Erlent Og hafðu það Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur bannað útflutning á Ipod og plasma-sjónvörpum til Norður-Kóreu og er þetta liður í refsiaðgerðum vegna kjarnorkubrölts leiðtoganna. Erlent 29.11.2006 10:53 NATO færir út kvíarnar Erlent 29.11.2006 10:16
Og hafðu það Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur bannað útflutning á Ipod og plasma-sjónvörpum til Norður-Kóreu og er þetta liður í refsiaðgerðum vegna kjarnorkubrölts leiðtoganna. Erlent 29.11.2006 10:53
Evrópusambandið refsar Tyrkjum Evrópusambandið hefur ákveðið að fella niður átta kafla í viðræðunum um aðild Tyrklands að sambandinu. Þetta er í refsingarskyni fyrir að Tyrkir hafa enn ekki fallist á að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur. Erlent 29.11.2006 10:04
Páfi á slóðir Maríu meyjar Benedikt páfi sextándi ætlar í dag að heimsækja staðinn þar sem María mey dvalist síðustu æviár sín. Páfi er nú í opinberri heimsókn í Tyrklandi. Erlent 29.11.2006 08:03
Ségoléne Royal heimsækir Ísrael og Palestínu á næstu dögum Ségoléne Royal, forsetaframbjóðandi franska sósíalistaflokksins, heimsækir Ísrael og Palestínu á næstu dögum. Erlent 29.11.2006 07:43
16 ára drengur á hjóli skotinn í höfuðið í Malmö Í gærkvöldi var lögreglunni í Malmö í Svíþjóð tilkynnt um að 16 ára drengur hafi lent í reiðhjólaóhappi. Þegar sjúkraliðar komu á staðinn uppgötvuðu þeir að drengurinn hafði bæði verið laminn og skotinn í höfuðið. Erlent 29.11.2006 07:31
Bush segir Al-Qaeda bera ábyrgð á Bush Bandaríkjaforseti segir Al-Qaeda samtökin bera ábyrgð á árásinni í Írak í síðustu viku, þar sem um tvö hundruð manns létu lífið. Bush er nú er staddur á fundi Atlantshafsbandalagsins í Riga í Lettalandi. Erlent 29.11.2006 07:30
Flutti tíu farþega á hjólinu sínu Víða í Asíu er algengt að fólk ferðist styttri vegalengdir með þríhjólavögnum, svonefnum rikshaw. Þessi ferðamáti hefur að mestu tekið við af handvögnum sem hlaupa þurfti með á tveimur jafnfljótum. Erlent 29.11.2006 06:00
Ríkisstjórnir vissu um leynifangelsin Ríkisstjórnir Bretlands, Póllands, Ítalíu, Þýskalands, Svíþjóðar og sex annarra Evrópusambandsþjóða vissu af leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem hún rak í Evrópu. Þetta kemur fram í skýrslu Evrópuþingsins sem birt var í gær. Erlent 29.11.2006 06:00
Missa íbúðina vegna glæpa barna sinna Innflytjendaráðgjöfin í Árósum í Danmörku ætlar að reyna að fá héraðsdómi hnekkt sem heimilar kaupleiguíbúðasamtökum að gera leigjendur brottræka, fremji börn þeirra glæpi. Þetta kom fram á fréttasíðu Politiken í gær. Erlent 29.11.2006 05:15
Mega skoða klám í klefum Sænsk fangelsismálayfirvöld hafa ákveðið að takmarka aðgang fanga að klámi. Klámfengin veggspjöld verða tekin niður í sameiginlegum vistarverum og hætt verður að bjóða upp á sjónvarpsstöðvar sem sýna klámmyndir. Erlent 29.11.2006 05:00
Reynir að draga úr reiði í sinn garð Benedikt sextándi páfi er staddur í Tyrklandi þar sem hann hvetur til samræðu og „bræðralags“ milli kristinna manna og múslima. Eitt af markmiðum ferðarinnar er að draga úr reiði múslima vegna umdeildrar ræðu í sumar, sem margir skildu sem gagnrýni á íslamstrú. Erlent 29.11.2006 05:00
Sex Pólverjar handteknir Sex manns voru handteknir í Strømmen í Noregi seint á sunnudagskvöld, grunaðir um að hafa stungið 24 ára gamlan mann mörgum sinnum í maga og brjóstkassa. Maðurinn er enn á gjörgæslu en er talinn úr lífshættu. Erlent 29.11.2006 04:15
Mikið mannfall í sprengingum Tvær sprengingar urðu í námum í Kína um helgina með þeim afleiðingum að 53 fórust. Gassprenging í Jixi í norðausturhluta landsins varð 21 námuverkamanni að bana, en sex manns var enn saknað á sunnudag. Skömmu síðar létust 32 námuverkamenn og 28 slösuðust í svipaðri sprengingu í Fuyuan í suðvesturhluta landsins. Orsakir sprenginganna eru í rannsókn. Erlent 29.11.2006 04:00
Lítið magn e-taflnaveldur skemmdum Lítið magn af e-töflum þarf til þess að valda heilaskemmdum hjá fólki sem aldrei hefur tekið lyfið áður, segir í nýrri rannsókn sem Háskólinn í Amsterdam lét gera og fréttavefur BBC skýrir frá. Erlent 29.11.2006 03:30
Geislavirkni vart í London Meðal þeirra staða í London þar sem geislavirkni hefur fundist í kjölfar láts Rússans Litvinenko er húsnæði rússneska auðjöfursins Boris Berezovskí. Grunur er um að þrír hafi orðið fyrir geislamengun. Erlent 29.11.2006 03:00
