Erlent
Upprættu barnaklámhring í Austurríki Rúmlega hundrað Austurríkismenn eru í haldi grunaðir um aðild að barnaklámhring sem upprættur var um helgina í viðamikilli aðgerð. Húsleitir voru gerðar vítt og breytt um landið og eru hinir grunuðu á aldrinum 18 til 70 ára. Erlent 20.12.2010 08:09
Óttast að 48 hafi farist þegar bátur sökk Forsætisráðherra Ástralíu Julia Gillard, segir að allt að 48 hafi farist í síðustu viku þegar flóttamannabátur sökk í slæmu veðri undan ströndum Jólaeyju, sem lýtur yfirráðum Ástrala. Erlent 20.12.2010 08:04
Styrktir vegna málskostnaðar Bandaríska leyniþjónustan CIA samþykkti að greiða að minnsta kosti fimm milljónir dala, eða hálfan milljarð króna, í lögfræðikostnað fyrir tvo sálfræðinga sem skipulögðu og tóku sjálfir þátt í vatnspyntingum á föngum. Erlent 20.12.2010 01:00
Fyrsta góðgerðasamkoma verðandi prinsessu Kate Middleton kom í fyrsta sinn fram opinberlega á laugardagskvöld eftir að tilkynnt var um trúlofun hennar og Vilhjálms Bretaprins. Erlent 20.12.2010 00:15
Áfram kuldakast í Evrópu Kuldakastið í Evrópu heldur áfram að hafa áhrif á ferðaáætlanir. Þúsundir manna eru strandaglóðar á flugvöllum, bara á flugvellinum í Frankfurt voru 2500 ferðalangar fastir í gær og í nótt. Heathrow og Gatwick voru lokaðir í gær en opnuðu aftur í morgun. Nokkrar seinkannir urðu á flugi frá Keflavík í nótt og í morgun en það virðast vera að komast í lag. Erlent 19.12.2010 10:04
Var byrjaður að brjótast inn sextán ára Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, var byrjaður að brjótast inn í tölvukerfi þegar að hann var sextán ára gamall. Hann setti sér þá nokkrar reglur um innbrot sín, eins og fram kemur í ítarlegri úttekt í Fréttablaðinu í dag. Erlent 18.12.2010 21:30
Miklar tafir á samgöngum á Bretlandi í dag Það má segja að algjör umferðaröngþveiti hafi verið á Bretlandi í dag. Bæði Heathrowflugvelli og Gatwickflugvelli var lokað. Gatwick hefur nú verið opnaður aftur en mörgum flugferðum hefur engu að síður verið aflýst. Á Norður Írlandi, Walew, Skotlandi og í Englandi hefur röskun orðið á samgöngum, bæði flugsamgöngum, lestarsamgöngum og umferðaröngþveiti hefur myndast á götum. Erlent 18.12.2010 16:09
Merkel í heimsókn í Afganistan Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er komin til Afganistan en þar er hún í óvæntri heimsókn. Merkel lenti í borginni Kunduz í Afganistan í dag þar sem Þýskaland hefur herstöð. Þar var hún ásamt varnarmálaráðherra Erlent 18.12.2010 14:41
Little Britain-stjarna vinnur meiðyrðarmál Matt Lucas, stjarnan úr Little Britain, gat loksins leyft sér að fagna eftir að hafa unnið mál gegn bresku götublaði fyrir dómstólum. Erlent 18.12.2010 08:00
Svartfjallaland í hópinn Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu í gær að veita Svartfjallalandi stöðu umsóknarlands, en búast má við að fjögur til fimm ár líði áður en aðildarviðræðum getur lokið með aðildarsamningi. Erlent 18.12.2010 06:30
Og mun ég hvergi fara Bandarískur undirofursti hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi og rekinn úr hernum vegna þess að hann trúir því ekki að Barack Obama sé innfæddur bandarískur ríkisborgari. Erlent 17.12.2010 22:00
Hafið skilaði henni Tvöþúsund ára gömul stytta af rómverskri konu fannst eftir að brimalda braut úr bergvegg rétt við hafnarborgina Ashkelon í Ísrael. Ashkelon er rétt sunnan við Tel Aviv. Erlent 17.12.2010 21:15
Hárið alelda í partíbaði hjá Puff Daddy Rappmógúllinn P Diddy hélt á dögunum partý á Manhattan sem er ekki í frásögur færandi. Fönguleg fljóð voru boðin og fæstar þeirra voru kappklæddar. Ein skellti sér meira að segja í bað í miðri stofunni og hafði það huggulegt umkringd kertaljósum. Hún hefði þó betur sleppt rómantísku lýsingunni því eins og sjá má á myndbandinu stóð hárið á henni allt í einu í ljósum logum. Erlent 17.12.2010 20:15
Hræðist yfirlýsingar bandarískra stjórnmálamanna Julian Assange segist hafa áhyggjur af því að bandarískir stjórnmálamenn hafi hvatt til þess að hann og hans fólk verði myrt. Erlent 17.12.2010 18:36
