Erlent
Bandarísk herþota hrapaði í Líbíu Bandaríski herinn hefur staðfest að herþota af gerðinni F-15 Eagle hafi farist í Líbíu. Ekkert er sagt benda til þess að vélin hafi verið skotin niður heldur hafi hún einfaldlega hrapað til jarðar. Tveir menn voru um borð og náðu þeir að skjóta sér út. Annar þeirra er fundinn en hinns er enn leitað, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Erlent 22.3.2011 11:01
Fékk grætt á sig nýtt andlit 25 ára gamall Bandaríkjamaður fékk í gær grætt á sig nýtt andlit. Maðurinn afmyndaðist í andliti þegar hann snerti háspennulínu hann og tók það 30 lækna rúma fimmtán klukkutíma að græða nýja andlitið á hann. Aðgerðin var framkvæmd nákvæmlega ári eftir að fyrsta aðgerðin af þessu tagi var framkvæmd á Spáni. Erlent 22.3.2011 10:47
Brúðurin eyddi brúðkaupsnóttinni í fangelsi Lögregla var kölluð til í borginni Phoenix í Arizona í gær þegar til átaka kom í brúðkaupsveislu. Þegar lögreglan mætti á svæðið voru fjöldaslagsmál í gangi í veislunni. Erlent 22.3.2011 10:40
Aftur byrjað að kæla kjarnaofnana í Fukushima Vinna er á ný hafin við að kæla kjarnaofnana í Fukushima kjarnorkuverinu. Erlent 22.3.2011 09:20
Hjóna saknað eftir snjóflóð í Noregi Hjóna er saknað í Noregi eftir að snjóflóð féll á hús þeirra nálægt Balestrand í Sogni í gærkvöldi. Flóðið tók tvö hús á svæðinu og standa aðeins grunnarnir eftir. Tíu manns voru fluttir á brott í gærkvöldi vegna snjóflóða og snjóflóðahættu og leit að hjónunum sem saknað er hefur tafist vegna hættunnar. Skip frá norsku strandgæslunni er á leið inn í fjörðinn þar sem flóðin féllu til leitar en ekki þykir öruggt að fara landleiðina. Erlent 22.3.2011 09:09
Skriðdrekar brenna eftir árásir bandamanna við Benghasí í Líbíu Ónýtir skriðdrekar og brynvarðir bílar sáust víða á vegum í nágrenni borgarinnar Benghasí í gær. Borgin er höfuðvígi uppreisnarmanna gegn stjórn Moammars Gaddafí, einræðisherra Líbíu. Hart hefur verið barist í nágrenni borgarinnar undanfarið. Erlent 22.3.2011 09:00
Charlie Sheen að snúa aftur í Two and a Half Men? Nýjustu fregnir úr Hollywood herma að leikarinn Charlie Sheen verði mögulega endurráðinn í sjónvarpsþáttinn vinsæla Two and a Half Men. Gustað hefur um stjörnuna síðustu vikur eftir að hann hellti sér yfir framleiðendur þáttanna og hagaði sér almennt stórundarlega. Í kjölfarið var hann rekinn. Nú segja heimildir úr innsta hring leikarans að honum verði boðið hlutverkið að nýju. Sheen var áður en hann var rekinn hæst launaði leikarinn í Bandarísku sjónvarpi og fékk rúmar hundrað og þrjátíu milljónir fyrir hvern þátt. Erlent 22.3.2011 08:58
Sprengjuregn í Trípólí Loftárásir héldu áfram á höfuðborg Líbíu þriðju nóttina í röð. Háværar sprengingar heyrðust og loftvarnabyssur geltu í alla nótt í borgina en herþotur bandamanna reyna nú að útrýma loftvörnum einræðisherrans Gaddafís. Árásirnar hafa gert uppreisnarmönnum í landinu auðveldar fyrir að berjast við heri Gaddafís en hernaðarsérfræðingar óttast þó að þrátefli kunni að koma upp þar sem uppreisnarmennirnir séu ekki nægilega vel vopnum búnir til þess að láta kné fylgja kviði. Erlent 22.3.2011 08:09
Starfsmenn flýja reyk úr kjarnorkuveri Starfsmenn sem unnið hafa að viðgerðum á kjarnorkuverinu í Fukushima í Japan flúðu í gær í ofboði eftir að hvítur reykur tók að stíga upp af kjarnaofnunum tveimur sem skemmdust í flóðbylgjunni fyrir ellefu dögum. Erlent 22.3.2011 07:00
Með tómatafælni en elskar tómatsósu Kayleigh Barker er tuttugu og tveggja ára þjónn á veitingastað í Southampton. Það er kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að hún er með tómatafælni, eða á slæmri íslensku fóbíu. Og það sem meira er, hún elskar tómatsósu. Erlent 21.3.2011 23:48
