmtíu og fimm farþega á leið frá Þrándheimi til Oslóar valt út af veginum í Dofrafjöllum í nótt. Talið er að vindhviða hafi feykt bílnum út af veginum. Fólkið braut sér leið út úr flakinu og sóttu þyrlur þá mest slösuðu. Erlent 24.11.2006 08:10
Útgöngubann í Írak eftir mannskæða árás Útgöngubann hefur sett á í Bagdad í Írak um óákveðinn tíma eftir eina mannskæðustu árás í landinu frá innrás Bandaríkjamanna árið 2003. Að minnsta kosti eitt hundrað fjörtíu og fjórir týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi Sjía í Bagdad í gær og talið er að hátt í þrjú hundruð manns hafi særst. Erlent 24.11.2006 07:09
Yfir 50 flóttamenn grunaðir Yfir fimmtíu útlendingar, sem hafa fengið hæli eða dvelja í Noregi, eru grunaðir um að hafa átt aðild að stríðsglæpum eða glæpum gegn mannkyni. Þetta hefur fréttavefur norska blaðsins VG eftir Espen Erdal hjá rannsóknarlögreglunni. Hann segir að listinn yfir útlendinga í landinu sem grunaðir eru um slíka glæpi lengist stöðugt. Erlent 24.11.2006 06:30
Hætt að reykja opinberlega Margrét Þórhildur Danadrottning er hætt að reykja opinberlega, þó að heima í Amalíuborgarhöllinni séu allir öskubakkar enn í fullri notkun. Þetta kom fram á fréttavef Politiken í gær. Erlent 24.11.2006 06:15
Faðir hins myrta segir nýja uppreisn hafa byrjað í gær Hundruð þúsunda íbúa Líbanons fylgdu Pierre Gemayel, hinum myrta ráðherra, til grafar í gær. Útförin snerist því upp í fjölmenn mótmæli gegn Sýrlandi og áhrifum Sýrlendinga í landinu. Erlent 24.11.2006 06:00
Enn deila íbúar Kanada um Quebec Forsætisráðherra Kanada leggur til að þingið viðurkenni sérstöðu Quebec-búa, en ekki sjálfstæði. Varð á undan aðskilnaðarsinnum, sem vilja sjálfstæði. Erlent 24.11.2006 05:30
Þjóðarsorg eftir lát 23 manna Þriggja daga þjóðarsorg var lýst yfir í Póllandi í gær, eftir að 23 námuverkamenn létu lífið í mannskæðasta námuslysi í landinu í nærri þrjá áratugi. Erlent 24.11.2006 04:15
Pólitísk pattstaða í Hollandi Kosningaúrslitin í Hollandi þykja staðfesting á því hve þjóðin er klofin í afstöðu sinni til innflytjenda og velferðarríkisins. Tíu flokkar náðu manni á þing en enginn augljós þingmeirihluti blasir við til stjórnarmyndunar. Erlent 24.11.2006 03:15
Flestir óbreyttir fórust í október Fleiri óbreyttir borgarar fórust í Írak í síðasta mánuði heldur en hafa farist á einum mánuði í nokkru öðru stríði heims, kom fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna á miðvikudag. Erlent 24.11.2006 02:00
Kalkúnadagurinn haldinn hátíðlegur Í gær var haldin ein stærsta hátíð ársins í Bandaríkjunum þegar fjölskyldur komu saman til þess að snæða kalkún og færa þakkir. Erlent 24.11.2006 00:45
Sjö tugir fangelsaðir í Kanada Lögreglan í Montreal í Kanada handtók sextíu og níu manns á miðvikudag, segir á fréttavef kandadíska ríkisútvarpsins CBC, í gær. Alls tóku yfir 700 lögreglumenn þátt í aðgerðunum sem beint var gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Montreal og nágrenni. Erlent 24.11.2006 00:45