Mun ekki kalla herinn heim George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir á blaðamannafundi í Ríga í Lettlandi í gær að hann ætlaði ekki að láta undan þrýstingi og kalla bandaríska herliðið heim frá Írak fyrr en ástandið þar hefur lagast. Erlent 29.11.2006 02:30
Barátta gegn þeim vanrækt Flest ríki Evrópusambandsins sinna lítt baráttu gegn kynþáttafordómum og mismunun, sérstaklega þegar kemur að sviðum atvinnu, húsnæðis og menntun, kom fram í nýrri skýrslu ESB í gær. Erlent 29.11.2006 01:45
Áframhaldandi gæsluvarðhald Danska lögreglan hefur yfirheyrt einn mann til viðbótar sem talinn er tengjast stórfelldustu áætlunum um hryðjuverk sem uppgötvast hafa í Danmörku, segir í frétt Politiken. Erlent 29.11.2006 01:00
50 til 80 prósent skeyta eru rusl Á bilinu 50 til 80 prósent allra skeyta sem hlaðast inn í tölvupósthólf Evrópumanna eru ruslpóstur. Frá þessu greindi Viviane Reding, sem fer með fjarskipta- og fjölmiðlamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, á blaðamannafundi um hertar aðgerðir ESB gegn ruslpóstsplágunni, í Brussel fyrir skömmu. Erlent 29.11.2006 00:30
MacDonalds sækir um einkaleyfi á samlokum MacDonalds, hamborgarastaðurinn frægi, hefur nú sótt um einkaleyfi á samlokum. Hefur staðurinn sótt um leyfið í Bandaríkjunum og Evrópu og segir að það muni hjálpa sér að þróa sínar samlokur og að ná því að hafa þær eins alls staðar. Erlent 28.11.2006 23:43
Börnin eiga að njóta forgangs Kofi Annan ávarpaði í dag öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og sagði þar frá því að í átökunum í Mið-Austurlöndum væru börn farin að verða hermenn. Hann talaði um nauðsyn þess að koma í veg fyrir þessa þróun og bætti við að flestir flóttamenn á átakasvæðum væru konur og börn. Erlent 28.11.2006 23:21
NATO-ríki lofa aukinni þátttöku í Afganistan Á ráðstefnu Norður-Atlantshafs Bandalagsins (NATO) lofuðu aðildarríki því að leyfa herliðum sín í Afganistan að taka þátt í bardögum en George W. Bush Bandaríkjaforseti hafði lagt mikla áherslu á málið fyrir ráðstefnuna. Erlent 28.11.2006 23:01
Býflugur í bandaríska herinn Bandaríski herinn er farinn að þjálfa nýja tegund af hermönnum. Og með nýrri tegund er átt við aðra tegund en mannkynið því nýju hermennirnir eru býflugur. Rannsóknarstofnun bandaríska hersins skýrði frá því í gær að þeim hefði tekist að þjálfa venjulegar býflugur til þess að finna lykt af mörgum tegundum af sprengiefni og að leita það uppi. Erlent 28.11.2006 22:40
Karlmaður heimtaði frí vegna óléttu Suður-Afrískur maður ákvað nýlega að verða sér úti um vikufrí í vinnunni. Hann fór því með kærustu sinni, sem var ólétt, til kvensjúkdómalæknis og stal þar vottorði. Þvínæst fyllti hann það út með sínu nafni og skilaði inn til yfirmanna sinna. Á vottorðinu stóð að hann þyrfti viku frí frá vinnu þar sem hann væri óléttur. Erlent 28.11.2006 22:19
Íraski herinn að verða tilbúinn Þrettán af 112 herdeildum íraska hersins geta nú barist óstuddar við uppreisnarmenn þar í landi. Þetta kom fram í ræðu sem breskur ráðherra hélt í dag. Hann sagði ennfremur að 78 herdeildir þyrftu lágmarksstuðning en þær sem eftir væru væru enn í þjálfun. Ein írösk herdeild hefur um 500 hermenn. Erlent 28.11.2006 22:13
Frelsi á internetinu Kanadískir tölvufræðingar hafa búið til forrit sem mun gera notendum þess kleift að komast fram hjá eldveggjum ríkisstjórna á internetinu sem þýðir að fólk í löndum sem takmarka aðgang að efni á internetinu gæti skoðað hvað sem það vildi. Erlent 28.11.2006 22:02
Haldið upp á 80 ára afmæli Kastró Hátíðishöld vegna 80 ára afmælis Fídels Kastró, forseta Kúbu, hófust í dag en Kastró sást þó hvergi þar sem hann er enn að jafna sig eftir neyðaruppskurð sem hann fór í þann 31. júlí síðastliðinn. Margir Kúbverjar telja að Kastró sé of gamall til þess að snúa aftur til valda en hann eftirlét bróður sínum stjórntaumana eftir uppskurðinn. Erlent 28.11.2006 21:26
Fimm stúlkur láta lífið í áhlaupi Bandaríkjahers Sex Írakar, þar á meðal fimm ungar stúlkur, létu lífið í skotabardögum á milli bandarískra hermanna og grunaðra uppreisnarmanna í bænum Ramadi í dag. Bandaríska hersveitin notaði vopn gegn skriðdrekum, hríðskotabyssu og venjulegar byssur í skotbardaganum gegn tveimur mönnum sem voru uppi á þaki hússins sem stúlkurnar voru í. Erlent 28.11.2006 21:10
Norðmenn að taka við flugvellinum í Kabúl Norðmenn hafa boðist til þess að taka við stjórninni á flugvellinum í Kabúl en þeir tóku þó fram að þeir myndu aðeins gera það í sex mánuði og að þátttaka þeirra ylti á því hvað þeir yrðu beðnir um að gera. Erlent 28.11.2006 20:54