Danskir unglingar stórnotendur á klámi 72 prósent danskra unglingspilta og 3,6 prósent danskra unglingsstúlkna horfa á klámefni á netinu, í sjónvarpi eða í blöðum tvisvar sinnum í viku eða oftar og falla því undir skilgreiningu fræðimanna á stórnotendum á klámi. Erlent 21.3.2011 22:00
Bjargað eftir níu daga í húsarústum Sextán ára gamall piltur sem bjargað var úr húsarústum í norðurhluta Japans ásamt ömmu sinni eftir níu daga segir þau hafa nærst á vatni og flögum. Staðfest er að tala látinna sé nú nærri níu þúsund og um þrettán þúsund er enn saknað. Erlent 21.3.2011 20:22
Tiger Woods búinn að næla sér í eina fjórtán árum yngri Kvennabósinn og íþróttamaðurinn Tiger Woods var ekki lengi á lausu eftir að hafa gengið frá skilnaðarpappírunum við fyrrum eiginkonu sína fyrir nokkrum mánuðum síðan. Erlent 21.3.2011 17:48
UNICEF safnar fyrir börn í Líbíu UNICEF á Íslandi hefur hafið söfnun vegna hjálparstarfs UNICEF í Líbíu. Óróleiki og átök í landinu ógna lífi og velferð mörg þúsunda barna í landinu. Um hundrað þúsund manns hafa flúið yfir til nágrannaríkjanna Egyptalands og Túnis og er meirihluti þeirra konur og börn. Sem fyrr eru börn sérstaklega berskjalda þegar neyðarástand ríkir. Hægt er að styrkja neyðarstarf UNICEF með því að greiða inn á reikning 515-26-102040 (kt. 481203-2950). Einnig er hægt að hringja í síma 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) eða 908-5000 (5.000 krónur). Einnig er hægt að láta skuldfæra af kreditkorti hér. Helstu verkefni UNICEF snúa að því að vernda börn gegn ofbeldi og misnotkun, sjá til þess að þau hafi aðgang að nauðsynlegri heilsugæslu og hreinu vatni, tryggja lágmarkshreinlæti til að koma í veg fyrir útbreiðsælu farsótta og veita sálrænan stuðning. Erlent 21.3.2011 15:51
Þorpsbúar flýja eldgos Um 1200 manns hafa flúið eldfjall í Indónesíu sem fór að gjósa um helgina. Eldfjallið, Karangetang, er eitt af virkustu eldfjöllum landsins og höfðu vísindamenn varað við því í lok síðustu viku að það gæti farið að gjósa. Síðast gaus fjallið í ágúst og þá fórust fjórir. Engar fregnir hafa borist af manntjóni nú en skemmdir hafa orðið á húsum í þorpum við rætur fjallsins. Mökkurinn úr fjallinu náði rúmlega tvö þúsund metra hæð í gær og hraun streymir niður fjallshlíðar. Erlent 21.3.2011 13:34
Myndir af bandarískum hermönnum vekja reiði Þýska blaðið Der Spiegel birti í gær myndir sem sýna tvo Bandaríska hermenn stilla sér upp með líki í Afganistan. Mennirnir hafa verið ákærðir fyrir morðið á manninum sem var óbreyttur afganskur borgari. Fimm hermenn hafa verið ákærðir í málinu en þeir eru sagðir hafa myrt að minnsta kosti fimm óbreytta borgara í landinu á síðasta ári. Talsmenn Bandaríkjahers hafa beðist afsökunar á ódæðinu og segja mennina fá þunga dóma, verði þeir sakfelldir. Erlent 21.3.2011 12:20
Stuðningsmenn Bradley Manning handteknir við Quantico Um 30 mótmælendur voru handteknir við Quantico herstöðina í Virginíu í gærkvöldi. Fólkið var í hópi 400 manna sem komu saman við herstöðina til þess að krefjast þess að hinn 23 ára gamli Bradley Manning verði látinn laus úr haldi, en Manning er hermaðurinn sem lak þúsundum leyniskjala til Wikileaks eins og frægt er orðið. Erlent 21.3.2011 09:47
Ástandið skárra í Fukushima Alþjóðakjarnorkumálastofnunin segir að ástandið í Fukushima kjarnorkuverinu fari nú batnandi en hættuástand hefur verið á svæðinu frá því jarðskjálftinn mikli reið yfir og flóðbylgjan kom í kjölfarið. Dregið hefur úr geislun frá verinu þar sem menn hafa keppst við að kæla kjarnakljúfana. Talsmaður stofnunarinnar áréttaði þó að ástandið væri enn mjög alvarlegt. Tala látinna eftir jarðskjálftann í Japan fer enn hækkandi. Nú er staðfest að 8.450 hafi farist og er tæplega þrettán þúsund manna enn saknað. Erlent 21.3.2011 07:07