Uppnám í ísraelsku kjarnorkuveri Ísraelski flugherinn skaut í gær niður eitthvað flugfar sem flaug yfir Dimona kjarnorkuverið í Negev eyðimörkinni. Ekki er enn vitað hvað þar var á ferðinni. Erlent 17.12.2010 13:45
Kista forsetamorðingja seld Líkkista mannsins sem myrti John F. Kennedy forseta Bandaríkjanna hefur verið seld á uppboði fyrir 90 þúsund dollara. Það gerir um 10,5 milljónir íslenskra króna. Erlent 17.12.2010 13:27
Ráðagóðar löggur Lögreglumenn í bænum Swansea í Wales voru kvaddir til þegar fullorðinn maður tók sér stöðu á þakbrún fimm hæða verslunarhúss og hugðist svipta sig lífi með því að stökkva framaf. Erlent 17.12.2010 10:31
Mótmæla palestinsku sendiráði í Osló Stjórnvöld í Ísrael hafa mótmælt því að skrifstofa palestínumanna í Osló skuli hafa fengið viðurkenningu sem sendiráð. Í mótmælunum segir meðal annars að þetta ýti undir þær ranghugmyndir palestínumanna að þeir geti náð pólitískum ávinningi á sama tíma og þeir neiti að eiga friðarviðræður við Ísrael. Erlent 17.12.2010 10:02
Meint ástkona Pútíns verður forsíðustúlka Vogue Nýráðinn ritstjóri rússnesku útgáfu tískuritsins Vogue ætlar að hefja ferilinn með stæl. Forsíðufyrirsæta fyrsta heftis ársins 2011 er Alina Kabajeva en hún er sögð ástkona forsætisráðherra Rússlands, Vladimírs Pútín. Erlent 17.12.2010 09:15
Leikstjóri Pink Panther myndanna er látinn Hinn þekkti Hollywoodleikstjóri Blake Edwards er látinn 88 ára að aldri vegna lungnabólgu. Erlent 17.12.2010 07:42
Mikil slagsmál milli þingmanna á þingi Úkraínu Mikil slagsmál brutust út milli þingmanna á þingi Úkraínu í Kiev í gærdag. Þegar verst lét slógust 50 þingmenn við hverja aðra í þingsalnum, með hnefum, skóm og stólum. Erlent 17.12.2010 07:36
Assange segist fórnarlamb rógsherferðar Julian Assange stofnandi Wikileaks segir að hann sé fórnarlamb rógsherferðar og að ákæran í Svíþjóð fyrir kynlífsafbrot sé liður í þeirri herferð. Erlent 17.12.2010 07:26
Rótaði í rusli ráðherrans Danski þjóðarflokkurinn hefur hvatt þingmenn á þjóðarþinginu þar í landi til að senda heimilissorp sitt á skrifstofur Ekstrablaðsins. Erlent 17.12.2010 06:00
Írar sæta harðri gagnrýni vegna fóstureyðinga Stjórnarskrárbann við fóstureyðingum á Írlandi brýtur í bága við réttindi þungaðra kvenna. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þessari niðurstöðu í gær og gagnrýnir írsk stjórnvöld harðlega. Erlent 17.12.2010 04:30
Assange sett ströng skilyrði um ferðir Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal stuðningsmanna Julians Assange, stofnanda Wikileaks, þegar dómari í London kvað upp þann úrskurð að honum skyldi sleppt gegn tryggingu. Erlent 17.12.2010 04:30
Fátækum fækki um 22 þúsund Dönsk stjórnvöld hafa sett sér það takmark að fækka fátækum þar í landi um 22.000 á næsta áratug. Erlent 17.12.2010 04:00
Staða al Kaída aldrei veikari Aukinn kraftur í stríðsrekstri Bandaríkjamanna í Afganistan hefur skilað sér í því að styrkur al Kaída er minni nú en nokkru sinni síðan stríðið hófst í árslok 2001. Þetta er meðal helstu niðurstaðna matsskýrslu Bandaríkjastjórnar sem kynnt var í gær. Erlent 17.12.2010 04:00
Vilja leyfa kynlíf innan fjölskyldna Stjórnvöld í Sviss eru að íhuga að fella úr gildi lög sem banna kynlíf innan fjölskyldna. Dómsmálaráðherra landsins mælir fyrir því og þegar er búið að semja lagafrumvarp þessa efnis. Erlent 16.12.2010 22:30
Verðmætasta jólatré í heimi er í Abu Dhabi Glæsihótel í Arabísku furstadæmunum stærir sig nú af því að vera með dýrasta jólatré heimsins í anddyri hótelsins. Hóteleigandinn fullyrðir að tréð sé metið á heilar ellefu milljónir dollara, enda er það alsett dýrindis skartgripum. Langflestir íbúar Arabísku furstadæmanna eru múslimar og tíðkast ekki í þeim sið að setja upp jólatré. Hótelstjórinn segir að landið sé hinsvegar afar frjálslynt og býst ekki við neinum vandræðum vegna þessa. Erlent 16.12.2010 21:30
Jon Bon Jovi ráðleggur Obama Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur skipað tónlistarmanninn Jon Bon Jovi í nefnd sem ætlað er að veita Obama og Hvíta húsinu ráðgjöf. Í nefndinni eiga einnig sæti fulltrúar Starbucks, eBay og Gap auk alþjóðlegu mannréttindasamtakanna Amnesty International. Erlent 16.12.2010 21:19