Árás gerð á höfuðstöðvar Gaddafís Flugskeytaárás var í nótt gerð á höfuðstöðvar Gaddafís í Trípólí. Árásin var gerð á víggirta byggingu í úthverfi höfuðborgar Líbíu, Trípólí og segja talsmenn bandamanna að ætlunin hafi verið að eyðileggja aðgerðamiðstöð Líbíska herliðsins. Erlent 21.3.2011 07:06
Mótmæli breiðast út Forseti Jemens, Ali Abdullah Saleh, rak í gær ríkisstjórn landsins. Fjöldi embættismanna hafði þegar sagt af sér vegna andstöðu við morð á mótmælendum á föstudag, þar sem minnst 45 voru drepnir. Sendiherra Jemens hjá Sameinuðu þjóðunum, tveir ráðherrar, yfirmaður ríkisfjölmiðilsins og sendiherra landsins í Líbanon voru meðal þeirra sem sagt höfðu af sér. Erlent 21.3.2011 06:00
Gaddafí heitir langvinnum stríðsátökum Loftvarnakerfi Líbíu er sagt illa skaddað eftir loftárásir Bandaríkjanna, Frakklands og Bretlands. Gaddafí segist ekki ætla að víkja og hefur hert á sókn stjórnarhers Líbíu gegn uppreisnarmönnum. Tölur um mannfall eru á reiki. Erlent 21.3.2011 05:00
Bjargað úr rústum eftir níu daga Áttræðri konu og sextán ára barnabarni hennar var bjargað úr rústum húss í Ishinomaki í Japan í gær, níu dögum eftir skjálftann þar í landi. Þau höfðu verið föst í húsinu en komust í ísskáp og gátu því nærst. Þau eru nú á spítala. Erlent 21.3.2011 03:00
Fukushima-aðgerðir ganga vel - verinu verður lokað Kjarnorkuverinu í Fukushima verður lokað þegar björgunaraðgerðum þar lýkur. Þær hafa borið árangur síðustu tvo sólarhringa og því er geislavirkni á svæðinu minni en verið hefur. Erlent 20.3.2011 18:48
Arabandalagið endurskoðar stuðning við flugbann í Líbíu Arababandalagið endurskoðar nú stuðning sinn við flugbannið í Líbíu eftir harðar loftárásir bandamanna á Trípólí í nótt. Fréttir herma að 48 óbreyttir borgarar hafi látið lífið í árásunum. Erlent 20.3.2011 18:44
Milljónir Egypta kjósa - ElBaradei grýttur Milljónir Egypta hafa tekið þátt í kosningum í dag þar sem kosið er um breytingar á stjórnarskrá Egyptalands. Verði breytingarnar samþykktar þýðir það að Egyptar geta haldið lýðræðislegar kosningar eftir hálft ár. Erlent 20.3.2011 16:54
Tala látinna í Japan fer síhækkandi Rúmlega átta þúsund manns eru taldir af eftir jarðskjálftann í Japan á fyrir rúmri viku síðan. Þá er tæpleg þrettán þúsund manns saknað samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins. Erlent 20.3.2011 16:51
Wyclef skotinn á Haítí Tónlistarmaðurinn Wyclef Jean hefur verið útskrifaður af spítala eftir að hann var skotinn í höndina nærri Port-au-Prince, höfuðborg Haíti. Samkvæmt fréttavef BBC þá eru málsatvik óljós en hann var skotinn að kvöldi laugardags að staðartíma. Erlent 20.3.2011 14:54
Börnin gráta björninn Knút Sorg ríkir í Þýskalandi vegna dauða ísbjarnarins Knúts sem naut ótrúlegra vinsælda meðal barna og fullorðinna þar í landi. Banamein Knúts hefur enn ekki verið staðfest en mörg hundruð gestir í dýragarðinum fylgdust með síðustu andartökunum í lífi hans. Erlent 20.3.2011 14:36
Lofar löngu stríði og ætlar ekki að gefa þumlung eftir Muammar Gaddafi lofaði löngu stríði í símaviðtali sem var tekið við hann í líbíska ríkissjónvarpinu í morgun. Erlent 20.3.2011 14:09
Sprengjum rignir yfir Líbýu Sprengjum rigndi yfir Líbýu í gærkvöld. Bandamenn vörpuðu sprengjum á 20 mismunandi staði í Líbýu. Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands segja að þetta sé fyrsta skrefið í þvi að framfylgja ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var á fimmtudagskvöld. David Cameron, forsætisráðherra Breta, segir að aðgerðirnar séu nauðsynlegar, löglegar og réttlátar. Undir það tekur Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og hann segir jafnramt að ekki sé hægt að horfa upp á Gaddafi, leiðtoga Líbýumanna, misþyrma þjóð sinni. Erlent 20.3.2011 09:55
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent